Hlynur - 15.06.1975, Síða 8
K.P.A. og við
Kooperativa Personal Alliansen eru
samtök 125.000 samvinnustarfs-
manna á norðurlöndum. KPA var
stofnað 1947 með þátttöku Dan-
merkur, Finnlands, Noregs og Sví-
þjóðar. Árið 1974 bættist svo ís-
land í hópinn, sem bæði var gleði-
legt og hvetjandi fyrir norræna
samvinnustarfsmenn.
1 hverju landi fer fram sjálfstæð
starfsemi, en sameiginlega bera
löndin ábyrgð á starfi milli land-
anna. Norræna samstarfið er m. a.
fólgið í vináttuvikum, íþróttamót-
um og skiptum á starfsreynslu.
Norrænt íþróttamót getur farið
fram á þann hátt, að með hverri
þjóð séu ákveðnir íþróttadagar, eða
að þátttakendur landanna samein-
ist til eins íþróttamóts. Vináttu-
vikur eru haldnar til að endur-
nvja og stofna til nýrra kynna milli
landanna. Pví hafa vináttuvikurn-
ar orðið mjög vinsælar og það ver-
ið auðvelt verk að fá 10 þátttak-
endur frá hverri þjóð. Markmið
vináttuvikanna er að kynna þátt-
takendum sérkenni gistilandsins og
samvinnustarfið þar.
Af öðru samstarfi má nefna tæki-
færi til að leigja orlofshús, klúbb-
heimili og því um líkt. Einnig
söng og tónleikahald með þátttöku
söngflokka og kóra frá löndunum
fimm.
Til að samræma starf norður-
landanna er norrænt ráð, en í því
eiga sæti tveir stjórnarmeðlimir frá
hverju landi. Ráðið kemur saman
tvisvar á ári og hefur framkvæmda-
stjórn, sem um þessar mundir er
búsett í Finnlandi.
Ef við svo að lokum lítum fram
á veginn, þá þarf starfið að halda
áfram, endurnýjast og aukast. Pað
getur gerst með að skipuleggja
starf á nýjum vettvangi, t. d. með
bréfaskiptum, frímerkjasöfnun, að
norrænir gestir gisti á einkaheim-
ilum, og fræðslu um starf starfs-
mannafélaganna í hverju landi fyrir
sig.
Petta er mjög stuttorð greinar-
gerð um norrænt samstarf og
hvernig þú sjálfur sem starfsmaður
samvinnufélags getur haft áhrif á
þróunina með því að taka þátt í
starfi KPA bæði í heimalandi þínu
og einnig á hinum norðurlöndun-
um.
Per-Inge Johansson.
Reidar Schau,
Noregi.
Vinátta er gulli
betri
Úr bréfi Reidars Schau til grj.
. . . Já, þú baðst mig að skrifa
eitthvað um KPA og því hef ég
ekki gleymt en það gengur illa að
hafa sig að verki. Ég hef ekki tek-
ið þátt í starfinu í mörg ár fyrr
en nú að ég var með á vináttuvik-
unni og því má vera að ég hafi
ekki að öllu leyti fylgst með því
sem er að gerast í dag.
Eins og þú e. t. v. hleraðir þá
var ég fyrir 10—15 árum í fjögur
skipti stjórnandi vetrarviku KPA
hér í Noregi. Pá komst ég að raun
um hversu gífurlega þýðingu það
hefur að hitta samvinnustarfsmenn
frá hinum norðurlöndunum. Að fá
tækifæri til að heyra um störf
þeirra og aðstæður á vinnustað, um
áhugamál þeirra og heimilislíf. 1
fáum orðum að kynnast siðum
annarra landa. Pegar ég átti þess
kost að fara til íslands undirbjó
ég ferðina með þetta í huga. Mis-
munurinn var hins vegar sá að við
hér vitum svo Títið um ísland og
íslendinga. En eins og þú .Varst var
við, þá spurði ég og leitaði og fékk
svör. Á þessum skammá tíma sem
ég var á íslandi kynntist ég íslend-
ingum dálítið, og varð ekki fyrir
vonbrigðum. Við erum nefnilega
líkari að skapferli og framkomu
en aðrir norðurlandabúar.
Pegar við nú loksins höfum hist
og erum farin að þekkja hvert
annað er það viðburður og áfangi
í starfi KPA. Nú störfum við sam-
an öll fimm löndin, það er okkur
mikil ánægja og eftirleiðis skal
sambandið vara. Petta hefur verið
von min um margra ára skeið.
Pessa ánægju yfir að hitta ís-
lendinga eigum við norðmenn ef-
laust sameiginlega með norrænum
félögum okkar sem, eftir því sem
mér skildist, voru yfir sig hrifnir
af ferðinni. Á þessari viku fund-
um við það bræðralag og þau
tengsl hvort við annað sem við
hefðum ekki fundið að öðrum
kosti. Við bjuggum saman, snædd-
um saman, drukkum saman og alla
stund blönduðum við geði saman.
Nú hef ég gefið þér dálítið inn-
sýn í áhrif þess sem tengir okkur
gegnum hin daglegu störf. Vilt þú
bera kveðju mína til íslensku vin-
anna, veri þeir velkomnir á heim-
ili mitt þegar þeir eiga leið um
Osló. Pakka ykkur öllum ótrúlega
gestrisni og vináttu sem er gulli
betri.
Reidar.
8 HLYNUR