Fréttablaðið - 18.05.2019, Síða 32

Fréttablaðið - 18.05.2019, Síða 32
Nú erum við búin að kynna þessar tillögur í lokuðum s a m r á ð s h ó p u m með hagsmunaað­ilum innan og utan réttarkerfisins, sem og á opnu mál­ þingi í HR um daginn og ég held að það sé óhætt að segja að bæði brotaþolar og fagaðilar hafi tekið þessum tillögum vel,“ segir Hildur Fjóla Antonsdóttir, doktorsnemi í réttarfélagsfræði við Háskólann í Lundi. Hún hefur nýverið lagt loka­ hönd á skýrslu um stöðu þolenda í kynferðisaf brotamálum á Norður­ löndunum. Þar má finna tillögur um hvernig breyta megi réttarstöðu þolenda hér á landi. Í Noregi voru svipaðar tillögur innleiddar fyrir rúmum áratug. Hildur Fjóla er með bakgrunn í mannfræði og kynjafræði og starf­ aði áður við þróunarmál. Áður en hún hóf doktorsrannsókn sína hafði hún einnig unnið að rannsóknum um meðferð nauðgunarmála innan réttarkerfisins, en þær liggja meðal annars til grundvallar aðgerða­ áætlun dómsmálaráðuneytisins um meðferð kynferðisbrota. Síðastliðin ár hefur hún farið ofan í saumana á íslensku réttarkerfi og hvernig það tekur á kynferðis­ brotamálum samanborið við hin Norðurlöndin. Í doktorsverkefni sínu ræddi hún við 35 þolendur um hugmyndir þeirra um réttlæti og upplifun þeirra af kerfinu. Hildur Fjóla settist niður með blaðamanni og fór yfir tillögurnar. „Það er ekki bara útkoman í mál­ inu sem skiptir brotaþola máli, þó hún sé vissulega gríðarlega mikil­ væg, en það er líka hvernig er að málinu staðið“, segir Hildur Fjóla. „Þess vegna skiptir máli að bæði brotaþolar og sakborningar upplifi að réttarferlið sjálft sé réttlátt.“ Hún segir að það sem komi brota­ þolum oft óþægilega á óvart sé að þeir eru ekki aðilar að sakamálinu heldur hafa stöðu vitnis. Það er ein­ ungis ríkið og sakborningur sem hafa slíka aðild. Tillögur hennar miða því við að brotaþolar fái aðild að sakamálinu og fái þannig auknar upplýsingar um gang málsins innan réttarkerfisins og aukinn rétt til að taka þátt í réttarferlinu. Einnig leggur hún til að aðgangur brota­ þola að bótarétti sé efldur. Fái innsýn í eigin mál Fyrsta tillagan snýr að því að þol­ endur eigi að hafa aðgang að rétt­ argæslumanni áður en rætt er við lögreglu. „Brotaþolar í kynferðis­ brotamálum eru margir mjög tregir við að kæra brot. Fyrir því eru ýmsar ástæður, fólk er oft þjakað af sjálfs­ ásökunum og skömm, þó maður voni að það fari minnkandi með aukinni umræðu. Eins er staðan því miður sú að réttarkerfið okkar er ekki vel í stakk búið að taka á þessum málum, fólk veit það alveg.“ Hún telur mikilvægt að þol­ endum kynferðisbrota sé almennt gefinn kostur á því að fá lögfræði­ lega ráðgjöf á kostnað ríkisins áður en tekin er ákvörðun um að leggja fram kæru, en þeir brotaþolar sem leita til Neyðarmóttöku fyrir þol­ endur kynferðisof beldis á Land­ spítalanum fá slíka ráðgjöf. „Það getur verið mikilvægt fyrir brotaþola að fá upplýsingar um hvernig réttarkerf ið virkar og hvort mál þeirra sé nægilega sterkt út frá sjónarhóli lögfræðinnar áður en tekin er ákvörðun um að kæra. Þetta getur líka skipt máli fyrir brotaþola í litlum bæjarfélögum þar sem allir þekkja alla og þeir treysta sér einhverra hluta vegna ekki til að leita beint til lögreglunnar á staðnum.“ Sakborningar í sakamálum hafa aðgang að öllum gögnum máls á meðan á lögreglurannsókn stendur svo lengi sem lögregla telur að slíkt geti ekki skaðað rannsóknina. Hild­ ur Fjóla leggur til að brotaþolar hafi sama aðgang að gögnum, en ekki eingöngu þeim gögnum sem snúa að þeim sjálfum. „Þetta er liður í því að gefa brota­ þola meiri innsýn í rannsókn máls­ ins og tækifæri til að leggja sitt af mörkum til að aðstoða við rann­ sóknina. Brotaþoli hefur oft hvað mesta þekkingu á málinu og getur búið yfir mikilvægum upplýsingum án þess að vita það, því hann veit ekki hvað er að gerast í rannsókn­ inni.“ Hræðilega erfitt að vita ekkert Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir dómsmálaráðherra hefur kynnt sér tillögurnar. Hún sagði í síðustu viku hún sé að undirbúa lagabreyt­ ingar til að bæta stöðu þeirra sem beittir eru kynferðisof beldi. Hvatti hún lögregluembættin til að auka upplýsingagjöf til þolenda. Hildur Fjóla er ánægð með viðbrögð ráð­ herra. Ástæðan fyrir því að auka upplýsingagjöf er ekki aðeins sú að brotaþoli geti þá aðstoðað við rann­ sókn málsins heldur getur það verið mikilvægt fyrir öryggi brotaþola. „Það eru ákveðnir punktar í rann­ sókn málsins sem geta valdið brota­ þolum miklum áhyggjum. Segjum sem svo að ef verið er að kæra fyrr­ verandi kærasta, kunningja eða samstarfsmann, þá skiptir það máli að vita hvenær viðkomandi fær að vita af kærunni og hvenær lögregla er búin að fá viðkomandi í skýrslu­ töku. Það getur verið hræðilega erfitt að vita ekkert.“ Sama gildir um hvort sá grunaði er dæmdur í gæsluvarðhald eða sleppt úr haldi. „Ég talaði við unga konu sem las það í blöðunum að sá sem hún kærði væri laus úr gæslu­ varðhaldi. Hún hringdi í panikk í réttargæslumanninn, sem þurfti svo að hringja í lögregluna til að fá frekari upplýsingar. Þetta er líka öryggisatriði.“ Sama gildir um þegar hinn dæmdi hefur lokið afplánun og er látinn laus úr fangelsi. Ein tillagan snýr að því að brota­ þoli geti gert athugasemdir við lögregluskýrslu hins kærða áður en lögregla hættir rannsókn eða sendir málið áfram til héraðssak­ sóknara. „Svona mál byggja oftar en ekki á framburðum og oft er ekki mikið af öðrum sönnunar­ gögnum. Því skiptir miklu máli að brotaþoli fái tækifæri til að bregðast við framburði sakbornings áður en rannsókn lýkur. Þetta er ekki síst spurning um að auka gæði lögreglu­ rannsóknarinnar.“ Fundur í stað bréfs Flestum kynferðisbrotamálum lýkur annaðhvort með því að lög­ regla hættir rannsókn í málinu eða að héraðssaksóknari fellir málið niður vegna ónægra sannana. „Það er ofsalega mikið áfall fyrir brota­ þola að fá niðurfellingarbréfið, fólk upplifir oft mikla höfnun og að því hafi ekki verið trúað. Fólk getur hreinlega misst trúna á samfélagið. Þetta er oft líka í fyrsta sinn sem brotaþoli fær innsýn í það sem sak­ borningur sagði, þess vegna skiptir líka máli að brotaþolar fái að bregð­ ast við framburði sakborninga áður en lögreglurannsókninni lýkur.“ Í dag er í gangi tilraunaverkefni hjá lögreglustjóranum á Norður­ landi eystra þar sem þolandi er kallaður á fund í stað þess að fá bréf þegar mál er fellt niður. Ein af tillögum Hildar Fjólu er að þetta verklag sé tekið upp á landsvísu. „Nýleg meistararannsókn Karenar Birnu Þorvaldsdóttur sýnir einmitt hvað þetta skiptir miklu máli fyrir brotaþola. Þá fær brotaþoli betri útskýringar á því hvers vegna málið var fellt niður sem getur dregið úr áfallinu. Það skiptir líka máli að fá að heyra að þó að mál sé fellt niður þýði það ekki að þú sért ekki að segja satt, að þér sé ekki trúað. Það þýðir oftast bara að saksóknari telji sig ekki getað sannað að brot hafi átt sér stað.“ Sett í súrrealískar aðstæður Ef gefin er út ákæra í málinu og það fer fyrir dóm þá leggur Hildur Fjóla til að brotaþoli fái að hitta saksókn­ arann áður en að réttarhöldunum kemur. „Það getur skipt máli fyrir brotaþola að hitta þann aðila sem sækir málið. Eins og staðan er í dag þá gengur brotaþoli inn í dómsal og þarf að byrja á því að átta sig á hver er hvað, hver er saksóknarinn og hver er verjandinn,“ segir Hildur Fjóla. BROTAÞOLI HEFUR OFT HVAÐ MESTA ÞEKKINGU Á MÁLINU OG GETUR BÚIÐ YFIR MIKILVÆGUM UPPLÝSINGUM ÁN ÞESS AÐ VITA ÞAÐ, ÞVÍ HANN VEIT EKKI HVAÐ ER AÐ GERAST Í RANNSÓKNINNI Gjörbreytir hvernig kerfið mætir þolendum Síðustu ár hefur Hildur Fjóla Antonsdóttir rannsak- að stöðu þolenda kynferðisbrota í íslensku réttar- kerfi og á hinum Norðurlöndunum. Hún hefur nú unnið skýrslu að beiðni stýrihóps forsætisráðherra um heildstæðar úrbætur á þessu sviði. Ef tillögur hennar verða að veruleika mun það gjörbreyta því hvernig íslenskt réttarkerfi mætir þolendum. Hildur Fjóla hefur síðustu ár rannsakað norrænt réttarkerfi. Hefur hún rætt við á fjórða tug þolenda kynferðis- brota og sat réttarhöld í Noregi. Hún leggur til að íslenska kerfið færist nær því norska. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is 1 8 . M A Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.