Hlynur - 15.06.1975, Side 14
Fulltrúar á fundi KPA-ráðsins. Sitjandi frá vinstri: Hdkan Smeds, Finnlandi, Ester överbye, Noregi, Torsten
Lindholm, Finnlandi og Hans J. Iversen, Danmörku. Aftari röð frá vinstri: Pálmi Gíslason, Chr. Harritz,
Danmörku, Reynir Ingibjartssori, Hdkan Arvidsson, Svíþjóð, Sverre Sundt, Noregi, Per-Inge Johansson, Svíþjóð
og Gunnlaugur P. Kristinsson.
Fyrsti fundur K.P.A.- ráðsins á íslandi
Samhliða vináttuviku norrænna
samvinnustarfsmanna hérlendis
dagana 27. júní til 4. júlí s. 1. var
haldinn hér fyrsti fundur KPA
ráðsins og sá fimmtugasti og þriðji
frá stofnun þess. Var fundurinn
haldinn að Bifröst og Laugarvatni.
Af LÍS hálfu sátu fundinn þeir
Gunnlaugur P. Kristinsson, Pálmi
Gíslason og Reynir Ingibjartsson.
Dönsku fulltrúarnir voru Hans J.
Iversen, formaður KPA í Dan-
mörku og Chr. Harritz, frá Noregi
Sverre Sundt, formaður KPA þar
og Ester överbye, frá Svíþjóð Há-
kan Arvidsson, formaður KPA í
Svíþjóð og Per-Inge Johnsson, fyrr-
um starfsmaður KPA í Svíþjóð og
frá Finnlandi Torsten Lindholm,
núverandi formaður KPA ráðsins
og Hákan Smeds, formaður KPA
í Finnlandi og núverandi ritari
KPA ráðsins, en miðstöð þess er
nú í Finnlandi.
Starfsemi KPA deildanna
Á fundum sem þessum er jafn-
an gerð grein fyrir starfi hvers
sambands fyrir sig frá síðasta fundi
og næstu verkefnum. Nú sem jafn-
an fyrr voru Svíar athafnasamast-
ir. Par skipa íþróttirnar æðstan
sess og haldin eru landsmót í
fjölda greina. Má þar nefna: hand-
bolta, badminton, hjólreiðar, skíði,
borðtennis og skotfimi. Pá njóta
ferðalög og fjallgöngur mikilla vin-
sælda. KPA í Svíþjóð annast leigu
á orlofshúsum sumar sem vetur
bæði á heimaslóðum og á Italíu.
S.l. vetur var byrjað að senda
KPA-nytt, sem kemur út mánaðar-
lega til allra hinna Norðurland-
anna og er það nú í reynd frétta-
blað fyrir samvinnustarfsmenn og
samtök þeirra á öllum Norður-
löndunum. Eiga Svíar miklar þakk-
ir skyldar fyrir sitt frumkvæði og
forystu.
Bæði í Noregi og Finnlandi var
mikið um íþróttastarf á vegum
KPA. I Finnlandi var hafin útgáfa
á fréttablaði og gert átak í að
kynna KPA meðal samvinnustarfs-
manna. Ársþingið var svo haldið
um borð í m/s ,,Aallotar“ fyrir
1975. Danska KPA deildin hefur
átt í nokkrum erfiðleikum undan-
farin ár, skort fjármagn og mikill
fjöldi starfsmanna ekki verið í
KPA. S. 1. ár hefur verið ár end-
urskipulagningar og taldi formaður
þeirra, Hans Iversen að góðar horf-
ur væru á að nýtt líf færðist í
allt þeirra starf á næstunni.
Vináttuvikur í Danmörku, Finn-
landi og Noregi 1976
Mikilvægasti og vinsælasti þátt-
urinn í samstarfi KPA deildanna
á undanförnum árum hafa verið
vináttuvikurnar. Á s. 1. sumri var
slík vika haldin í Finnlandi eins
14 HLYNUR