Fréttablaðið - 05.01.2013, Blaðsíða 50
| ATVINNA |
Búseta
Þroskaþjálfi, félagsliði og stuðningsfulltrúi
óskast til starfa á heimili í Víðihlíð í
50% til 89% hlutastarf. Um er að ræða
morgunvaktir, kvöldvaktir og helgarvaktir.
Æskilegt er að viðkomandi geti byrjað sem
fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Hlutverk starfsfólks í búsetu er fyrst og
fremst fólgið í því að leiðbeina og styðja
íbúa í daglegu lífi.
Upplýsingar veita Guðrún Guðmundsdóttir
og Sigríður Árnadóttir í síma 568-0242 og
822-7242 milli kl.09.00-17.00. Upplýsingar
um félagið má finna á heimasíðu þess
www.styrktarfelag.is
Launakjör eru samkvæmt gildandi
kjarasamningum.
Skóla- og frístundasvið
Staða leikskólaráðgjafa á fagskrifstofu
leikskólamála á skóla- og frístunda-
sviði Reykjavíkurborgar
Skóla- og frístundasvið auglýsir eftir
leikskólaráðgjafa til að starfa á fagskrifstofu
leikskólamála á skóla- og frístundasviði
Reykjavíkurborgar.
Undir skóla- og frístundasvið heyrir rekstur leikskóla,
grunnskóla og frístundamiðstöðva Reykjavíkurborgar.
Fagskrifstofa leikskólamála leiðir nýbreytni og þróun
leikskólastarfs í Reykjavíkurborg, annast eftirlit með
starfsemi leikskóla og dagforeldra og veitir þeim ráðgjöf
og stuðning. Hlutverk hennar er enn fremur að undirbúa
og taka þátt í stefnumótun skóla- og frístundaráðs, yfirfara
og meta inntak skólanámskráa, starfsáætlana, fram-
kvæmd innra mats og umbótaáætlana sem gerðar eru í
kjölfar mats. Starfsmenn fagskrifstofu veita ráðgjöf vegna
samstarfs við foreldra, bera ábyrgð á og sitja í fjölmörgum
starfshópum og þverfaglegum teymum, auk þess að taka
þátt í hönnun á húsnæði og útileiksvæðum leikskóla.
Helstu verkefni
• Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur og starfsfólk
leikskóla
• Frumkvæði að þróun og nýbreytni í leikskólastarfi
• Innleiðing nýjunga í leikskólastarfi
• Ráðgjöf og eftirlit við skólanámskrárgerð
• Þátttaka í þróun matsatferða og innleiðingu þeirra
Menntunar- og hæfniskröfur
• Leikskólakennaramenntun
• Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi æskileg
• Þekking og reynsla af leikskólastarfi
• Góðir samskiptahæfileikar
• Sjálfstæði, frumkvæði og hæfni til að vinna í hópi
Leitað er að hugmyndaríkum einstaklingi sem hefur
víðtæka þekkingu á leikskólastarfi og áhuga á þróun og
nýsköpun á þeim vettvangi.
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf.
Leitað er að hugmyndaríkum einstaklingi sem hefur
víðtæka þekkingu á leikskólastarfi og áhuga á þróun og
nýsköpun á þeim vettvangi.
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf.
Upplýsingar um starfið veitir Hildur Skarphéðinsdóttir,
skrifstofustjóri fagskrifstofu leikskólamála skóla- og frí-
stundasviðs Reykjavíkurborgar, hildur.skarphedinsdottir@
reykjavik.is og í síma 693 9803 og Valgerður Janusdóttir,
starfsmannastjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborg-
ar, valgerður.janusdottir@reykjavik.is og í síma 411 11 11
sími: 511 1144
Forseti Félagsvísindasviðs HÍ
PIPA
R
\TBW
A
SÍA
123772
Háskóli Íslands leitar að öflugum stjórnanda og leiðtoga fyrir Félagsvísindasvið sem er eitt af fimm
fræðasviðum skólans. Félagsvísindasvið er stærsta svið Háskóla Íslands með um 4.800 nemendur
og hátt í 200 fastráðna starfsmenn. Félagsvísindasvið býður upp á fjölda námsleiða í sex deildum:
Félags- og mannvísindadeild, Félagsráðgjafardeild, Hagfræðideild, Lagadeild, Stjórnmálafræðideild
og Viðskiptafræðideild.
Forseti Félagsvísindasviðs starfar í umboði rektors. Hann er æðsti yfirmaður og akademískur
leiðtogi fræðasviðsins og stjórnar daglegri starfsemi þess. Með forseta fræðasviðs starfar
öflugt teymi stjórnenda og sérfræðinga.
Umsækjendur skulu hafa:
akademískt hæfi sem og þekkingu og reynslu á háskóla- og/eða rannsóknaumhverfi,
leiðtogahæfileika,
metnaðarfulla og skýra framtíðarsýn,
ríka samskiptahæfni,
víðtæka reynslu af stjórnun og stefnumótun.
Umsóknarfrestur er til 4. mars 2013. Nánari upplýsingar
um umsóknargögn, starfið og ráðningarferlið er að
finna á slóðinni: hi.is/skolinn/forseti_fvs
Forseti Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands
5. janúar 2013 LAUGARDAGUR10