Hlynur - 15.10.1983, Qupperneq 48
Núverandi stjórn: Fremri röS 1. v.: Helga Hilmarsdóttir, Alda
Friðriksdóttir og Bára Björnsdóttir. Aftari röð f.v.: Birgir Marin-
ósson, Sigurður E. Einarsson, Júlíus Thorarensen og Bjarni
Jónsson.
Stjórn Sf. Kf. Svalbarðseyrar f.v.: Þröstur Ó. Kolbeins, Eiður
Eiðsson og Einar Kristjánsson.
Félagar eru 705. Nær allir starfsmenn eru fé-
lagar.
Helstu vinnustaðir eru: Iðnaðardeild
Sambandsins Akureyri, Plasteinangrun hf.
Akureyri og Ylrún, Sauðárkróki.
Félagið hefur til umráða sal, með eldhúsi og
leiksviði, sem rúmar um 220 manns í sæti,
og einnig sal m. a. fyrir leiktæki.
Haldnar eru 3 árshátíðir, jólatrésskemmtun og
áramótagleði. Einnig skemmtikvöld með ýmsu
sniði, leikstarfssemi, kvikmyndasýningar fyrir
börn félagsmanna o. fl.
Félagsmenn hafa stundað knattspyrnu og
tekið þátt í firmakeppni og keppt við SÍS í
Reykjavík. Einnig stundaður handbolti og
golf. Keppt í golfi við Slippstöðina.
Haldin hafa verið félagsmálanámskeið,
leiklistarnámskeið, gítarnámskeið, vísnanám-
skeið og hnýtinganámskeið.
Félagið gefur út Fréttabréf S. V. S.
Félagið á tvö orlofshús að Bifröst sem tekin
voru í notkun 1976 og 1982, hvort hús er
50m2 að stærð.
Starfsmenn fá afslátt af framleiðsluvörum Iðn-
aðardeildar.
Félagið hefur sinnt málefnum aldraðra með
þjónustu á heimilum þeirra og samkomuhaldi.
Starfsmannafélag
Kf. Svalbarðseyrar,
Svalbarðseyri.
Stofnað 18. 3. 1977.
Fyrsti formaður: Eiður Eiðsson.
Núverandi stjórn: Formaður Eiður Eiðsson,
gjaldkeri Einar Kristjánsson, ritari Þröstur Ó.
Kolbeins.
Öryggistrúnaðarmenn eru Elín Skúladóttir og
Þröstur Ó. Kolbeins.
Félagar eru 57. Flestir starfsmenn eru félag-
ar.
Helstu vinnustaðir eru: Skrifstofa og verslun,
frystihús, kjötvinnsla, kartöflugeymsla,
kartöfluverksmiðja, útibú á Fosshóli, í
Vaglaskógi og á lllugastöðum.
Aðstaða er fyrir fundi í mötuneyti kaupfélags-
ins.
Haldin er árshátíð. Einnig spilakvöld.
Farið er í ferð á hverju sumri.
Félagið hefur tekið þátt í firmakeppni
knattspyrnuráðs Akureyrar í knattspyrnu.
Félagið á eitt sumarhús í landi Háls í
Fnjóskadal tekið í notkun 1978, húsið er
30 m2 að stærð.
48
HL YNUR