Litli Bergþór - jul. 2018, Side 30
30 Litli-Bergþór
Hvítárbrú hjá Iðu 60 ára
Páll M. Skúlason:
Af þrennskonar tilefni var haldin hátíð í Laugar-
ási í Biskupstungum, laugardaginn 9. desember
2017. Í fyrsta lagi var því fagnað, að þann 12.
desember voru liðin 60 ár frá því umferð var
hleypt á brúna. Í annan stað voru tendruð ljós á
nýrri ljósakeðju sem íbúar í Skálholtssókn hafa
safnað fyrir og í þriðja lagi var brúin opnuð
formlega, eða vígð, en það mun hafa farist fyrir
þarna í desember 1957.
Í einstakri vetrarblíðu, kom fjöldi fólks að
brúnni til að njóta þessarar uppákomu. Kjarninn
í henni var nokkurskonar gjörningur, þar sem
fulltrúar íbúa við brúna í 60 ár framkvæmdu,
með eldi, orði og í tónum, formlega vígslu.
Þarna komu við sögu þau Ásta Skúladóttir
á Sólveigarstöðum, fædd, uppalin og búsett í
Laugarási og Guðmundur Ingólfsson, fæddur,
uppalinn og búsettur á Iðu. Þá tóku einnig þátt í
gjörningnum þau Unnur Malín Sigurðardóttir,
sem flutti tónlist og vígslubiskupinn Kristján
Valur Ingólfsson, sem þarna var maður orðsins.
Athöfnin eða gjörningurinn fólst í því að Ásta
og Guðmundur kveiktu á 32 kyndlum sem hafði
verið komið á brúarhandriðunum, hvort frá sínum
enda brúarinnar og mættust síðan á miðri brúnni.
Þar með taldist brúin hafa verið opnuð formlega og
í þann mund voru ljósin kveikt á nýrri ljósakeðju
á burðarstrengjum hennar. Síðasti hluti þessarar
uppákomu fólst í því að börnum á staðnum
var boðið að ganga fyrst gestanna inn á brúna,
umkringja þar Ástu og Guðmund og þannig taka
við mannvirkinu fyrir hönd framtíðarinnar.
Það voru íbúar í Skálholtssókn sem áttu
frumkvæði að þessu verkefni og hrintu því í
framkvæmd en fyrir þeim fóru þau Páll M.
Skúlason, Elinborg Sigurðardóttir og Jakob
Narfi Hjaltason. Án stuðnings frá samfélaginu
er ólíklegt að þetta hefði tekist, en fjölmargir
Hvítárbrú. Björgunarsveitin á staðnum. Mynd: Páll M Skúlason.