Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.01.2013, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 05.01.2013, Qupperneq 32
5. janúar 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 32 Hálkan er svo gríðar-leg í Norðlingaholtinu þegar Fréttablaðs-fólk fer þangað að hitta Priyönku Thapa að bíllinn skransar út í skafl. Með góðri hjálp og lagni kemst hann þó aftur á rétta braut. Þarna býr Priyanka hjá Guðjóni Reykdal og foreldrum hans og aðstoðar hann við daglegt líf því hann er bundinn hjólastól. „Ég byrja klukkan sjö á morgnana að aðstoða Guðjón með dagleg störf svo sem að klæða hann í peysuna og finna til matinn. Þetta er gleði- leg og mjög skemmtileg vinna vegna þess að hann er með mér í skólanum,“ segir hún. Priyanka og Guðjón eru bæði að læra lyfjafræði í Háskóla Íslands og stunda námið stíft. „Við förum í skólann á morgnana og lærum síðan allan daginn,“ lýsir hún. „Ég skrifa niður fyrir okkur bæði það sem kennarinn segir og þar sem kennslan er öll á íslensku fæ ég aðstoð frá Guðjóni með að fara yfir fyrirlestrana. Kennararnir eru líka mjög góðir og hika ekki við að hjálpa mér.“ Stefnir á doktorsnám Priyanka er 24 ára. Hún ólst upp í Katmandú í Nepal, yngst fjögurra systkina. Faðirinn yfirgaf fjöl- skylduna þegar Priyanka var tveggja ára en móðirin og elsti bróðirinn unnu fyrir heimilinu en bróðirinn lést af slysförum árið 2008. Faðir hennar er líka dáinn. Þegar dvalarleyfi Priyönku rann út hér á landi fyrir rúmu ári ótt- aðist hún að verða neydd til að giftast einhverjum karli sem gæti séð fjölskyldunni farborða ef hún færi aftur til heimalandsins. Þau eru örlög margra kynsystra hennar þar. Hún vildi umfram allt vera áfram á Íslandi og það vill hún enn. „Þetta er besti staðurinn sem ég gæti óskað mér að vera á,“ segir hún. „Ég hef sótt um ríkisborgara- rétt og ef ég fengi hann væri það upphaf nýs ferðalags.“ Priyanka talar ljómandi góða íslensku þótt hún hafi ekki dval- ið hér á landi nema rúm þrjú ár. Hún kom upphaflega til landsins sem barnfóstra til Þórólfs Gunn- arssonar framkvæmdastjóra og Önnu Láru Steingrímsdóttur lyfja- fræðings og barna þeirra. Þau eru hennar nýja fjölskylda. Meðfram starfinu stundaði hún nám við verk- og raunvísindadeild Háskólabrúar Keilis. Þar sýndi hún og sannaði að hún er mikil lærdómsmanneskja og í nýafstöðnum jólaprófum í lyfja- fræðinni kveðst hún hafa fengið góðar einkunnir enda hafi hún lagt mikið á sig. „Maður uppsker eins og maður sáir,“ segir Priyanka, sem kveðst búin með eitt og hálft ár í lyfjafræðinni og annað eins sé eftir af BS-náminu. Því næst taki við tvö ár í MS-námi. „Svo stefni ég á doktorsnám (Ph.D) að því loknu,“ tekur hún fram. Spurð hvað hún geri í frí stundum svarar Priyanka: „Yfirleitt hef ég ekki mikinn frítíma því námið og vinnan taka nær allan minn tíma. En ég hef mjög gaman af því að elda og prufa eitthvað nýtt í þeim efnum. Mér þykir líka skemmti- legt að skrifa sögur og ljóð.“ Síðast- liðið sumar kveðst hún hafa ferðast talsvert. „Ég fór til Akureyrar og Mývatns, líka til London, Sví- þjóðar og Danmerkur. Svo fór ég í flúðasiglingu og gekk mikið um í Reykjavík til að kynnast höfuð- borginni betur.“ Sakna er ekki nógu sterkt orð Öðru hverju kveðst Priyanka hafa samband við fólkið sitt í Nepal, þó sjaldan vegna þess hve dýrt það er að hringja á milli landa. „Systkini mín eru ekki með net- samband en stundum fara þau á netkaffihús og geta haft sam- band við mig þannig,“ útskýrir hún. „Fjölskyldan hefur það fínt og ég vona að hún skilji nú hvað ég vil gera við líf mitt. Upp á síð- kastið hef ég sent henni smá pen- inga og veit að hún er ánægð.“ Langar hana ekki í heimsókn? „Jú, auð vitað, en ég er svo hrædd um að mér yrði ekki hleypt aftur hingað. Með nepölsku vegabréfi er ekki öruggt að ég kæmist aftur frá Nepal vegna vandamála þar í landi.“ Priyanka segir orðið sakna ekki nærri nógu sterkt til að lýsa því hversu sárt hún sakni fólksins síns. „Stundum hugsa ég hvað ég sé ólánsöm að vera svona langt frá mömmu og systkinum mínum en aftur á móti gerir það mig glaða að vera hér þegar ég lít á það sem ég hef í dag og það sem ég mun hafa í framtíðinni. Ég á líka góða fjölskyldu á Íslandi, hér er skólinn minn og vinir mínir. Allir sem ég kynnist hvetja mig til að ná því besta út úr lífinu og líf mitt í dag er það besta sem ég gæti óskað mér.“ Priyanka er enn í jólafríi og hún og Guðjón ætla að nota tækifærið þennan daginn og skreppa austur á Selfoss að hitta nepalska stúlku sem er nýflutt til landsins. Guð- jón er á sérútbúnum bíl sem hann ekur sjálfur og er sestur undir stýri þegar Fréttablaðsfólk skreið- ist aftur af stað út í hálkuna. Besti staðurinn til að vera á Hin nepalska Priyanka Thapa fékk tímabundið dvalarleyfi hér á landi á síðasta ári af mannúðarástæðum. Nú lærir hún lyfjafræði við HÍ og brillerar á prófum, auk þess að sinna fötluðum samnemanda sínum sem einnig gengur vel í náminu. PRIYANKA THAPA „Ég hef sótt um ríkisborgararétt og ef ég fengi hann væri það upphaf nýs ferðalags,“ segir hún. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is LÆRA SAMAN Guðjón og Priyanka fylgjast að í lyfjafræðináminu og hjálpa hvort öðru. Stundum hugsa ég hvað ég sé ólánsöm að vera svona langt frá mömmu og systkinum mínum en aftur á móti gerir það mig glaða að vera hér þegar ég lít á það sem ég hef í dag
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.