Fréttablaðið - 05.01.2013, Page 64

Fréttablaðið - 05.01.2013, Page 64
5. janúar 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 36 Heilabrot BERGLIND REYNISDÓTTIR sem er fjögurra ára gömul sendi krakkasíðunni þessa fallegu mynd. Berglind á heima á Kristni- braut í Reykjavík. Laufey Kristjánsdóttir er átta ára. Henni finnst gaman á áramótunum og fagnar þeim vanalega í faðmi fjölskyldunnar. Mamma hennar á afmæli á ára- mótunum og foreldrar hennar eiga líka brúðkaupsafmæli, svo að gamlárskvöld er mikið gleði- kvöld hjá fjölskyldunni. Í ár voru áramótin dálítið öðruvísi en venjulega. Laufey fór nefnilega til Austurríkis með fjölskyldunni sinni og hún tók skíðagræjurnar að sjálf- sögðu með, því henni finnst fátt skemmtilegra en að vera á skíðum. En hvernig voru áramótin öðruvísi í Austurríki en á Íslandi? „Þau voru mjög skemmtileg en ég sá ekki eins marga flugelda og ég er vön og það var dálítið skrýtið,“ segir Laufey. Hún bætir við að dag- arnir í fríinu hafi verið frá- bærir, en fjölskyldan hélt jólin á Íslandi. „Við fórum út eftir jól til þess að vera á skíðum og mamma mín átti afmæli á gamlárskvöld.“ Laufey æfir hjá skíðadeild Ármanns og hefur gert það frá því hún var fjögurra ára gömul. Hún er því fim í íþróttinni og lætur engan stöðva sig í brekkunum. Reyndar hefur önnur vetrar- íþrótt náð athygli hennar nýlega en sú tengist ekki brekkum heldur svelli. „Ég fékk skauta í jólagjöf frá mömmu og pabba og er búin að fara oft á skauta síðan þá. Mér finnst skemmti- legast að skauta á tjörninni,“ segir Laufey og hlakkar til að æfa sig betur, en það verður líklega ekki fyrr en hún kemur heim til Íslands. Hún kveður og heldur af stað niður brekkurnar í austurrísku Ölpunum. Fáir fl ugeldar í Ölpunum Laufey Kristjánsdóttir fékk skauta í jólagjöf frá foreldrum sínum en varði áramótunum í Austurríki, þar sem hún skíðaði niður brekkurnar í Ölpunum. Í AUSTURRÍKI Laufeyju þykir fátt skemmti- legra en að vera á skíðum og var því ánægð með áramótaferð fjölskyldunnar til Austurríkis. 1. Hvað hefur maður á hægri hönd sem gengur á skíðum? 2. Hvað er það sem stendur í eldinum, án þess að brenna sig? 3. Hvenær hafa menn jafnmörg augu og dagar eru í árinu? 4. Veiðimaður sá tólf rjúpur sitja undir hrísrunna. Hann skaut eina. Hversu margar voru eftir? 5. Hvert virðist sterkasta dýrið í heiminum? 6. Maður átti þrjá syni og hver þeirra eina systur. Faðirinn gaf þeim hundrað þúsund krónur og bað þau að skipta þeim jafnt á milli sín. Hvað kom í hlut hvers? SVÖR 1. Fimm fingur. 2. Bókstafirnir í orðinu eldur. 3. 2. janúar. 4. Engin. Hinar flugu burt. 5. Snigillinn. Hann ber húsið sitt á bakinu. 6. 25 þús- und. Börnin voru fjögur. Teikningar og texti: Bragi Halldórsson 25 „En gaman,“ sagði Lísaloppa glöð. „Sudoku gáta! Þær eru svo skemmtilegar.“ Kata var ekki jafn glöð. „Hvað er þetta með þig og stærðfræði?“ spurði Kata. „Þú fagnar öllum stærð- fræðiþrautum.“ „Já ég geri það,“ sagði Lísaloppa. „Þær þjálfa heilann.“ Kata dæsti. „Þjálfa heilann já, eins og maður þurfi þess eitthvað.“ „Já heilinn er eins og vöðvarnir, þeir verða ekki sterkir nema maður þjálfi þá.“ Þetta skildi Kata. „Allt í lagi,“ sagði hún ákveðin. „Þjálfa heilann, hjólum í það,“ sagði hún og bretti upp ermarnar. 8 5 3 7 2 2 1 6 7 5 8 2 8 9 7 2 8 4 3 6 5 9 6 8 8 1 3 2 6 8 3 7 2 5 4 5 9 7 3 4 8 6 9 Getur þú hjálpað Lísuloppu og Kötu að leysa þessa Sudoku þraut?

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.