Hlynur - 15.06.1975, Síða 15
Og skýrt var frá í 8. tbl. Hlyns í
fyrra. Næsta sumar eða í seinni
hluta júlí verður haldin vináttu-
vika í Pieksámáki, sem er lítill
ferðamannabær í Austur-Finnlandi,
sem ýmsir telja fegursta hluta Finn-
lands. Viku seinna verður svo vin-
áttuvika í Danmörku, nánar í
Middelfart á Fjóni við Litlabeltis-
brúna, en þar er verslunarskóli
dönsku samvinnufélaganna. Norð-
menn halda svo vináttuviku í lok
mars næsta vetur í Dambás, sem
er ofarlega í Guðbrandsdalnum eða
nánast í Dofrafjöllunum. Slíka
viku héldu Norðmenn einnig s. 1.
vetur en því miður voru þar engir
íslendingar og er þátttaka í vin-
áttuviku á þessum tíma nánast ó-
framkvæmanleg nema til komi önn-
ur og skaplegri fargjöld milli landa
og verður komið að því síðar. —
Nokkuð var rætt um þátttöku-
gjöld á þessum vikum og þótti
sumum það gjald, sem tekið var
fyrir vináttuvikuna hér nokkuð
hátt en það var fimm hundruð
krónur sænskar. Mun verða stefnt
að því að það geti orðið um 300
kr. sænskar á vináttuvikunum
næsta sumar.
Skipti á orlofsaðstöðu
og samskipti einstakra
starfsmannafélaga
Eitt aðalumræðuefni fundarins
nú var að ræða möguleika á að
koma á beinum samskiptum milli
einstakra starfsmannafélaga og
klúbba. Er hér um að ræða sam-
skipti félaga, sem landfræðilega
hafa góða aðstöðu á samskiptum
t.d. í Nordkalotten, þ. e. norður-
byggðum Svíþjóðar, Noregs og
Finnlands eða á milli Skánar og
Sjálands. Einnig og ekki síður
milli félaga, sem hafa áhuga á
sömu hlutum s. s. skiptum á or-
lofsaðstöðu, keppni í íþróttum og
fleiru t. d. fótbolta, bridge og
skák eða á menningar- og fræðslu-
sviði. Var samþykkt að kanna í
hverju landi fyrir sig að fá a. m. k.
2—3 félög til að taka upp bein
samskipti og koma þessu í kring
á næsta ári ef nægur áhugi væri til
staðar.
Kveðja frá
í fyrsta sinn tekur Island þátt
í norrænu samstarfi innan KPA
(LÍS). Fyrir okkur þátttakendur
hefur það verið undursamlegur við-
burður að kynnast landi og þjóð
því hvar sem við höfum komið
hefur okkur mætt frábær hlýja,
bæði úr iðrun jarðar og frá fólk-
inu, sem hér býr.
Ekki er vafi á því að skipti á
orlofsaðstöðu mun njóta sívaxandi
vinsælda á næstu árum. Bíða hér
mikil verkefni íslenskra samvinnu-
starfsmanna og mun þá koma sér
vel sú aðstaða, sem er að skapast
að Bifröst. Samvinnustarfsmenn á
hinum Norðurlöndunum hafa að-
gang að mikilli orlofsaðstöðu, eink-
um í Svíþjóð og Noregi.
Niður með fargjöldin
milli Norðurlandanna
íslendingarnir lögðu fram til-
lögu á fundinum þar sem skorað
er á Norðurlandaráð og yfirvöld í
hverju landi, að beita sér fyrir
lækkuðum fargjöldum milli Norð-
urlandanna, svo þau verði a. m. k.
sambærileg við þau fargjöld, sem
nú tíðkast til sólarlanda. Var til-
lagan samþykkt samhljóða og síð-
an send viðkomandi aðilum. Pað
er orðið algerlega óverjandi að
miða fargjöld milli Norðurland-
anna við áætlunarflug nær ein-
göngu og er þetta vandamál ekki
aðeins íslenskt, heldur meira og
minna einn aðal þrándur í götu
hagkvæmra ferðalaga milli ann-
arra Norðurlanda. Var rætt um
það í gamni þó, að ódýrast væri
að halda t. d. vináttuvikurnar á
Mallorca eða Costa del Sol.
Næsti fundur í Noregi að vori
Pað hefur verið venja undan-
farin ár að KPA ráðið hittist tvisv-
ar á ári. Samþykkt var að halda
ekki annan fund í ár en hittast
Danmörku
Pegar við komum heim munum
við hafa frá miklu að segja. Og
okkur segir svo hugur um, að það
verði kapphlaup um að komast
með þegar næst verður haldin vin-
áttuvika á íslandi.
næst í Osló í maíbyrjun 1976. Pá
var Torsten Lindholm endurkjör-
inn formaður KPA til næsta árs
og Hákan Smeds ritari og miðstöð
KPA því í Finnlandi til næsta árs.
Pótt nú hefði verið haft samflot
með vináttuviku með fundartíma,
þá var ekki talið eðlilegt að gera
svo framvegis. Reyndar gekk illa
að finna nægan tíma til fundar-
halda nú og var fundinum ekki
endanlega slitið fyrr en rétt fyrir
brottför frá Laugarvatni þann 2.
júlí. Segja má að með fundi þess-
um og vináttuvikunni hafi fyrst
reynt á það, að við landarnir vær-
um fullgildir þátttakendur í því
norræna samstarfi, sem tíðkast hef-
ur hjá kollegum okkar í meira en
aldarfjórðung. Pótt ýmislegt hafi
að sjálfsögðu mátt betur fara, þá
má fullyrða, að þeir rúml. 50
frændur okkar, sem héldu af landi
brott aðfaranótt 4. júlí s. 1. hafi
farið með góðar minningar og hlýj-
an hug til þessa útskers í vestri
sem land okkar er. Og ekki aðeins
það, heldur ýmsu fróðari um okk-
ar samvinnustarf og þjóðfélag í
heild. Pökk sé frábærum leiðsögu-
mönnum og áhugasömum hlust-
endum. Peir sem eiga eftir á næst-
unni að taka þátt í þessu norræna
samstarfi eiga örugglega eftir að
njóta þeirrar innstæðu, sem við
höfum eignast hjá vinum okkar og
samherjum handan hafsins, og það
er gleðilegt að við getum á stund-
um verið gefendur en ekki alltaf
þyggjendur.
Pátttakendur frá
Danmörku.
HLYNUR 15