Hlynur - 15.06.1975, Page 24
að svona í tilefni hins margþvælda
kvennaárs, þá getur að líta í
bæklingnum „who is who in
Samband“ nöfn 99 manna, sem
gegna einhverju trúnaðar- og
ábyrgðarstarfi innan samvinnu-
hreyfingarinnar og af þessum
99 er einn kvenmaður, Guðrún
Hallgrímsdóttir matvælaverk-
fræðingur og forstöðumaður til-
raunastofu Búvörudeildar Sam-
bandsins.
að Sigurður Jónsson, verslunar-
ráðunautur, formaður Starfs-
mannafélags Sambandsins og
ritstjórnarmaður Hlyns mun
fara til Tanzaníu á næstunni til
starfa við þróunaraðstoð. Bald-
ur Óskarsson, sem viðtal er við
í Hlyn mun hins vegar vænt-
anlegur heim fyrir áramót.
Flestir aðrir, sem fóru utan
fyrir tæpum tveimur árum til
Kenía og Tanzaníu munu hins
vegar ætla að framlengja dvöl
sinni.
að Starfsmannafélag verksmiðja
Sambandsins á Akureyri hefur
keypt eitt af orlofshúsum
Starfsmannafél. Sambandsins í
Reykjavík að Bifröst. Jafnframt
á Starfsm.fél. verksmiðjanna
eitt hús í byggingu að Bifröst
í þeim áfanga, sem þar er ver-
ið að reisa.
að gengið hefur verið frá aðild 6
félagasamtaka að Bréfaskólan-
um og er skólastjórn hans nú
þannig skipuð. Frá Samband-
inu: Axel Gíslason, Gunnlaugur
P. Kristinsson og Ólafur Sverr-
isson. Frá ASÍ: Bolli Torodd-
sen, Stefán Ögmundsson og
Pórunn Valdimarsdóttir. Frá
B.S.R.B.: Birna Bjarnadóttir.
Frá Farmanna -og fiskimanna-
sambandi Islands: Daníel Guð-
mundsson. Frá Kvenfélagasam-
bandi íslands: Sigríður Thorla-
cius. Frá Stéttarsambandi
bænda: Árni Jónasson. Skóla-
stjóri Bréfaskólans er sem
kunnugt er Sigurður A. Magn-
ússon .
að meðal námsefnis frá skólanum
má nefna fjögur ný tungu-
málanámskeið þar sem náms-
efnið er miðað við nám eftir
kassettum og hæfir vel námi í
leshringjum. Tungumálin eru:
enska, þýska, spænska og
sænska. Nýtt námsefni er kom-
ið út um: námstækni, bók-
færslu, verslunarstörf og ís-
lenska málfræði. Pá er væntan-
legt námsefni m. a. um: bók-
menntir, mannfræði, vistfræði,
stærðfræði, hjálp í viðlögum,
og auglýsingateiknun.
að starfsmannafélögin í Búðardal
og á Vopnafirði hafa keypt sér
hjólhýsi til að gefa félögum
sínum kost á orlofsdvöl.
að Kaupfélag Dýrfirðinga verður
ekki með í byggingu Vestfjarða-
húss að Bifröst, en hefur hins
vegar í hyggju að byggja hús
á landi félagsins í botni Dýra-
fjarðar, þar sem er eitt fegursta
útivistarland á Vestfjörðum.
að Kaupfélag Árnesinga gaf á síð-
asta aðalfundi sínum 500 þús.
krónur til byggingar orlofshúss
fyrir starfsmenn.
að Páll H. Jónsson fyrrum for-
stöðumaður Fræðsludeildar
Sambandsins og kennari að
Laugum hefur skilað handriti
að ævisögu Hallgríms Kristins-
sonar en á næsta ári eru liðin
100 ár frá fæðingu hans.
að Sveinn Skorri Höskuldsson
prófessor vinnur nú að ævisögu
Benedikts Jónssonar frá Auðn-
um og Andrés Kristjánsson er
að taka saman sögu Kaupfé-
lags Pingeyinga. Mun hugmynd-
in að þessar bækur komi út á
hundrað ára afmæli Kaupfélags
Þingeyinga árið 1982.
að fullbókað hefur verið nær alla
daga og vikur að sumarheim-
ili samvinnumanna að Bifröst
í sumar. Hefur sú breyting,
sem gerð var á rekstrinum s. I.
vor mælst mjög vel fyrir m. a.
voru þar nýlega gamlir Sam-
vinnuskólanemendur, og munu
flestir hafa ætlað að panta aft-
ur að ári.