Fréttablaðið - 01.06.2007, Síða 19

Fréttablaðið - 01.06.2007, Síða 19
n Hann kalli hana forskotsaðferðina. Sumum finnist hún flókin. Hún virki þannig, að þegar komið er að jöfnunarsætunum sé spurt í hverju kjördæmi: hver er sá sem hefur mesta forskotið á næsta mann? Þetta forskotshlutfall ráði því síðan hvaða frambjóðandi fái fyrst úthlutað jöfnunarsæti, og síðan koll af kolli. Þetta skili að sínu viti betri úthlutun en núgildandi kerfi geri, en samkvæmt því er úthlutun jöfn- unarsætanna þannig, að fyrst er búin til landsröð flokkanna, eftir landsfylgi þeirra. Svona er búin til forgangsröð að jöfnunarsætunum níu, sem líkja má við hlaðborð. Hvort hægt sé að benda á betra kerfi en nú sé við lýði sé þó ekki aðalatriðið, að sögn Þorkels. „Mór- allinn í sögunni“ sé samt þessi: Það verður ekki bæði á einfaldleika og gæði kosið. „Það er aldrei hægt að finna beztu lausn nema með því sem flestir myndu telja flókinni aðferð. Það er aldrei hægt að fá með einfaldri aðferð lausn sem ekki hefur hættu á miklum skavönkum í sér fólgna,“ segir Þor- kell. Loks vekur Þorkell athygli á því, að í stjórnarskránni/kosningalög- unum sé í raun verið að segja mót- sagnakennda hluti: Annars vegar séu hér kjördæmi þar sem vægi atkvæða er helmingi meira í einu en öðru, og hins vegar sé ætlazt til að þegar landið er skoðað í heild séu því sem næst jafnmörg atkvæði að baki hverju þingsæti. Þess vegna sé spennandi að velta fyrir sér allt öðruvísi lausnum. „Margir nefna og mér sýnist það njóta vaxandi stuðnings að gera landið að einu kjördæmi. En þá fyndist mér að þyrfti að bæta all- mörgu við,“ segir Þorkell. Til að valkostir kjósandans í kjörklefan- um væru ekki bara listar með 126 nöfnum frambjóðenda þá yrði annað hvort, að mati Þorkels, að lögbjóða einhvers konar prófkjör, og þá helzt þannig að þau væru leynileg og til dæmis haldin sama daginn hjá öllum flokkum svo að „menn geti ekki valsað á milli flokka“. Hinn kosturinn væri sá að gera kjósendum kleift að velja sér menn af þessum eina stóra landslista hvers flokks. „Svo mætti hugsa sér að ganga enn lengra og hafa hlað- borð, eins og Vilmundur Gylfason heitinn lagði til, að kjósendur gætu valið menn af hinum ýmsustu list- um,“ segir Þorkell. Kerfið á Írlandi bjóði upp á tilbrigði við þetta. Svo séu til blandaðar leiðir eins og þýzka kosningakerfið, þar sem helmingur þingmanna er kjörinn í einmenningskjördæmum og hinn helmingurinn af listum. Kjósand- inn hefur í raun tvö atkvæði, ann- ars vegar til persónukjörs og hins vegar listakjörs. Yfirfært á Ísland væri hægt að hugsa sér um 30 manna landslista og persónukjör í annað hvort ein-, tví- eða þrímenn- ingskjördæmum. Vísindamenn lífefnafyrirtækis á Nýja Sjálandi hafa komist að því að til eru kýr sem framleiða fitu- snauða mjólk eða undanrennu, samkvæmt fréttavef BBC. Genið sem veldur þessari breytu var uppgötvað 2001 í kúnni Marge en genið kom einnig fram í nokkrum kvíga hennar. Með nánari rann- sóknum á genamengi þessara kúa telja vísindamenn möguleika á að hægt verði að koma upp hjörð af kúm sem eingöngu framleiða undanrennu. Sumir aðilar í mjólkuriðnaðin- um benda þó á að fita í mjólk sé ekki hættuleg sé hennar neytt í hófi og aukning á hjartasjúkdóm- um og heilablóðföllum megi ekki rekja beint til fitu í nýmjólk. Ed Komorowski, tæknistjóri hjá Dairy UK, segir að á meðan það muni henta sumum mjólkurfyrir- tækjum vel að fá undanrennuna beint af kúnni séu önnur fyrirtæki sem selji rjómann af mjólkinni í aðrar vörur. Nýmjólk er um 25 prósent þeirrar mjólkur sem seld er í Bretlandi í dag en afgangur- inn er undanrenna eða léttmjólk. Hálfur lítri af nýmjólk inniheldur 3,5 prósent mettaða fitu, léttmjólk inniheldur 1,7 prósent mettaða fitu og undanrenna 0,1 prósent mettaða fitu. Undanrenna beint af kúnni Kynning! D a l v e g u r 4 T j a r n a r v e l l i r 1 5 B ú ð a k ó r 1 H a m r a b o r g 1 4 a S k i p h o l t i 7 0 H ö f ð a b a k k a 1 N e s v e g i 1 0 0 S u n d l a u g a v e g i 1 2 H á a l e i t i s b r a u t 5 8 – 6 0 Æ g i s b r a u t 2 9 , A k r a n e s i D a l v e g u r 4 T j a r n a r v e l l i r 1 5 B ú ð a k ó r 1 G r e n s á s v e g i 4 8 D a l v e g u r 4 verslanir Fiskisögu Veitingahús verslanir Gallerí Kjöts Milli klukkan 17:00 og 19:00 föstudaginn 1. Júní verður kynning á sælkeraréttum veitingahússins Eldhúsið að Dalvegi 4. Eldhúsið býður uppá ljúffenga kjöt- og fiskrétti að hætti Gallerí kjöts og Fiskisögu. Fjölbreytt úrval af gæða kjöti og fisk á grillið. Matreiðslumeistarar grilla fyrir gesti og Ölgerðin verður með kynningu á staðnum. Nýr matseðlill daglega! Verði þér að góðu! Kynning á vörum Fiskisögu og Gallerí Kjöts
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.