Litli Bergþór - jul. 2018, Síða 4
4 Litli-Bergþór
VélaVerkstæði
Guðmundar oG lofts ehf.
Hestamannafélagið Logi
Ársskýrsla 2017
Aðalfundur var haldinn 11. maí 2017 á kaffi
Mika. Þar urðu nokkrar breytingar á stjórninni.
Helga María Jónsdóttir tók við gjaldkerastöðunni
af Líney Kristinsdóttur. Sólon Morthens lét af
störfum og kom Gústaf Loftsson nýr inn í stjórn.
Árið 2017 var stjórn félagsins þannig skipuð:
Freydís Örlygsdóttir, formaður
Trausti Hjálmarsson, varaformaður
Helga María Jónsdóttir, gjaldkeri
Sjöfn Sóley Kolbeins, ritari
Gústaf Loftsson, meðstjórnandi.
Starf hestamannafélagsins Loga var með nokkuð
hefðbundnu sniði árið 2017. Vetrarmótin voru
þó haldin með breyttu sniði í ár. Að þessu sinni
voru þau ekki haldin með hestamannafélaginu
Trausta, heldur voru tvö fyrstu mótin haldin í
Friðheimum og þriðja og síðasta mótið var haldið
á Kjóastöðum 3.
Haldin voru reiðnámskeið í reiðhöllinni á
Flúðum í samstarfi við hestamannafélagið Smára
og voru þau vel sótt.
Reiðnámskeiðið í Hrísholti var á sínum stað
í júní og í framhaldi var haldin firmakeppni á
mótssvæði Logamanna í Hrísholti.
Á undanförnum árum hefur samstarf hesta-
mannafélaganna í uppsveitum aukist mikið og
hélt það áfram 2017. Sameiginleg Uppsveitadeild
fullorðinna og æskunnar voru haldin yfir vetrar-
mánuðina. Allir þessir viðburðir hafa vakið
athygli og hleypt miklu lífi í hestamennsku á
svæðinu.
Sameiginlegt gæðingamót Loga og Smára var
haldið í annað sinn dagana 22. til 23. júlí 2017,
á mótssvæði Smáramanna. Hægt var að halda
mótið með glæsibrag þar sem Landsstólpi var
aðalstyrktaraðilinn og þökkum við þeim vel fyrir.
Að þessu sinni var metþátttaka og voru yfir 200
skráningar og var mikið álag á mótshöldurum og
mótssvæði en allt tókst þetta mjög vel og þökkum
við öllum þeim sem komu að þessu móti fyrir
hjálpina.
Unglingaflokkur Loga 21. apríl 2017. F.v Inga Hanna, Sölvi Freyr og
Rósa Kristín.