Hlynur - 15.10.1983, Page 33
Kynning
á aðildarfélögum LÍS
Starfsmannafélag
Sambandsins, Reykjavík.
Stofnað 10. 5. 1937.
Fyrsti formaður: Ragnar Ólafsson.
Núverandi stjórn: Formaður Katrín Marísdóttir,
fræðsludeild, varaformaður Dagbjört
Bjarnadóttir, innflutningsdeiid, gjaldkeri Jóhann
Steinsson, búvörudeild, ritari Kári Valvesson,
skipadeild, spjaldskrárritari Þröstur Karlsson,
kerfisdeild.
Fulltrúi í stjórn Sambands ísl. Samvinnufélaga
er Þröstur Karlsson með málfrelsi og tillögu-
rétti.
Kjörnir eru 18 öryggistrúnaðarmenn fyrir 30
yinnustaði.
Arlega er kosið fulltrúaráð á vinnustöðum.
Skipa það 32 fulltrúar og kjósa þeir sér
skipulagsráð.
Fulltrúi í hússtjórn Hamragarða er Svala
Guðjónsdóttir.
Bulltrúi í Landvernd er Anna Ásgrímsdóttir,
Bormaður Orlofshúsanefndar og í stjórn
fulltrúaráðs orlofsheimila að Bifröst er Jóhann
Steinsson.
Bélagar eru 990. Flestir starfsmenn eru félag-
ar.
Helstu vinnustaðir eru: Sambandshúsið,
Afurðasala og Kjötiðnaðarstöð Kirkjusandi,
Holtagarðar, Ármúli 3, Höfðabakki 9,
Bættarvélar hf., Edduhúsið, rafvélaverkstæðið
Jötunn, Torgið, Herraríki, Gefjun Snorrabraut,
Kirkjusandur, Meitillinn Þorlákshöfn og
UHarþvottastöð Hveragerði.
Bélagið hefur aðstöðu fyrir fundi í funda- og mat-
sölum á vinnustöðum og í Hamragörðum. Árhátíð
er haldin að Hótel Sögu í janúar. Einnig jólatrés-
skemmtun fyrir börn félagsmanna, jólabingó hald-
1 Holtagörðum. farnar leikhúsferðir og haldnir
öansleikir.
Knattspyrna er stunduð utan- og innanhúss,
171 ■ a- haustmót í innanhússknattspyrnu. Einnig
öandbolti. Félagið tekur þátt í sveitakeppni
Hamragarða í skák. Bridgekeppni við KEA,
ísal og þátttaka í tvímenningskeppni
Hamragarða. Félagið tekur þátt í námskeiðum
og öðru starfi Hamragarða og námskeið eru
fyrir öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði.
Fréttabréf er gefið út nokkrum sinnum á ári.
Félagið á 10 orlofshús að Bifröst sem tekin
voru í notkun 1974, hvert hús er 50m2 að
stærð.
Félagsmenn hafa afslátt 5-10% hjá rúmlega
40 fyrirtækjum og aðgang að starfsmanna-
verslun á Kirkjusandi.
Stjórn Starfsmannafélags Sambandsins f. v.: Dýri Guðmunds-
son í varastjórn, Jóhann Steinsson, Kári Valvesson, Katrín
Marísdóttir, Dagbjört Bjarnadóttir og Kristinn Gunnarsson í
varastjórn.
HLYNUR
33