Fréttablaðið - 05.01.2013, Síða 38

Fréttablaðið - 05.01.2013, Síða 38
FÓLK|| FÓ K | HELGIN4 Það er misjafnt eftir árum hversu marga aukafrídaga vinnandi fólk fær. Árið 2013 verður eðalár á þessu sviði því fjórtán hátíðardagar á árinu lenda á virkum vinnudögum. Það eru tveimur fleiri en árið 2012 og fjórum dögum fleiri en árið 2011. Það er þó ekki víst að vinnuveit- endur séu sama sinnis þótt vissulega fái þeir frí líka. Þessir fjórtán dagar eru fyrir utan sumar- og vetrarfrí. Þetta er aukabónus sem vert er að gleðjast yfir á dimmum janúardögum. ■ Nýársdagur (þriðjudagur) ■ Skírdagur (28. mars) (alltaf fimmtudagur) ■ Föstudagurinn langi ■ Annar í páskum ■ Sumardagurinn fyrsti (25. apríl) ■ Uppstigningardagur (9. maí) ■ 1. maí (miðvikudagur) ■ Annar í hvítasunnu (20. maí) ■ 17. júní (mánudagur) ■ Frídagur verslunarmanna ■ Aðfangadagur jóla (þriðjudagur) ■ Jóladagur (miðvikudagur) ■ Annar í jólum (fimmtudagur) ■ Gamlársdagur (þriðjudagur) 2013 GEFUR MARGA AUKAFRÍDAGA Sigríður Anna Einarsdóttir starfar sem fjölskyldu- og félagsráðgjafi. Um áramótin 2009-2010 ákvað hún að gefa út hljómdisk með áramótalögum. „Vinnan við diskinn fór fram á árinu 2011 og kom út sama ár. Mót- tökurnar hafa verið mjög góðar sem segir mér að hugmyndin hafi verið hárrétt,“ segir Sigríður Anna um upphaf ævintýrisins í kringum útgáfu disksins Áramóta- og þrett- ándagleði. ÁLFAR OG TALANDI KÝR Fyrstu minningar Sigríðar Önnu eru úr sveitinni undir Eyjafjöllum þar sem hún ólst upp. „Þegar ég var lítil í sveitinni söfnuðum við krakkarnir saman eldiviði í þrett- ándabrennu, kveiktum í og döns- uðum í kringum eldinn og kveiktum á stjörnuljósum. Við ímynduðum okkur að kýrnar töluðu og að álfar flyttust búferlum þarna uppi í fjöll- unum.“ FÉLAGSRÁÐGJAFI GEFUR ÚT DISK En hvað fékk hana til þess að fara út í svona stórt verkefni? „Mig langaði að fylla heimilið af meiri stemmningu í kringum þrettánda og áramót og langaði líka að hlúa að þjóðararfinum. Ég beið þess allt- af að einhver gæfi út hljómdisk sem innihéldi áramótalög, en ekkert gerðist. Á endanum ákvað ég því bara að gefa út þennan disk sjálf.“ Í fyrstu áttu bara að vera áramóta- og þrettándalög á honum en það breyttist fljótt og við bættust þjóð- sögur, nýársljóð, erindi um áramót- in og að lokum nýársleikþáttur sem Jón Hjartarson skrifaði sérstaklega fyrir þessa útgáfu. „Þá fannst mér viðeigandi að láta syngja „Nú árið er liðið“ af nokkrum kynslóðum. Ég setti saman kór sem ég kalla Kyn- slóðakór og syngur hver hópur sitt erindi. Allt að áttatíu ára munur er á milli kynslóðahópanna í kórnum. Það er ákaflega hugljúft að hlusta á þennan flutning og auðvitað hlust- ar maður bara með hjartanu.“ ALLT LAGT Í ÚTGÁFUNA Hljómdiskurinn er tveggja diska útgáfa og mjög eigulegur. „Ég fékk til liðs við mig frábært fólk. Allir voru boðnir og búnir að leggja hönd á plóg og ég á hlýjar og góðar minningar frá samstarfinu. Verð ég öllu þessu fólki ævinlega þakklát.“ Vel yfir hundrað flytjendur komu að gerð plötunnar; kórar, einsöngv- arar, lúðrasveit, hljóðfæraleikarar, leikarar og doktor í menningar- sögu. Páll Orri Pétursson sá um upptökuna. „Þetta var ótrúlega mikil vinna og krefjandi en ég sé ekki eftir einu einasta augnabliki. Það er sérstök stemmning sem fylgir því að hlusta á diskana. Ég vildi gera hann þannig að hann yrði partur af hátíðinni og skap- aði áramótastemmningu á hverju heimili, líkt og jóladiskarnir skipta máli fyrir jólastemmninguna. Á viðbrögðum fólks heyrist mér að það hafa tekist, og það gleður mig ómælt.“ Á þrettándanum ætlar Sigríður Anna svo að fara á brennu, borða góðan mat og skjóta upp flugeldum. „Svo set ég diskinn á og læt hann færa mér þrettánda- stemmningu og hlakka mikið til,“ segir Sigríður Anna og hlær. ■ vidir@365.is ÁKVAÐ AÐ GERA ÞETTA BARA SJÁLF GAF ÚT DISK Sigríður Anna Einarsdóttir ólst upp við að halda áramót og þrettánda hátíðleg í sveitinni undir Eyjafjöllum. Fyrir áramótin 2011 gaf hún út veglegan geisladisk með lögum, sögum, ljóðum og leikþætti sem öll eiga það sameiginlegt að snúast um áramóta- og þrettándagleði. DANSAÐ KRINGUM ELDINN „Þegar ég var lítil í sveitinni söfnuðum við krakkarnir saman eldi- viði í þrettándabrennu, kveiktum í og dönsuðum í kringum eldinn og kveikt- um á stjörnuljósum,“ segir Sigríður Anna. MYND/ANTON Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is FERÐAFÉLAG ÍSLANDS Ferðaáætlun FÍ 2 013 er komin út
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.