Heimsmynd - 01.03.1991, Blaðsíða 21
Halldór^j
Asgrínisson:
Hvalaráðstefnur,
Kvalaráðstefnur,
v— hvort er þaðÚ
Steint
jrímur\
skrinukost hangi-
kjöt, magála, svið,
<99 ost, já ekta ost^
Á tímum „þjóðarsáttar“ brýna forystumenn í stjórnmálum, embcettis-og bankaherfi og atvinnulífi
sí og æ fyrir almenningi að herða ólarnar. Þjóðin ætlast til hins sama af þeim. Skýrsla forsætis-
ráðherra á Alþingi um ferðakostnað ráðherra og maka þeirra
síðastliðin tvö ár leiddi í Ijós 40 milljóna útgjöld á þessu
sviði. Sérreglur umferðir ráðherranna eru orðnar þannig að 41
forsætisráðherra viðurkenndi að kerfið væri orðið ferðahvetj-
andi. En eftir höfðinu dansa limirnir. Um allt kerfið eru
menn með auga á hverjum fingri að sjá sér út fastanefndir,
ráðstefnur og fundi, sem þeir geti sótt, og knýja á um greiðsl-
ur fyrir þau ferðalög sem gefi þeim tekjuauka í erlendum
gjaldeyri.
„Þetta er
orðið eitt
allsherjar rugl,“ sagði opinber embættismaður
sem á að fylgjast með þessum málum. „Þátttaka
okkar í alþjóðasamvinnu vex í allar áttir
eftirlitslaust. 90 prósent af þessum fundum
eru gersamlega ónauðsynleg á tímum póst-
fax og símafunda. Þátttaka Islendinga er
tíma- og fjárfrekari en nokkurrar ann-
arrar þjóðar vegna fjarlægðar okkar
frá meginlöndum. Við verðum að
skipuleggja alþjóðasamvinnu okkar
gaumgœfilega. Við erum að
senda fulltrúa frá mörgum
mismunandi stofnunum á
H! sömu fundi þar sem einn
dygði. Svo eigum við að taka
upp þá reglu að greiða allt
eftir reikningi að viðbættu
hóflegu skotsilfri. Afnema
dagpeningakerfi með fríðindum sem gerir það eftirsóknarvert að leggjast í
ferðalög af litlum og hæpnum tilefnum. “
Hér á eftir er skoðað hvernig reglurnar þróast frá því að miðast við
eðlilega greiðslu kostnaðar upp í að verða eftirsóknarverð fríðindi með
hóflegri blöndu embættisskyldna og hins Ijúfa lífs.
Jon ”
Baldvin:
Tilvera okkar
er undarlegt
ferðalag ..."