Hlynur - 15.10.1983, Page 62
LITIÐINN HJÁ KVB
Kaupfélag Vestur-Barðstrendinga
var stofnað 1. janúar 1980 við sam-
einingu Kf. Patreksfjarðar, Kf.
Rauðasands og Kf. Arnfirðinga á
Bíldudal. Þann 1. janúar í vetur
bættist svo Sláturfélagið Örlygur á
Gjögrum í hópinn. Kaupfélagið er
nú með rekstur á Patreksfirði,
Bíldudal, Gjögri og Krossholti á
Barðaströnd. Þarna er fjalllendi mik-
ið og víða brattir vegir en fólk
þraukar í þessari byggð sem er sú
vestasta í Evrópu þar sem er
Breiðuvík og Látrar. Bjargið mikla er
líka á verslunarsvæði Kf. Vestur-
Barðstrendinga, þótt íbúar þess fari
sennilega sjaldan í kaupstað.
Þarna er starfandi þróttmikið
starfsmannafélag og er formaður
þess Rögnvaldur Bjarnason. Við
sóttum hann heim í sumar og hér er
árangurinn. Myndir frá Gjögri eru
annars staðar í blaðinu og því mið-
ur var búið að loka á Krossholti en
vonandi getum við birt myndir það-
an síðar.
Hér er hún Hera Guömundsdóttir við kassann i útibúinu á
Bíldudal að afgreiða heimafólk. Ekki vitum við hvort hún er að
hía á Ijósmyndarann eða benda á hilluna með grunnvörunni.
Og enn erum við á Bíldudal. Þennan hressa „ungling" hittum
við þar. Hann heitir Ingólfur Valdimarsson og vinnur hin og
þessi tilfallandi störf.
Lilja Brét Björnsdóttir var i sumarafleysingum í útibúinu a
Bíldudal.
Þetta er „okkar maður" á Patreksfirði, það er Rögnvaldur
Bjarnason, skrifstofustjóri og jafnframt formaður starfsmanna-
félagsins.
62
HLYNUR