Fréttablaðið - 18.05.2019, Page 112
ÉG ER NOKKUÐ VISS
UM AÐ ÞETTA SÉ
LENGSTI OG STÆRSTI TÚR
ÍSLENSKS UPPISTANDARA FRÁ
UPPHAFI.
stod2.is 1817MARGFALT SKEMMTILEGRI
Nýir íslenskir heimildaþættir um Magna Böðvar Þorvaldsson
eða Johnny Johnson eins og hann er þekktur ytra. Málið
hófst í Jacksonville þegar Sherry Lee Prather hvarf spor-
laust en lík hennar fannst síðar og var Magni Böðvar
handtekinn fyrir morðið. Hann játaði að lokum
glæpinn og situr nú af sér 20 ára dóm.
SUNNUDAG
FLÓRÍDAFANGINN
Hugleikur Dagsson
ferðaðist um Evrópu
með brot úr sínu
besta uppistandi. Í
Finnlandi var loka-
sýningin tekin upp
af kvikmynda-
gerðarmanninum
Árna Sveinssyni. Í
kvöld er Hugleikur
með beina lýsingu
á Eurovision ásamt
ástralska grínistan-
um Jonathan Duffy.
Gr ínistinn Hugleikur Dagsson er nýkominn aftur landsins eftir uppistandstúr um Evr-ópu.
„Við byrjuðum í Ungverjalandi
og enduðum í Finnlandi. Þetta voru
18 borgir og í heildina 20 sýningar.
Þetta er mesta keyrsla sem ég hef
farið í á ævinni. En þetta var auð-
vitað ógeðslega gaman,“ segir Hug-
leikur.
Stærsti túr hans til þessa
„Ég er nokkuð viss um að þetta sé
lengsti og stærsti túr íslensks uppi-
standara frá upphafi. Nokkuð viss
um að ég fari ekki með fleipur með
þeirri yfirlýsingu.“
Hugleikur ferðaðist ásamt ástr-
alska grínistanum Jonathan Duffy
og umboðsmanni sínum, Rakel
Sævarsdóttur.
„Jono hitaði upp fyrir mig fyrir
hvert uppistand, tók 15 mínútna
langt sett. Rakel var svo ástæðan
fyrir því að við hreinlega komumst
lífs af frá þessari ferð. Hún sá til þess
að við borðuðum, svæfum og hefð-
um yfirleitt f lugmiða á milli staða.“
Túrinn samanstóð af brotum úr
því besta frá uppistöndum Hugleiks
hérlendis síðustu ár.
„Við enduðum svo viljandi í Finn-
landi. Ég hef alltaf átt mikið bak-
land þar og aðdáendur. Bækurnar
mínar hafa einmitt komið þar út og
gengið ágætlega í sölu. Þannig að við
enduðum þar til að taka upp loka-
uppstandið sem svo stendur til að
selja,“ segir Hugleikur.
Hann segir að það verði stefnt
hærra en lægra þegar það kemur að
dreifingu uppistandsins. Toppurinn
væri auðvitað streymisveitan Net-
flix.
„Árni Sveins kvikmyndagerðar-
maður kom út og hitti okkur í Finn-
landi þar sem hann leikstýrði loka
uppistandinu. Það fór fram í leik-
húsinu í Helsinki og þótt ég segi
sjálfur frá, þá var það mitt besta
uppistand til þessa. Ég er alveg
rosalega glaður að þetta hafi náðst
á upptöku.“
Hugleikur er með hlaðvarps-
þætti ásamt Jonathan. Það kallast
Icetralia.
„Við erum eina íslensk-ástralska
hlaðvarpið á alnetinu. Ég leyfi mér
að fullyrða það. Við höfum lýst
Eurovision í beinni síðastliðin tvö
ár og höfum hingað til ekki sett það
á netið. Fólk hefur hingað til bara
orðið að koma til að sjá okkur. Það
eru samt einhverjar hugmyndir
um að reyna að streyma þessu á
Facebook en við sjáum hvernig það
gengur,“ segir hann.
Ókeypis á viðburðinn
„Við verðum eins og gömlu karl-
arnir í Prúðuleikurunum, með
okkar skot og kímni. Jonathan er
mjög fróður um Eurovision. Það er
honum meðfætt þar sem hann er
samkynhneigður. Hann vissi hvað
bakraddasöngvararnir í belgíska
laginu 1987 hétu áður hann vissi
hvað Eurovision var. Þetta er eitt-
hvað sem er í blóðinu.“
Hugleikur segir Jonathan hafa
talað meira á viðburðum síðustu
tveggja ára en hann haldi að nú
verði breyting á í ár.
„Eftir þennan túr er ég kominn í
svo mikið stuð. Þannig að ég held ég
nái að hreyfa munninn jafn oft og
hann. Við ætlum líka heldur ekkert
að halda okkur frá þessari svoköll-
uðu pólitík og stefnum á að ræða
um fílinn í herberginu.“
Hann segir þá sem hafa blendnar
tilfinningar gagnvart keppninni
í ár eiga hiklaust að mæta á beina
lýsingu þeirra félaga.
„Við munum vafalaust hrauna
jafn mikið og við dásömum. Ég er
líka orðinn svo sleipur í enskunni
eftir túrinn og svona. Stundum
man ég jafnvel muninn á v-affi og
tvöföldu v-affi,“ segir Hugleikur
kíminn.
Eftir beinu lýsinguna í Tjarnarbíó
stefnir Hugleikur á að mæta í bún-
ingapartí í Bíó Paradís.
„Þá þarf ég að mæta í búningi
og er með tvær pælingar. Annars
vegar að vera Lordi fátæka manns-
ins. Bara klippa leðurblökuvængi úr
pappakassa. Annars gæti ég verið
Conchita Wurst. Það væri f lóknara
því þá þyrfti ég gulan kjól og síða
hárkollu. Ef allt bregst verð ég Eyfi
þegar hann fór út með Nínu. Það
gæti orðið flott.“
Talið berst að því að búðir sem
selja unaðstæki ástarlífsins ásamt
BDSM-varningi hafi haft nóg að
gera síðustu daga þar sem allir við-
skiptavinir finna sig knúna til að
segja starfsfólkinu að innkaupin
séu fyrir búningapartí.
„Já, ég segi líka alltaf: Þetta er nú
bara fyrir pabba, þegar ég kaupi
Kamagra.“
Hann segir það öruggt mál að
Hatari hafi hrundið af stað viðhorfs-
breytingu til BDSM-lífsstílsins.
„Það er örugglega fullt af BDSM-
liði sem finnst fúlt hvað það er búið
að „normalísera“ þetta núna. Þetta
er svolítið eins og þegar það var í
tísku að vera nörd og fíla Marvel.
Það er mikilvægt að fólk viti að ég
var fyrstur,“ segir hann að lokum
og hlær. steingerdur@frettabladid.is
Eins og gömlu karlarnir
í Prúðuleikurunum
Hugleikur vill að allir viti að hann var fyrstur til að fíla Marvel-teiknimyndasögurnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
1 8 . M A Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R62 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð