Hlynur - 15.06.1975, Side 19
ýmissa samvinnufyrirtækja og
kynna sér starf þeirra og rekstur.
I samráði við Gunnar Grímsson
starfsmannastjóra eru þau fyrir-
taeki valin, sem menn vilja fara
í. Þvi miður er ekkert markvisst
skipulag á þessu og mér er ekki
grunlaust um, að víða sé þetta
fólk notað sem hentugur vinnu-
kraftur, sem rekur á fjörur fyrir-
tsekjanna. Svo er verið þrjá mán-
uði í viðskiptafræðideild Háskól-
ans og loks sex vikur í Bifröst.
En hvers vegna hafa konur
ekki fyrr farið i framhaidsndm-
iöf
Því get ég ekki svarað. Mér
var boðið þetta nám eftir að haft
var samráð við Gunnar Grimsson
og fannst það áhugavert og hóf
námið haustið 1973. Sennilega hef
ég átt að vera tilraunadýr til að
sanna, að kona gæti sloppið jafn
vel frá náminu og karlmaður.
1 hvaöa fyrirtækjum varst þú?
Ég hef líklega ferðast minnst
þeirra, sem farið hafa í fram-
haldsnámið. Ég var hjá Dráttar-
vélum hf. og svo í Sambandinu,
fyrst í launabókhaldi og svo i
aðalbókhaldi. Þetta er svo skamm
ur tími, að ekki er hægt að fara
viða, þvi varla er hægt að kynn-
ast starfinu hjá neinu fyrirtæki,
nema vera þar i a. m. k. þrjá
mánuði. Mér fannst ég líka þekkja
nokkuð starfsemi kaupfélaga, því
ég hef unnið i kaupfélaginu á
Borðeyri öll sumur síðan ég var
fjórtán ára og einn vetur að auki.
Hvernig féll þér há-skólanámiö f
Heldur fannst mér það tilgangs-
litið. Maður fær að koma þarna
inn og fylgjast með, en er i raun-
inni ákaflega réttindalítil persóna.
Ég gat valið í hvaða bekk ég
fylgdist með og gerði þau mis-
tök að fylgja stúdentum á fyrsta
ári, sem er ákaflega þurrt nám,
en mér virtist það vera líflegra
eftir því sem lengra kom. Það
er svo annar handleggur, að mér
sem aðeins hef verið í heima-
vistarskóla, kom háskólaandinn
heldur spánskt fyrir sjónir.
Menn mæta í tímum þegar þeim
hentar og ekki aðeins það, heldur
rápa þeir út og inn í tímunum
eftir vild. Þetta heitir víst aka-
demiskt frelsi, en þessi sífelldi
gegnumtrekkur hlýtur að trufla
bá, sem raunverulega vilja læra.
Þú hefur sennilega kunnaö het-
ur viö Bifröstf
Jú, þó það væri dálítið skrítið
að vera komin í einkakennslu hjá
kennurum, sem ég hafði áður
lært hjá í fjölmennum bekk. En
á þann hátt fæst líka meira út úr
náminu, það er hægt að spyrja
meira og fara nánar út í hlutina
heldur en þegar lært er í stórri
heild og gagnið því meira. Ann-
ars lærði ég sex fög og það var
tveggja tíma kennsla í viku í
hverju fagi og svo tók ég próf
úr öllu saman.
Þú kenndir líka i skóianum,
hvernig var þaöt
Ég hafði nú aðeins komið nærri
kennslu áður, því ég hafði kennt
dálítið einn vetur í barnaskólan-
um heima í sveitinni, og hét Því
þá að kenna aldrei aftur. 1 Bif-
röst gekk þetta miklu betur, iþar
var ég aðstoðarkennari í bók-
færslu og ég vona, að þeir sem
ég sagði til hafi haft einhvert
gagn af því. Ef áhugi er fyrir
hendi á því sem verið er að
kenna, hlýtur einhver árangur að
verða af kennslunni og það að
komast til skila, sem kennarinn
er að reyna að segja.
Mér skilst aö þetta sé nokkuö
laust í reipunum, er þá nokkuö
gagn i þessu rjáli milli fyrirtækjat
Jú, mér finnst mikið gagn í
þessu og raunverulega meira
gagn, en að sitja á skólabekk
jafn langan tíma. Það er aldrei
hægt að læra allt af bókum, sem
unnt er að kynnast í daglegu lífi
og þó ekki væri annað er þó
alltaf lærdómsríkt að kynnast
góðu fólki. Eins og ég sagði, er
skipulagið of lítið á þessu námi
og árangurinn er fyrst og fremst
undir manninum sjálfum komið
og hvað hann er duglegur að
vera með nefið niðri í öllu í fyrir-
tækinu, sem hann vinnur hjá
hverju sinni, og auðvitað lika
komið undir skilningi forráða-
manna fyrirtækisins. Ég þarf
engu verkefni að skila nema próf-
unum á Bifröst, en fæ einhverja
pappíra um, að ég hafi stundað
þetta nám en víst engan starfs-
titil. Ég fæ kaup meðan á nám-
inu stendur, þó sennilega sé það
ekki fullt taxtakaup, en ég held
því meðan ég er í skólunum.
Hygguröu svo á kaupféiags-
stjórastarff
Nei, ekki að svo komnu máli.
Annars held ég, að þó þetta nám
sé hugsað til að mennta fólk til
ábyrgðarstarfa í samvinnufélög-
unum, að mjög fáir séu kaupfé-
lagsstjórar og sennilega fæstir
þeirra ílengst hjá samvinnuhreyf-
ingunni. Það er eflaust fyrst og
fremst af því, að lítil fyrirtæki
borga betur en stór, enda er hæg-
ara að pressa á kaupið hjá þeim.
Hvaö er svo framundan þegar
náminu lýkur 1. maíf
Ég ætla að vera heima norður
í Hrútafirði í sumar. Ég hef
aldrei á æfinni fengið sumarfrí
og síðan um fermingu hef ég
raunverulega ekki séð sumarið
nema í gegnum glugga. Og í því
ágæta veðri, sem var í fyrra sum-
ar var ég í fjóra mánuði versl-
unarstjóri norður á Brú, og þar
var sko nóg að gera. í meira en
mánuð gerði ég ekkert nema að
vinna og sofa.
JEtli þú veröir ekki lika gift
og komin meö barn í fangiö áö-
ur en nokkur veit aff
Auðvitað getur það gerst, en ég
vona að ég þurfi ekki að grafa
mig yfir pottum og pönnum. Hús-
verkin eru nauðsynleg störf, sem
þarf að gera, en eiga að hvíla
jafnt á báðum hjónum. Það verð-
ur heldur ekki breytt Því eðli
konunnar að eiga börn og ann-
ast um þau. Hins vegar er hverri
konu hollt að vinna úti a. m k.
hálfan daginn, en þar er sá hæng-
ur á að erfitt er að fá gott starf
nema skila fullum starfsdegi.
En aö lokum, þegar þú hefur
slappaö af í sumar, hvaö ætlar þú
aö gera í haustf
Að vori skyldi enginn ákveða
haustið.
>jrj
HLYNUR 19