Fréttablaðið - 18.05.2019, Side 8

Fréttablaðið - 18.05.2019, Side 8
Þá er þetta orðið það langur tími að við ákváðum að segja okkur frá þessu. Arnar Gauti Reynis- son, framkvæmda- stjóri Heimavalla 0,5% samdrætti í landsfram- leiðslu er spáð. SKIPULAGSMÁL Leigufélagið Heima- vellir hefur ákveðið að segja sig frá viðræðum við Reykjavíkurborg um fyrirhugaða uppbyggingu hundrað hagkvæmra leiguíbúða fyrir ungt fólk á Veðurstofureitnum svokall- aða við Bústaðaveg. Viðræðurnar hafa staðið yfir frá því í nóvember í fyrra en að sögn framkvæmdastjóra leigufélagsins varð ekkert ósætti milli aðila. Hitamælar Veðurstofu Íslands á lóðinni hafi hins vegar skapað óyfirstíganlega hindrun. „Það er ekkert ósætti eða neitt slíkt og það er ekki eins og borgin hafi verið að draga lappirnar,“ segir Arnar Gauti Reynisson, fram- kvæmdastjóri Heimavalla hf. „Það eru þarna hitamælar við Veðurstofuna sem eru búnir að mæla hitann í Reykjavík í einhverja áratugi. Ef þú byggir hús fyrir fram- an mælana þá eru mælingarnar ekki sambærilegar við það sem áður var. Þá þarf að færa mælana en svo þarf að keyra gömlu og nýju mælana saman í allt að tvö ár. Þá er þetta orðið það langur tími að við ákváðum að segja okkur frá þessu.“ Á meðan gömlu og nýju mælarnir væru að stilla saman strengi sína væri því allt byggingarverkefnið svo gott sem stopp. „Það væri hægt að grafa holuna og steypa sökkul. En ekki mikið meira en það,“ segir Arnar Gauti. Tilkynnt var um það þann 1. nóv- ember 2018 að borgarráð Reykja- víkurborgar hefði samþykkt að hefja viðræður við Heimavelli um lóðavilyrði vegna Veðurstofureits- ins. Arnar Gauti segir viðræður hafa staðið við borgina síðan en í tilkynningu Heimavalla til Kaup- hallar Íslands segir að nú sé ljóst að aðilar nái ekki saman um „grund- vallarforsendur verkefnisins og hafa Heimavellir því ákveðið að segja sig frá verkefninu.“ Sem fyrr segir stóð til að reisa þarna hundrað íbúðir ætlaðar ungu fólki í samvinnu við Ístak, Eflu og Glámu-Kím. Íbúðir sem vissulega er eftirspurn er eftir. Aðspurður hvort Heimavellir séu að horfa annað í framhaldinu fyrir verkefnið segir Arnar Gauti svo ekki vera. Félagið sé búið að festa kaup á 164 íbúðum á Hlíðarendareitnum sem byrji að koma til af hendingar í sumar og ætli að einbeita sér að því. mikael@frettabladid.is Hitamælar Veðurstofu settu hundrað leiguíbúðir í frost Heimavellir telja að biðin eftir að hægt verði að losna við mæla Veðurstofunnar sé of löng. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR á brauðið, pönnuna og í baksturinn Ekkert verður af upp- byggingu Heimavalla á hundrað hagkvæmum leiguíbúðum á Veður- stofureitnum. Leigu- félagið sagði sig frá verkefninu. Fram- kvæmdastjóri segir að tilfærsla á hitamælum muni tefja verkið um of. SKIPULAGSMÁL Halli frá Lauga- veginum inn í Hjarta garðinn er langt yfir leyfi legum mörkum og brýtur gegn á kvæðum byggingar- reglu gerðar. Samkvæmt henni er mesti leyfi legi hallinn fimm pró- sent en hallinn í Hjarta garðinn, sem ný lega var endur nýjaður, er 15 prósent. Vakin er at hygli á þessu í að- gengis á taki Ör yrkja banda lags Ís- lands (ÖBÍ) og segir Margrét Lilja Aðal steins dóttir, að gengis full trúi ÖBÍ, að slík brot séu mun al gengari en margur myndi halda. „Við erum að reka okkur á þetta miklu oftar en maður myndi halda. Halli yfir fimm prósent hefur mjög mikil á hrif á hreyfi hamlað fólk og fólk sem á erfitt með gang og hvað þá þegar hann er kominn upp í 15 prósent,“ segir Margrét. „Það er svo- lítið í hið brattasta.“ Hún segir að slík brot á bygg- ingar reglu gerðum séu nokkuð al- geng en það sé þó ekki oft svo mikill halll eins og raun ber vitni í Hjarta- garðinum. Hún segir að það vanti eftir lit með því að byggingar reglu gerðum sé fylgt eftir. „Það er ekkert eftir lit með því að reglum sé fylgt eftir og það er eitt hvað sem þarf að breyt- ast,“ segir Margrét. „Þetta skerðir að gengi allra, ekki bara þeirra sem þurfa á að gengi að halda, heldur bara gangandi veg- far enda og já, allra,“ segir Margrét. – oæg Ólöglegur halli á Hjartagarðinum Hallinn í Hjartagarðinum. MYND/ÖBÍ VIÐSKIPTI Frá og með 3. júní næst- komandi mun Íslandspóstur leggja 400 krónur á sendingar frá Evrópu og 600 krónur á hverja sendingu frá löndum utan Evrópu. Svokallað sendingargjald verður innheimt af öllum erlendum sendingum auk aðflutningsgjalda en heimild þessi var nýverið samþykkt á Alþingi með viðauka við póstlög. Samk væmt tilk y nning u frá Íslandspósti er gjaldinu ætlað að „standa undir kostnaði við dreif- ingu erlendra sendinga sem hingað berast frá erlendum póstfyrir- tækjum“. Eftir þessa breytingu munu sendingar frá útlöndum sem inni- halda vörur því bera aðf lutnings- gjöld sem greidd eru til ríkisins, ásamt umsýslugjaldi og hinu nýja sendingargjaldi sem Íslandspóstur innheimtir. Helga Sigríður Böðvarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, segir fyrirtækið gera sér grein fyrir að þessi ráðstöfun muni valda ein- hverri óánægju. – smj Sendingargjald verður lagt á Enn ein álagningin bætist nú við sendingar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR EFNAHAGUR Eftir samfelldan hag- vöxt frá og með árinu 2011 er nú útlit fyrir efnahagssamdrátt á yfirstandandi ári. Þetta kemur fram í þjóðhags- og verðbólguspá Landsbankans. Gert er þó ráð fyrir að samdrátturinn verði lítill og skammvinnur. Hag vöxtur í f y rra var 4,6% samkvæmt bráða- birgðatölum Hagstofu Íslands og var þannig öllu meiri en Lands- bankinn hafði spáð fyrir um í október í fyrra þar sem hann gerði ráð fyrir 3,9% hagvexti. Á sama tíma var reik nað með 2,6% hagvexti í ár en eftir meiriháttar áföll í lykilútflutningsgreinum, ferðaþjónustu og sjávarútvegi í formi gjaldþrots WOW air og loðnu- brests, er nú gert ráð fyrir 0,5% sam- drætti landsframleiðslu. Í spánni kemur fram að samdrátturinn vari lík- lega stutt og strax á næsta ári megi gera ráð fyrir 2,5% hag- vexti, studdum af auknum fjárfesting- um hins opinbera, íbúðafjárfestingu og hægfara viðsnúningi í ferðaþjónustunni. Á fyrsta ásfjórðungi árs- ins 2019 mældist verðbólga 3,1% en gert er ráð fyrir að hún nái hámarki á fyrri árshelmingi næsta árs og fari upp í 3,6%. Þá er gert ráð fyrir að hún leiti aftur niður og nái verðbólgumarkmiðinu, 2,5%, á öðrum ársfjórðungi ársins 2021. Búist er þá við að minni óvissa varðandi launaþróun næstu ára í kjölfar undirritunar kjarasamninga og nokkuð stöðugt gengi krónunnar slái á langtímaverðbólguvæntingar í atvinnulífinu. Þetta ásamt inn- gripum seðlabankans á gjaldeyris- markaði skapar svo verulegt svig- rúm til lækkunar stýrivaxta. Þannig er gert ráð fyrir að stýrivextir lækki um rúmt eitt prósentustig í nokkr- um skrefum fram á mitt ár 2021. Fram kemur í spánni að í ljósi viðsnúnings í efnahagsþróuninni sem nú er fram undan aukist svo hættan á að hagstjórnarmistök geti haft neikvæð áhrif á þá aðlög- un sem þarf að eiga sér stað í stjórn peningamála og ríkisfjármála. Auk þess geti mikil óvissa um þróun í fjölda ferðamanna á næstu árum haft mikil áhrif á þróun þessarar stærstu útflutningsatvinnugreinar þjóðarinnar. – ókp Landsbanki segir hagvaxtarskeið búið 1 8 . M A Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.