Hlynur - 15.06.1975, Page 16
Samvinnustarf í
Tanzaníu
— viðtal við Baldur Óskarsson.
1 Austur-Afríku skammt sunnan
miðbaugs við strönd Indlandshafs
er Tansanía. 939.700 km2 að flat-
armáli með 15 milljón íbúa og 130
þjóðflokka. Ef við lítum á landa-
bréfið þá sjáum við, að landamær-
in eru til suðurs að Mosambique,
síðan kemur Zambía, Ruanda, Bur-
undi, Zaire, Uganda og Kenýa. Eru
mörg þessara nafna kunn úr frétt-
um síðustu mánaða og daga. Hið
mikla Viktoríuvatn gengur inn í
landið að vestan og nyrst gnæfa
tindar Killimanjaro.
Landið hlaupt sjálfstæði árið
1961 en laut áður stjórn Breta.
Pjóðhöfðingi er Júlíus Nyerere,
sem er kunnur hugmyndafræðing-
ur í þriðja heiminum, hann er
einnig leiðtogi TANU flokksins,
eða einingarflokks Tansaníu, sem
jafnframt er eini stjórnmálaflokk-
ur landsins. Stjórnarfarið er sósíal-
istiskt og land og atvinnuvegir að
mestu þjóðnýttir. Er stefnt að því,
að aðalatvinnuvegur landsins, land-
búnaður verði að fullu þjóðnýttur
fyrir árslok 1976.
Tansanía er eitt af 20 fátækustu
löndum í heimi. Stærsta borgin er
Dar Es Salaam með 500 þús. íbúa
en annars er engin borg með yfir
100 þús. íbúa. Borgirnar eru mið-
stöðvar þjónustu og stjórnsýslu og
þar eru menntastöðvarnar, að öðru
leyti er þar einungis stundaður
smá iðnaður. Meiri hluti fólksins
er ólæs og óskrifandi en gert ráð
fyrir, að ólæsi verði útrýmt innan
tíu ára.
Sem áður segir er landbúnaður
aðalatvinnuvegurinn og búa 95%
þjóðarinnar í sveitum og er stefnt
að því, að allir verði búsettir í
samyrkjubúum, ,,ujamaa.“ Aðallega
er stunduð kornrækt enda er höf-
uðfæðan maísmjöl og soyjabaunir,
en kjötmeti og fiskur er lítill hluti
af fæðu landsmanna.
1 þessu landi hefur Baldur Ósk-
arsson búið með fjölskyldu sinni
síðan í ársbyrjun 1974 og mun
Baldur og Gulltoppur.
búa þar til næstu áramóta. Pau
búa í borginni Moshi í Chagga-
landi. Petta er borg með 40 þús-
und íbúa í hlíðum Killimanjaro og
þýðir nafn borgarinnar ,,reykur“.
Parna er aðsetur Samvinnuskóla
landsins, sem síðan hefur nokkurs
konar útibú um landið. í Tansaníu
hafa norðurlandabúar um margra
ára skeið unnið að ýmsum upp-
byggingarstörfum og fannst okkur
því við hæfi þegar Baldur var
staddur hér á landi í sumarleyfi
sínu að taka hann tali og segist
honum svo frá:
Norðurlöndin aðstoða
Par er þá fyrst til að taka, að ég
Baldur í hópi kaupfélagsstarfsmanna, sem stundað
hafa nám í bréfaskólanum. Myndin er tekin fyrir utan
kaupfélagsbarinn þar sem menn koma gjarnan saman
að kvöldi dags til þess að hressa upp á andann. Eins
og myndin ber með sér er barinn með veglegri húsum.
Formaður kaupfélagsstjórnarinnar í þorpi einu í
Mbeyahéraði fagnar komu Baldurs með heimabrugg-
uðu öli, en eins og góðum gestgjafa sæmir smakkar
hann fyrst á ölinu áður en skálin gengur til næsta
manns.
16 HLYNUR