Heimsmynd - 01.03.1991, Blaðsíða 81
*
stóru og mjúku efrivör, Andie
Macdowell verður myndarlega, heill-
ynda stúlkan um hríð, Meg Ryan leikur
villtu stelpurnar sem Melanie Griffith
lagði grunninn að í Eitthvað villt\ Melan-
ie Griffith fær hins vegar tækifæri til að
leika ólík hlutverk. Laura San Giacomo
sérhæfir sig í druslulegu, óseðjandi villi-
köttunum, Ellen Barkin stelur öllum
kynæsandi dræsunum frá Theresu Rus-
sell, Madonna hættir að herma eftir
Marilyn Monroe vegna þess að hún gerir
sér grein fyrir að MM var betri leikkona
en M. Sigourney Weaver leikur löngu
kynlausu konurnar, Jamie Lee Curtis
mjóu skemmtilegu konurnar, Kathleen
Turner leikur freku, þungu og óánægðu,
fyrrverandi kynbomburnar, Isabella
Rosselini heldur áfram að reyna að
leika, en nær aldrei fullkominni afslöpp-
un (nema á ljósmyndum sem auglýsa
snyrtivörur). Kim Basinger þreytist á
kynbombuhlutverkunum en sleppur
aldrei undan útlitinu (að minnsta kosti
ekki í 91/2 ár) og Laura Dern, reynir eins
lengi og hún kemst upp með það, að
halda áfram á brautum kynþokkans sem
hún byrjaði að feta sig eftir í Trylltri ást;
óvenjulegt úthald hennar í þessari týpu
byggist á lögmálinu sem segir að maður-
inn fái aldrei leið á að fást við það sem
hann ekki nær fullum tökum á. Kvik-
myndavélarnar halda áfram að elska
andlitið á Michelle Pfeiffer, sérstaklega
þegar hún leikur nútímakonur, en sú
sem mestar vonir má binda við þegar
steypa á saman í eitt sígildri kvenlegri
fegurð og góðum leik er Amanda Pays
vegna þess að hún býr yfir karakterstyrk
sem fáar leikkonur hafa í dag.D
Signý. . .
framhald af bls. 89
Við einfaldlega uxum frá hvort öðru.
Vinkonur mínar, aðallega þær sem eru
ógiftar eða fráskildar, hvöttu mig til að
skilja en það er ekki auðvelt mál fyrir yf-
irlýsta kaþólikka. Mér fannst það skylda
mín að halda saman hjónabandinu til að
vernda aðstöðu barnanna minna. Auð-
vitað er hjónabandið fyrst og fremst til-
komið til að vernda rétt konu og barna
en oft er það þó samúðin með makanum
sem heldur því líka gangandi. Jafnvel
innan kaþólsku kirkjunnar ríkir ágrein-
ingur í afstöðunni til hjónabands og
skilnaðar. Guðfræðingar eru stöðugt að
rökræða þessi mál suður í Róm. Þegar
ég loksins skildi fannst mér þungu fargi
af mér létt. Síðustu árin fórum við hvort
í sína áttina en ekkert utanaðkomandi
þrýsti sérstaklega á okkur að taka þessa
ákvörðun."
ar til Signý varð ástfangin. „Ég hafði
þekkt hann í nokkrar vikur og einn
daginn hringdi ég í bróður minn, sem er
lögmaður, og spurði hann hvað maður
þyrfti að gera til að sækja um skilnað.
Hann sagði að maður þyrfti sáttayfirlýs-
ingu frá presti, skiptingu á forræði barn-
anna og skiptingu á eignum og skuldum.
Skömmu síðar gekk eiginmaður minn
inn í stofuna og ég bar upp erindið við
hann. Honum var hvergi brugðið og eftir
að við höfðum talað við prest, en það
var sá þáttur sem ég kveið mest fyrir,
gekk allt eins og í sögu. Börnin sýndu fá-
dæma skilning. Yngsta dóttir okkar, sem
er þrettán ára, sagði við mig: Mamma,
ykkur Melkorku hefur alltaf langað að
búa í Vesturbænum og mig langar að
fara í skóla þar, getum við ekki flutt
þangað? Miðbarnið, fimmtán ára sonur
okkar, vildi ljúka skólanum í Kópavogi
og ákvað að búa hjá pabba sínum. Þann-
ig má segja að krakkarnir hafi leyst þessi
mál fyrir okkur og allir unað glaðir við.
Skiptingin á eignum og skuldum gekk
einnig hnökralaust. Við gengum um
íbúðina og sögðum: þú færð þetta og ég
LANCÖME
FORTE-VITAL
SERUM
Geldropar meö
þrefalda virkni.
Gera húöina
stinnari, veita
raka og byggja
upp húövefina.
LANCÖME
PARIS