Skírnir - 01.10.2009, Page 203
SKÍRNIR
KLUKKAN HJÁ RÚSSUM VAR EITT
457
jur. Hindrik Siemsen-Ottósson; er þess getið hér eftir tilmælum"
(Dagsbrún 1919: 44). Hins vegar er torséð hvern annan lýsingin
gæti átt við. Má vera að bolséviki Dagsbrúnar sé uppdiktuð persóna
sem Ólafur, eða þeir Hendrik til samans, hafi lagt orð í munn.
Greinin „Klukkan hjá Rússum“ er að meginefni lýsing á bylt-
ingunni í Rússlandi og stjórn bolsévika þar — þ.e. kommúnista
eins og þeir voru um þetta leyti farnir að kalla sig. Frásögnin er
sýnilega rituð til að auka skilning á málstað byltingarinnar og
kommúnista. Þó er hún ekki einhliða hliðholl þeim, hrósar t.d.
borgaralega byltingarmanninum Kerenskij og leggur ekki endi-
lega trúnað á frásögn kommúnista þegar heimildir greinir á.
Síðasti hluti greinarinnar er beinn og stuttorður samanburður á
stefnu bolsévika og jafnaðarmanna, þ.e. að jafnaðarmenn vilji
„sigra á löglegan hátt... með atkvæðamagni" en hinir telji að „eina
leiðin sé ... uppreist" og „að verkalýðurinn einn taki öll völdin" í
byltingu. Þótt höfundur noti orðalagið „við jafnaðarmenn“ og
sýni þannig hvorum megin hann stendur, reynir hann að greina
hlutdrægnislaust frá málstað hvorra tveggja og ályktar: „reynslan
verður að sýna hverjir hafi réttara fyrir sér“ (Dagsbrún 1919: 51).
Fyrirsögnin „Klukkan hjá Rússum“ er ekki útskýrð í greininni
sjálfri fremur en bókarheitið „Klukkan var eitt“ 45 árum síðar.
Vafalaust er bókin þó kennd við sömu klukku og greinin því að til
samans eru titlarnir auðþekkt tilvitnun í ljóðlínu sem 1919 var
nógu alþekkt til að þarfnast ekki skýringar: en klukkan hjá Rúss-
um var eitt.
Það er Matthías Jochumsson sem yrkir, eða nánar sagt þýðir, því
að skáldið er Runeberg, þjóðskáld Finna.5 6 Hann hafði 1848 gefið út
fyrri hlutann af Fánrik Stáls ságner,b flokk þjóðernisrómantískra
söguljóða úr stríði Rússa og Svía 1808-09, en stríðið var mest háð á
finnskri grundu og lauk með því að Svíar töpuðu Finnlandi til
Rússa. Runeberg var því fæddur þegn Svíakonungs en orti ljóðin
5 Um Runeberg, verk hans og yrkisefni er hér stuðst við sænsku Wikipedíu,
sv.wikipedia.org, greinina Johan Ludvig Runeberg og aðrar sem þangað tengj-
ast.
6 Ljóðin á frummáli má finna á vefnum Project Runeberg undir runeberg.org/
fstal.