Fréttablaðið - 18.05.2019, Síða 63

Fréttablaðið - 18.05.2019, Síða 63
Seltjarnarnesbær hyggst endurnýja ytri vef sinn og óskar nú eftir verðupplýsingum frá fagaðilum í hönnun, smíði og uppsetningu á nýjum vef bæjarins og helstu undirstofnunum hans. Kostnaðaráætlun skal byggja á fyrirliggjandi kröfulýsingu sem unnin hefur verið. Áhugasamir þátttakendur óski eftir gögnum með tölvupósti á maria.b.oskarsdottir@seltjarnarnes.is sem jafnframt veitir nánari upplýsingar. Verðupplýsingum skal skilað inn í síðasta lagi þriðjudaginn 21. maí 2019 Seltjarnarnesbær áskilur sér rétt til að semja við hvern þann aðila sem bærinn telur uppfylla best kröfurnar eða hafna öllum. Verðkönnun Nýr vefur Seltjarnarnesbæjar seltjarnarnes.is Langanesbyggð leitar að framfarasinnuðum, skapandi og farsælum leiðtoga til að stýra Grunnskólanum á Þórshöfn frá og með næsta skólaári. Skólastjóri er fyrst og fremst faglegur leiðtogi sem þarf að fylkja liði um stefnu skólans og árangursríka starfshætti. Leitað er að bjartsýnum og lausnamiðuðum einstaklingi með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á velferð og framfarir nemenda í góðu samstarfi við starfsfólk og foreldra. Skólastjóri stýrir og ber ábyrgð á daglegum rekstri, mannauðsmálum og annarri starfsemi skólans og að skólastarf sé í samræmi við lög og reglugerðir. Menntunar- og hæfniskröfur: Umsókn fylgi ítarleg starfsferilskrá ásamt greinargerð þar sem m.a. komi fram ástæða umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi til starfsins. Starfsfólk Grunnskólans á Þórshöfn hefur tekið virkan þátt í þróunarstarfi á síðustu árum þar sem lögð hefur verið áhersla á þróun fjölbreyttra kennsluhátta, teymisvinnu og á aukna lýðræðislega þátttöku nemenda í skólastarfinu. Framundan er áframhaldandi spennandi skólaþróun. Unnið er að því að koma á sameiginlegri skólastjórn Grunnskólans á Þórshöfn og leikskólans Barnabóls. Skólastjórn sér um og stjórnar sameiginlegum verkefnum og stefnumótun. Hvor skólastjóri um sig sinnir daglegri stjórn á hvorum stað en munu m.a. sjá sameiginlega um mannaráðningar og hafa þannig stjórnunarlegan stuðning hvor af öðrum. Umsóknarfrestur er til 31. maí og skulu umsóknir sendar rafrænt á netfangið elias@langanesbyggd.is Við hlökkum til að heyra frá þér! Nánari upplýsingar um starfið veita: Elías Pétursson, sveitarstjóri í síma 4681220 eða 8920989, netfang: elias@langanesbyggd.is Gunnar Gíslason, ráðgjafi í síma 8921453, netfang: gg@akmennt.is Skólastjóri óskast til starfa við Grunnskólann á Þórshöfn - Kennaramenntun og leyfisbréf grunnskólakennara - Leiðtogahæfni, metnaður og áhugi á skólaþróun og nýjungum í skólastarfi er skilyrði. - Þekking og reynsla af rekstri og stjórnun er æskileg. - Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og kennslufræða er æskileg. - Sérstök áhersla er lögð á að viðkomandi búi yfir lipurð í samstarfi, sveiganleika og hæfni í mannlegum samskiptum. - Góðir skipulagshæfileikar og frumkvæði er kostur - Gerð er krafa um vammleysi. s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu. Í Grunnskóla Þórshafnar eru tæplega 70 nemendur og starfsmenn eru um 25. Starfsemi skólans einkennist af kraftmiklu og framsæknu skólastarfi. Samhliða skólanum er rekinn tónlistarskóli og hefð er fyrir öflugu íþróttastarfi fyrir alla aldurshópa skólans. Langanesbyggð er öflugt og vaxandi sveitarfélag með spennandi framtíðarmöguleika. Á Þórshöfn búa um 400 manns í fjölskylduvænu umhverfi. Skólinn var endurnýjaður árið 2016 og er öll aðstaða og aðbúnaður til fyrirmyndar. Nýr leikskóli er í byggingu og verður tekin í gagnið í sumar Gott íbúðarhúsnæði er til staðar og öll almenn þjónusta er á Þórshöfn. Á staðnum er gott íþróttahús og innisundlaug og Ungmennafélag Langaness stendur fyrir öflugu íþróttastarfi. Í þorpinu er mikið og fjölbreytt félagslíf. Samgöngur eru góðar, m.a. flug fimm daga vikunnar til Reykjavíkur um Akureyri. Í næsta nágrenni eru margar helstu náttúruperlur landsins og ótal spennandi útivistarmöguleikar, s.s. fallegar gönguleiðir og stang- og skotveiði. Langanesbyggð leitar að fólki á öllum aldri, af báðum kynjum, með margs konar menntun og reynslu. Í samræmi við jafnréttisáætlun Langanesbyggðar eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um störf hjá sveitarfélaginu. Sérfræðingur við verkefnið Skólar á grænni grein Grænfánaverkefni Landverndar Landvernd óskar eftir að ráða sérfræðing við verkefnið Skólar á grænni grein - Grænfánaverkefnið. Verkefnið er alþjóðlegt menntaverkefni um umhverfismál og sjálfbærni sem rekið er í hátt í 200 skólum á öllum skólastigum á Íslandi. Um er að ræða 75% stöðu frá 1. september 2019 með möguleika á aukningu á árinu 2020. Ítarlegri upplýsingar um starfið má finna á heimasíðu Landverndar, landvernd.is. Umsókn og frestur Umsókn þarf að fylgja ferilskrá og greinagerð þar sem ástæða umsóknar eru útlistuð, hæfni viðkomandi til að gegna starfinu er lýst ásamt upplýsingum um tvo meðmælendur. Umsóknir skulu sendar á caitlin@landvernd.is merktar „Grænfánaumsókn“. Umsóknarfrestur er til 1. júní 2019 Nánari upplýsingar veitir Katrín Magnúsdóttir verkefnisstjóri Skóla á grænni grein, katrin@landvernd.is, s. 552-5242. Job.is Þú finnur draumastarfið á Job.is GLÆNÝ OG FERSK STÖRF Í HVERRI VIKU Kennsla Þú finnur draumastarfið á Iðnaðarmenn Þú finnur draumastarfið á Heilbrigðisþjónusta Veitingastaðir ATVINNUAUGLÝSINGAR 19 L AU G A R DAG U R 1 8 . M A Í 2 0 1 9
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.