Fréttablaðið - 18.05.2019, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 18.05.2019, Qupperneq 36
Jóhannes Haukur hefur nýlok-ið æfingu í World Class þegar blaðamaður lítur til hans. Hann er nýkominn heim frá Prag þar sem hann var í tökum fyrir þáttaröðina  A Letter for the King,  sem verður sýnd á Netf lix. World Class er nánast félagsmiðstöðin hans Jóhannesar. „Við eigum heima hér rétt hjá í Laugardalnum, það er dásamlegt að eiga heima hér. Við erum með alla þessa náttúru, sundlaugina og garðana í bakgarð- inum hjá okkur,“ segir Jóhannes sem segist bíða eftir elstu dóttur sinni sem æfir fótbolta með Þrótti. Hann ætlar að fylgja henni á fót- boltaleik.  Hann er kvæntur Rósu Björk Sveinsdóttur, hagfræðingi hjá Seðlabanka Íslands, og þau eiga þrjú börn, ellefu, sjö og þriggja ára. „Ég er tvær mínútur að labba hingað svo að það er engin góð afsökun fyrir því að mæta ekki í ræktina. Það er spa hér á neðri hæðinni og ég ætti að skammast mín fyrir það hvað ég er stundum latur í lyftingasalnum, þá er ég fljótt kominn í hvíta sloppinn og í spa- ið. Ég þarf stundum að minna mig á það að vera meira í æfingagallanum en hvíta sloppnum.“ Nýtur þess að vera heima Hann nýtur þess að vera heima og vera með börnunum og sinna heim- ilinu þegar hann er ekki að vinna. „Foreldrahlutverkið breytist eftir því sem maður eignast f leiri börn. Maður er orðinn svo slakur á því. Sú elsta fékk ekki að smakka ís eða sælgæti að ég held fyrr en hún var orðin fimm ára en sú yngsta fékk ís bara ársgömul. Maður tekur ekki alla slagina!“ Jóhannes Haukur og Rósa Björk kynntust skömmu fyrir jól árið 2002. „Við sátum hvort í sínum básnum á Dubliners og  snerum baki hvort í annað. Ég hóf samtalið og það gekk svona glimrandi vel, við erum núna búin að vera saman í meira en sautján ár.“ Hlutverk Jóhannesar Hauks í kvikmyndinni Svartur á leik varð vendipunktur á ferli hans. Kvik- myndin fór víða og varð til þess að hann fékk umboðsmann í Los Ange- les og ekki löngu seinna fékk hann hlutverk í þáttaröðinni A.D. sem var framleidd af NBC um Jesú og læri- sveina hans. Jóhannes Haukur lék lærisveinninn Tómas og lék hann í tíu þáttum. Eftir þetta stóra verk- efni fékk hann hlutverk í Game of Thrones-þáttunum sem reyndist enn meiri stökkpallur fyrir hann. Hann fór síðan í kjölfarið með hlutverk í kvikmyndinni  Atomic Blonde með Charlize Theron, John Goodman og James McAvoy.  Þá fór hann með aðalhlutverk í Net- flix-seríunni Innocents og hefur nú nýlokið tökum á Letter to the King. Jóhannes, er ferillinn á miklu f lugi? „Ég myndi segja að hann sé á góðri siglingu frekar en flugi, það er svona jarðtengdara. Svartur á leik var stökkpallurinn en svo þegar það eru komin stór verkefni eins og Game of Thrones á ferilskrána þá er horft aðeins betur á þig. Þú ert ekki bara enn einn íslenski leikarinn og prufurnar sem ég geri fá meiri athygli. Ég búinn að vera í þessu núna í fimm ár og hef ekkert verið í leikhúsunum á meðan,“ segir Jóhannes Haukur.  Hvert og eitt þeirra verkefna sem Jóhannes Haukur hefur leikið í tekur margar vikur og jafnvel mán- uði. „Ef ég er að leika í sjónvarps- þáttaröð þá tekur það oft um fimm mánuði, svo þegar verkefninu er lokið þá tekur við dauður tími þar sem ég er í mesta lagi að gera prufur fyrir næstu verkefni. En ég er alltaf jafn ánægður þegar ég er búinn að klára verkefni og er í þessum dauða tíma. Nú er ég þar, í dauða tíman- um, og veit ekki alveg hvað ég geri næst. Ég er með boð um hlutverk sem kannski verður af, þetta er oft langt ferli þar sem ekkert er meitlað í stein en ég hef lært að taka því með jafnaðargeði. Ég er rosalega ánægður með þann góða og rúma tíma sem ég fæ inn á milli með fjölskyldunni og þá er ég heima, þvæ þvott og baka og sinni börnunum. En svo er bara geggjað að fá að fara út og vinna eftir heim- ilisstörfin og gista á fimm stjörnu hóteli,“ segir hann og skellir upp úr. „Þegar ég er að vinna í langan tíma úti þá koma Rósa og börnin mín til mín. Þau komu til dæmis tvisvar til mín til Suður-Afríku og dvöldu í þrjár vikur í senn, hafa nokkrum sinnum komið til London, Búda- pest og voru hjá mér um páskana í Prag, þetta er dýrmætt og gaman fyrir þau. En börnin fá samt ekki að fara til Tenerife og kvarta svolítið yfir því.“ Launin góð Og er hann á grænni grein? „Launin eru býsna góð og miklu betri en hér heima sem mér finnst mjög öfugsnúið því hér kostar allt meira. En svo er nú allur gangur á því hvað er boðið og stundum þarf maður að segja nei,“ segir Jóhannes Haukur og nefnir dæmi um boð sem hann gat alls ekki fallist á. „Það versta sem ég man eftir var fyrir nokkrum árum. Mér var boðið að leika í bíómynd í eina viku í Bruss el og með þekktum leikara. Ég átti að vera í einhverju Franken- stein-vampírugervi. En átti svo bara að fá tuttugu þúsund krónur fyrir. Þetta var nú bara algjört rugl og viðkomandi hefur verið í fréttum vegna miður fallegra hluta upp á síðkastið. Ég sagði bara nei takk og það var ekki erfitt. Ég sagði bara við umboðsmanninn: Við erum ekkert að fara að gera þetta, er það?“ Jóhannes Haukur hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum fyrir nýfenginn áhuga sinn á súr- deigsbakstri. Hann hefur náð miklum árangri og bakar alls kyns bakkelsi úr súrdeigi. „Ég fékk áhuga fyrir þessu um áramótin, ég þekki Norðurlandameistara í bakstri, hann Sigurð Elvar Baldursson. Hann kennir bakstur í Danmörku og mér líka, ég keypti mér bók um súrdeigsbakstur og svo var ég bara með hann á Facetime,“ segir hann.  „Nú ég ég að undir búa að reyna að baka croissant úr súrdeigi sem er mjög krefjandi. Mér finnst þetta mjög slakandi og ég hef tíma til að dunda við þetta þegar ég er heima.“ Jóhannes Haukur var alinn upp af einstæðri móður, Ingibjörgu Höllu Guttesen.  Hún er færeysk og þau bjuggu í Færeyjum í þrjú ár þegar hann var barn. Jóhannes Haukur segir móður sína sinn albesta aðdá- anda og hún hafi orðið afar spennt þegar hún frétti að hann ætti að vera kynnir á Eurovision. „Mamma hringdi einmitt í mig og hélt ég ætti að vera í hlutverki Gísla Marteins, það var svolítið liðið á símtalið þegar ég þurfti að leið- rétta hana og segja henni að nei, það væri nú Gísli Marteinn sem væri enn í því hlutverki. Mamma, ég er bara stigakynnir og það tekur bara fimm sekúndur. Þá sagði hún: Ha? Af hverju ekki þú? Og hún skildi í alvörunni ekkert í því af hverju ég sæi ekki um þetta frá A til Ö. Hún er nefnilega minn einlægasti aðdá- andi,“ segir Jóhannes Haukur. Til Færeyja í sumar „Ég varð einu sinni leiður eftir gagn- rýni úr leikhúsinu. Þá hringdi hún í mig og sagði: Nei, þetta er bara ekki satt, Jóhannes Haukur, því ég var á frumsýningunni. Henni finnst allt geggjað sem ég geri og ég held að hún meini það. Ég skil það núna sem foreldri, mér finnst allt sem börnin mín gera best og frábært.“ Hann segist ekki mikið hafa haldið í færeyska siði en fjölskyldan fer þó öll til Færeyja í sumar. „Við förum öll til Færeyja í júlí og það verður gaman fyrir börnin. Það eru nú engir færeyskir siðir sem ég held upp á. En mamma er sjúk í skerpikjöt sem mér finnst líka gott en maður kaupir það nú ekkert úti í búð.“ Er hann mikill Eurovision-aðdá- andi? „Já, eins og f lestir Íslendingar þá horfi ég og tek þátt þegar Ísland er með í keppninni. Þegar  Ísland er ekki með þá minnkar nú áhug- inn og ég nenni ekki að horfa. Mér finnst Hatari frábært atriði, þetta er f lott lag, sterkt konsept og mér finnst við vera hugrökk. Ég man ekki  eftir viðlíka hugrekki síðan Páll Óskar tók þátt. Evrópa var ekki tilbúin þá! En kannski fyrir Hatara, sjáum til.“ Ætlar hann að klæða sig upp í stíl Hatara? „Tja, ég hef fengið skýr fyrirmæli frá börnunum mínum sem vilja að ég sé aðeins „eðlilegri“. Kannski sleppur jogginggallinn,“ segir hann. Mamma er langbesti aðdáandinn Jóhannes Haukur Jóhannesson hefur undanfarin ár leikið bitastæð hlutverk í stórum þáttaröðum og kvikmyndum á erlendri grund. Þrátt fyrir annríkið fylgir velgengninni góður tími með fjölskyldunni sem hefur fengið að heimsækja hann á tökustaði vítt og breitt um heiminn. Jóhannesi Hauki finnst slakandi og gaman að baka úr súrdeigi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is Með fjölskyldunni í Suður-Afríku. 1 8 . M A Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R34 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.