Fréttablaðið - 18.05.2019, Page 88

Fréttablaðið - 18.05.2019, Page 88
Þeg a r ba r n sha f a nd i fréttakona var, árið 1991, að taka viðtal við Doris Day vegna h e i m i l d a r m y n d a r um hana og farsælan feril hennar táraðist söng- og leik- konan heimsfræga skyndilega og sagði: „Þú skilur þetta ekki. Þetta var ekki draumur sem rættist. Það eina sem ég þráði er það sem þú átt núna, barn, eiginmann sem elskaði mig raunverulega, heimili, og alla þá hamingju sem þetta getur fært. Ég fékk þetta aldrei en þetta er það eina sem ég vildi.“ Doris Day öðlaðist heimsfrægð fyrir söng sinn og leik á hvíta tjaldinu. Hún lék í um 40 kvik- myndum og má þar nefna The Man Who Knew Too Much, Calamity Jane, Move Over Darling, Love Me or Leave Me og Pillow Talk sem hún hlaut Óskarstilnefningu fyrir. Rómantískar gamanmyndir, sem hún lék í með vini sínum Rock Hudson, nutu alveg sérstakra vin- sælda enda afar vel heppnaðar. Hún hljóðritaði rúmlega 650 lög, það vinsælasta er Que sera sera sem hún söng fyrst í myndinni The Man Who Knew Too Much. Hún hafði efasemdir um lagið en leikstjóri myndarinnar, Alfred Hitchcock, var sannfærður um velgengni þess og reyndist sannspár. Síðasta plata hennar kom út árið 2011 og komst í fyrsta sæti vinsældalista, en þá var Doris 89 ára gömul. Doris Day hafði einstaklega fal- lega söngrödd og mikla útgeislun og ljómaði af hreysti og heilbrigði. Hún var glaðleg og viðkunnan- leg, hlý og tilgerðarlaus. Hún var síbrosandi sem benti til að þar færi hamingjusöm kona. Raun- veruleikinn var allt annar. Einkalíf hennar var þyrnum stráð og sam- band hennar við einkason sinn var ekki ætíð upp á það besta. Á seinni árum dró hún sig í hlé og helgaði líf sitt dýravernd sem hafði alltaf verið henni hjartans mál. Þegar hún lést nýlega eftir stutt veikindi, 97 ára gömul, komst hún á forsíður heimsblaða. Í ofbeldissambandi Doris Day fæddist árið 1922 í Conn- ecticut og var sk írð Dor is Mary Anne Kappelhoff. F o r e l d r a r voru þýskir kaþólikkar, b ö r n i n n - f lytjenda og faðir- inn Þetta var ekki draumur sem rættist Söng- og leikkonan Doris Day lést nýlega 97 ára gömul. Ferill hennar var einkar far- sæll en einkalífið þyrnum stráð. Með einkasyni sínum Terry en dauði hans var mesta áfall hennar í lífinu. Doris var annálaður dýravinur og gerði heimili sitt að paradís fyrir þau. Doris Day eins og heimurinn man hana, lífleg og brosandi en veruleikinn var harðneskjulegri. NORDICPHOTOS/GETTY Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is var tónlistarkennari. Hjónaband foreldranna var átakamikið og þau skildu. Doris ætlaði sér að verða dansari en lenti í bílslysi og varð að vera rúmt ár á hækjum. Hún sneri sér að söng og hljómsveitastjóri stakk upp á því að hún breytti eftirnafni sínu í Day. Sext án ára varð hún ást- f a n g i n a f h ljóðf ær a- leikaranum Al Jorden o g þ a u g e n g u í hjónaband þegar hún var 19 ára gömul. Al va r sjú k- lega af brýði- s a m u r o g of beldisfullur. Á öðrum degi hjónabands- i n s b a r ð i hann hana og kallaði hana hóru eftir að hún hafði tekið við brúðkaupsgjöf frá karlkyns vini. Þegar hún varð barnshafandi hót- aði hann ítrekað að drepa hana og barnið og þegar hún var komin átta mánuði á leið lúbarði hann hana. Eftir fæðingu sonar þeirra, Terrys, sýndi hann barninu engan áhuga. Al fyrirfór sér ári eftir fæðingu sonar síns. Þar sem Doris varð snemma önnum kafin í krefjandi vinnu ólst Terry að mestu upp hjá ömmu sinni fyrstu árin. Hann sagði seinna að orðið „móðir“ hefði enga merkingu í huga hans. „Það var amma sem var foreldri mitt,“ bætti hann við. Skilin eftir gjaldþrota Doris var 22 ára þegar hún giftist saxófónleikaranum George Weidl- er sem kynnti hana fyrir Vísinda- kirkjunni sem hún gekk til liðs við. Hjónabandið stóð stutt og árið 1951, 29 ára gömul, giftist hún kvik- myndaframleiðandanum Marty Melcher sem varð umboðsmaður hennar. Í byrjun var hjónaband þeirra gott en með árunum varð Marty æ ráðríkari og sambandið milli hans og sonar hennar snar- versnaði. Eftir að Marty sló Terry fyrir framan Doris var hjónabandið einungis að nafninu til. Marty lést árið 1968 eftir sautján ára hjóna- band og þrátt fyrir erfiðleika í hjónabandinu varð Doris miður sín. Terry sagði að það besta sem stjúp- faðir hans hefði gert móður hans hefði verið deyja. Marty hafði séð um öll fjármál konu sinnar og eftir lát hans kom í ljós að hann hafði sólundað peningum þeirra og skilið hana eftir gjaldþrota. Doris tókst að koma sér aftur á réttan kjöl með vinsælum sjónvarpsþáttum. Árið 1976 giftist Doris í fjórða sinn, Barry Comden, en þau skildu sex árum síðar. „Hún kom betur fram við dýrin sín en mig,“ sagði hann. Doris var annálaður dýra- vinur, stofnaði dýraspítala og gerði heimili sitt að paradís fyrir hunda og ketti, ól þau á sælkeramat og útbjó sérstaka svefnstaði fyrir þau og hafði auk þess alltaf pláss fyrir hunda í sínu eigin rúmi. Ef hún sá hunda og ketti á f lækingi hafði hún þá með sér og kom þeim fyrir á heimili sínu. Einkasonur hennar Terry varð þekktur plötuframleiðandi. Hann slapp naumlega frá því að verða fórnarlamb Charles Manson-geng- isins. Manson vildi komast á plötu- samning hjá Terry og hitti hann en Terry gaf afsvar. Sagt er að Manson- gengið hafi verið að leita að Terry þegar það slátraði leikkonunni Sharon Tate og vinum hennar árið 1969. Terry lést árið 2005 og Doris sagði að dauði hans hefði verið mesta áfall sem hún hefði upplifað. Doris Day sagði eitt sinn að sjálf líktist hún helst hinni óhef luðu Calamity Jane sem hún lék svo eftirminnilega í samnefndri mynd. Hún sagði um sjálfa sig: „Það er í eðli mínu að fyrirgefa og kveða ekki upp dóma yfir öðrum. Hatur á ég ekki til.“ Hún sagði líka: „Ég hef aldrei hitt dýr sem ég hef ekki kunnað vel við en ég get ekki sagt það sama um fólk.“ Með þriðja eiginmanni sínum og umboðsmanni, Marty Melcher, en hann sólundaði fjármunum hennar og skildi hana eftir gjaldþrota. 1 8 . M A Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R38 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.