Fréttablaðið - 01.02.2017, Qupperneq 30
Tónleikar þar sem allir syngja
saman eru ekki algengir hér á
landi. Hinn ungi Rokkkór verður
með aðra slíka tónleika á laugardag
en færri komust að en vildu síðast,
slíkar voru undirtektirnar. Íris
Kristinsdóttir söngkona, best þekkt
úr hljómsveitinni Butter cup, er í
Rokkkór Íslands og meðal þeirra
sem syngja einsöng á tónleikun
um. Hún hefur verið í kórnum frá
því hann var stofnaður í apríl 2015.
Núna eru 37 félagar í kórnum og
segir Íris að félagsskapurinn sé
frábær. „Við hittumst einu sinni í
viku og það er alltaf skemmtilegt.
Maður fær útrás fyrir söngþörf
ina,“ segir Íris sem er löngu hætt
öllu hljómsveitar
stússi enda
móðir sex
barna, þar
af fjögurra
ára tv í
bura. „Ég
hef ekki
orku í að
syngja á
böllum
leng
ur en kórstarfið er mjög gefandi,“
bætir hún við.
„Á þessum tónleikum leggjum
við áherslu á þekkt lög frá áttunda
áratugnum. Allir geta sungið með
þar sem textunum verður varpað
á skjá fyrir ofan okkur. Fólk þarf
ekki að kunna textana. Þetta eru
lög eins og Hotel California með
Eagles, Stairway to Heaven með
Led Zeppelin, Bohemian Rhap
sody með Queen ásamt mörg
um fleiri frægum lögum.
Við vorum með tónleika
með þessari tónlist í
haust í Hörpu en þar
var ekki sungið með.“
Tóku hrausT-
lega undir
Í apríl í fyrra sett
um við upp „syngj
um saman“ tón
leika í Bæjar
bíói í Hafnarfirði
með lög frá ní
unda áratugnum
en nú verða lögin
frá þeim áttunda.
Það var ótrúlegt
hvað tónleika
gestir tóku vel og
hraustlega undir
í söngnum. Greinilegt að margir
hafa gaman af því að syngja. Fólk
hefur komið í bíó og sungið saman,
til dæmis á Mamma Mia, en ekki
oft á tónleikum,“ segir Íris.
Hljómsveitin er skipuð frábær
um tónlistarmönnum á borð við
Friðrik Karlsson, Davíð Sigur
geirsson, Eið Arnarsson og Pálma
Sigurhjartarson svo einhverjir séu
nefndir. Stofnandi kórsins, Matthí
as V. Baldursson, stjórnar fjölda
söngnum.
Rokkkórinn hefur sungið á árs
hátíðum og hann verður með bak
raddasöng á Hlustendaverðlaunun
um á föstudagskvöldið. „Við erum
miklir söngfuglar í þessum kór og
finnst skemmtilegt að láta raddir
okkar heyrast. Það eru margir frá
bærir söngvarar í kórnum. Svo er
gaman að fá raddir tónleikagesta
með okkur,“ segir Íris og bætir við
að þetta verði ótrúlega skemmtileg
ir tónleikar.
Elín
Albertsdóttir
elin@365.is
Íris er hér á sviði með Rokkkór Íslands.
Félagar í Rokkkórnum eru orðnir 37 þótt hann sé enn ungur.
söngfuglar
syngja saman
Allir geta fengið útrás fyrir sönggleðina í Austurbæ á
laugardagskvöldið þegar Rokkkór Íslands verður með svokallaða „Sing
along“-tónleika. Vinsæl lög frá áttunda áratugnum munu hljóma.
Síðumúli 31 - 108 Reykjavik - S: 562-9018 / 898-5618
info@arcticstar.is - www.arcticstar.is
SÆBJÚGNAHYLKI FYRIR HEILSUNA
Arctic star sæbjúgnahylki
innihalda yfir fimmtíu tegundir af
næringarefnum, og eru þekkt fyrir:
• Hátt próteininnihald og lágt fituinnihald
• Að minnka verki í liðum og liðamótum
• Að byggja upp brjósk og draga úr tíðni
liðskemmda
• Að bæta ónæmiskerfið
• Að auka blóðflæði
• Að koma í veg fyrir æðakölkun
• Að auka orku líkamans, stuðla að
myndun húðpróteins og insúlins
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA, Framleiðandi er
Arctic Star ehf. Allar nánari upplýsingar
fást á www.arcticstar.is
Arctic Star sæbjúgnahylki
Varan fæst í flestum apótekum,
heilsubúðum og hagkaupum.
• Nýtt útlit, öfl ugri og hljóðlátari
• Stiglaus hraðastýring ásamt
pulse rofa og 5 prógrömmum
• Uppskriftabók fylgir
Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is
Pro750 galdurinn á
bak við ferskt hráefni
Íris Kristinsdóttir,
best þekkt sem Íris
í Buttercup, syngur
með Rokkkór
Íslands.
ALLTAF VIÐ HÖNDINA
Þú getur lesið
Fréttablaðið í heild
sinni á Vísi og í
Fréttablaðs-appinu
... allt sem þú þarft
Þú færð appið á visir.is/fbl eða beint í gegnum
Allir tóku vel og
hraustlega undir
í söngnum.
Íris Kristinsdóttir
1 . f e b r ú a r 2 0 1 7 M I Ð V I K U D a G U r8 f ó l K ∙ K y n n I n G a r b l a Ð ∙ X X X X X X X X ∙ K y n n I n G a r b l a Ð V I Ð b U r Ð I r