Heimsmynd - 01.03.1991, Blaðsíða 51

Heimsmynd - 01.03.1991, Blaðsíða 51
 vorum mjög ástfangin og leið vel árum saman. En það getur verið mjög erfitt að vera sjómannskona, sérstaklega þegar það er mikil drykkja í spilinu.“ Todmobile hefur skotist upp á stjörnuhimin íslenskrar popptónlistar á ótrúlega skömmum tíma. Verið er að leggja síðustu hönd á enska texta við lögin á síðari plötu þeirra en slíkir textar eru þegar til við þá fyrri. Andrea segir þau óhrædd við að reyna fyrir sér á erlendri grundu. Þau séu miklu heldur spennt en hrædd. Hún bend- ir á að það sé aðeins brot af íslenskum popphljómsveitum sem geti lifað af því að spila fyrir þennan litla mark- að. Tónleikar hjá Todmobile eru hins vegar mikið fyrirtæki og því dýrir. Að minnsta kosti þrettán manns þarf til að setja upp hverja tónleika. Það gefur því auga leið að hljómsveitin fer ekki í nema tiltölulega stuttar tónleikaferðir og aðeins þangað sem nokkurt þéttbýli er. „Okkur finnst við þurfa stærri markað og við viljum stærri markað. Við teljum að það sé ekki grundvöllur fyrir því að halda hljómsveit eins og Todmobile á floti hér næstu árin. Tónlist okkar er ekki eitthvert séríslenskt þjóðlagarokk og því teljum við okkur eiga erindi út fyrir landsteinana.“ Steinar Berg hefur unnið að því að koma hljómsveitinni á framfæri erlendis og hefur hvarvetna fengið mjög góðar undirtektir. Eitthvað hefur það þó vafist fyrir sumum til hvaða stefnu mætti flokka tónlist þeirra. „Það sem fólk heyrir á þessum tveim plötum er okkar stíll. Við erum hiklaust ánægð með það sem við höfum verið að gera. Ég get hins vegar ómögulega sagt fyrir um hvernig tónlist okkar á eftir að þróast í framtíðinni, annaðhvort fram á við eða að við förum að leita í eitthvað gamalt.“ Að sögn Andreu gengur samstarfið ágætlega. Þau reyna að hafa alla ákvarðanatöku sem lýðræðislegasta og skipta því sem þarf að gera nokkuð jafnt á milli sín. „Það verða vitan- lega alltaf einhverjir hagsmunaárekstrar. Við erum þrír mis- munandi einstaklingar, hver með sínar skoðanir, sem erum að reyna að vinna saman. Við erum alls ekki alltaf sammála. Stundum hitnar allhressilega í kolunum og menn verða reiðir en við erum sem betur fer það góðir vinir að það endar alltaf vel. Einhver verður að lúffa en það er sem betur fer ekki allt- af sá sami. Mér finnst það náttúrlega alltaf vera ég sem lúffa,“ segir Andrea og hlær. „En það er ekki þar með sagt að þeir Eyþór og Þorvaldur séu sammála mér þar.“ Rautt bárujárnshús við Grettisgötu var heimili Andreu fyrsta árið en hún er fædd í Reykjavík 1962. Hún flutti síðan ásamt foreldrum sínum, Jóhönnu Sigríði Guðmundsdóttur og Gylfa Svavarssyni, til Akureyrar. Á Akureyri bjuggu þau næstu fimm árin en fluttu þaðan til Akraness. Stöðugt bættist í barnahópinn og þegar Andrea varð 12 ára voru systkinin orð- in sjö. Andrea efast ekki um að það hefur haft mótandi áhrif á hana að vera elst sjö systkina. „Maður hafði mikinn félags- skap af svona stórum systkinahóp. Það var oft mikið fjör en líka hörkuslagsmál og rifrildi sem gátu orðið að tímabundnu hatri þegar verst lét.“ í stórum systkinahópi verður baráttan um athygli óneitanlega mikil. Tíu ára var Andrea farin að spila undir á orgel í sunnudagaskóla. I dag segist hún ekki skilja hvernig hún fór að þessu því hún hafi aldrei lært nema hálfan vetur á píanó, samhliða fiðlunámi. Andrea neitar því þó alfarið að það hafi verið einhver sviðsbaktería sem dreif hana til þessa, heldur segir hún að þetta hafi mest þróast vegna þeirrar miklu ánægju sem hún hafði af tónlistinni. framhald á bls. 85 „Á endanum var ég orðin svo reið að ég hvæsti á konuna og sagði henni að þegja. HEIMSMYND 51 HEIMSM1-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Heimsmynd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.