Fréttablaðið - 05.01.2013, Side 72

Fréttablaðið - 05.01.2013, Side 72
5. janúar 2013 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 44 Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRLAUG JÚLÍUSDÓTTIR Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum fimmtudaginn 3. janúar. Jarðarförin fer fram frá Hafnar- fjarðarkirkju fimmtudaginn 10. janúar kl. 13.00. Sverrir B. Valdemarsson Brynhildur Sverrisdóttir Atli Guðmundsson Júlíus Atlason Lilja Björk Einarsdóttir Jórunn Atladóttir Albert Steinn Guðjónsson Sóley Birna, Björgvin Atli, Bjarki Marinó og Gabríela. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓSKAR GUNNAR SAMPSTED prentari, Hraunbæ 70, lést 28. desember sl. Jarðarförin fer fram frá Árbæjarkirkju kl. 13.00 þriðjudaginn 8. janúar 2013. Bryndís Óskarsdóttir Gunnhildur Amelía Óskarsdóttir Gunnar Antonsson Elísabet S. Albertsdóttir Hörður S. Friðriksson Viktoría Dröfn og Albert Óskar Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur stuðning og samúð vegna andláts og útfarar RANNVEIGAR HÁLFDÁNARDÓTTUR Akranesi. Ólafur H. Þórarinsson Sigríður B. Ásgeirsdóttir Þórgunna Þórarinsdóttir Kristín S. Þórarinsdóttir Unnþór B. Halldórsson Þórunn R. Þórarinsdóttir Kristján Kristjánsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg systir mín, KRISTJANA ÓLÖF SVEINSDÓTTIR teiknari, Fjölnisvegi 13, andaðist að kveldi Þorláksmessu sl. á hjúkrunarheimilinu Skjóli. Útför Kristjönu Ólafar fer fram frá Áskirkju þriðjudaginn 8. janúar og hefst athöfnin kl. 13. Grímur Þ. Sveinsson Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, NJÁLL HARALDSSON sem lést sunnudaginn 30. desember, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 8. janúar kl. 13. Ingigerður Karlsdóttir börn, tengdabörn og barnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN ÞÓRHALLSDÓTTIR Árskógum 8, lést fimmtudaginn 3. janúar. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÁSGEIR PÁLSSON fv. yfirkennari, sem lést 27. desember, verður jarðsunginn frá Seljakirkju í Reykjavík miðvikudaginn 9. janúar kl. 13.00. Jón P. Ásgeirsson Rósa Ásgeirsdóttir Björn Gunnlaugsson og barnabörn. Okkar ástkæri, BJÖRN KOLBEINSSON lögfræðingur hjá EFTA, lést af slysförum föstudaginn 28. desember. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju föstu- daginn 11. janúar kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á Umhyggju, félag til styrktar langveikum börnum. Kolbeinn Sigurðsson Aðalheiður Ingvadóttir Sigurður Kolbeinsson Jóhannes Ingi Kolbeinsson Andrea Kristín Jónsdóttir Friðdóra Dís Kolbeinsdóttir Þórhildur Þórhallsdóttir Pétur Jónsson Elías Þórhallsson Berglind Inga Árnadóttir Hrafnhildur Þórhallsdóttir Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, mágur, afi og langafi, BJARNI DAGBJARTSSON Eirhömrum, Mosfellsbæ, lést á Hjartadeild Landspítalans við Hringbraut miðvikudaginn 2. janúar sl. Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 18. janúar nk. kl. 15.00. Aðalheiður Bjarnadóttir Kristján Þór Ingvarsson Dagbjartur Bjarnason Guðrún Steinþórsdóttir Guðbjörg Bjarnadóttir Viðar Sigurðsson Margrét Þyri Sigurðardóttir Jónas Eydal Ármannsson Jóhann Haukur Sigurðsson Guðrún Leósdóttir Hjálmtýr Dagbjartsson Hjördís Bogadóttir Jón Sverrir Dagbjartsson Þóra M. Bjarnadóttir barnabörn og barnabarnabörn. Sagan um Karíus og Baktus kom fyrst út á bók árið 1949 og síðan þá hafa þessir litlu þrjótar notið fádæma vinsælda meðal barna víða um heim enda skemmtilegri á sviði en í munni, eins og segir í fréttatilkynningu leik- hússins. Þeir hafa skotið upp kollinum víða, meðal annars í brúðukvikmynd, á hljómplötu og í leikhúsi. Nú um helgina birtast þeir á sviðinu í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu en Karíus og Baktus er annað tveggja leikrita sem Þjóð- leikhúsið setur upp í vetur til að fagna aldarafmæli höfundarins, Thorbjörns Egners. Í verkinu segir frá tannálfunum Karíusi og Baktusi sem hafa komið sér fyrir í munninum á drengnum Jens. Þar lifa þeir sældarlífi, enda er Jens helst fyrir að borða alls kyns sætindi og hann notar tannburstann lítið. Þess- ir tveir hrappar skemma tennurnar í Jens og þegar þeir gerast of aðgangs- harðir verður Jens að fara til tann- læknis. Í kjölfarið þurfa Karíus og Baktus að glíma við tannbursta og bor. Friðrik Friðriksson leikur Karíus en Ágústa Eva Erlendsdóttir Baktus og leikstjórn er í höndum Selmu Björns- dóttur. Sýningin, sem verður frum- sýnd í dag, tekur rúman hálftíma í flutningi. Skemmtilegri á sviði en í munni Leikritið um Karíus og Baktus eft ir Thorbjörn Egner frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í dag. BAKTUS OG KARÍUS Ágústa Eva Erlendsdóttir og Friðrik Friðriksson í hlutverkum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON „Þetta er þriðji dagurinn minn í starfi og ég er bara að koma mér inn í málin, taka við að stjórna þeim viðburðum sem búið er að skipuleggja á næstunni og horfa lengra fram á við,“ segir Íris Daníelsdóttir, nýr framkvæmdastjóri menningarhússins Bergs á Dalvík. Hún er menntaður viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Akureyri með áherslu á markaðsmál. Íris segir ótrúlega fjölbreytt starf í húsinu fyrir alla aldurshópa, miðað við smæð samfélagsins. „Hér er Bókasafn Dalvíkurbyggðar, kaffihús og fjölnota- salur sem tekur 160 manns í sæti og er mikið notaður fyrir hvers kyns viðburði. Þetta vinnur allt vel saman og húsið iðar af mannlífi flesta daga,“ segir Íris og tekur fram að á sumrin séu þar aðgengi- legar upplýsingar fyrir ferðamenn á svæðinu. Menningarhúsið Berg var formlega tekið í notkun 5. ágúst 2009. Það stend- ur í hjarta bæjarins og úr anddyrinu er fallegt útsýni yfir höfnina og út á Eyja- fjörðinn. Íris segir þar gott fyrir fólk að setjast niður, fá sér kaffi þegar kaffi- húsið er opið, lesa blöðin og fara á netið. Það sé líka upplagt fyrir minni sýningar og móttökur. En er kaffihúsið ekki alltaf opið? „Kaffihúsareksturinn hefur verið í höndum annarra aðila en menningar- hússins. Þeir hættu í nóvember. Nú er verið að stækka eldhúsið og vonandi fáum við nýja rekstraraðila í febrúar,“ svarar hún. En hvað er næst á dagskrá á menningarsviðinu, fyrir utan þetta dag- lega? „Um aðra helgi, 12. janúar, hefst ný tónleikaröð sem nefnist Klassík í Bergi. Þá halda Sæunn Þorsteinsdóttir sellóleikari og Sam Armstrong píanó- leikari fyrstu tónleikana í þeirri röð.“ Er Íris búsett á Dalvík? „Hér hef ég búið allt mitt líf,“ segir hún. „Bara skroppið að heiman nokkrum sinnum en alltaf komið aftur.“ - gun Húsið iðar af mannlífi Íris Daníelsdóttir viðskiptafræðingur hefur verið ráðin framkvæmdastjóri menningar- hússins Bergs á Dalvík. Hún segir fj ölbreytt starf þar fyrir alla aldurshópa. FRAMKVÆMDASTJÓRI BERGS Á DALVÍK „Hér hef ég búið allt mitt líf. Bara skroppið að heiman nokkrum sinnum en alltaf komið aftur,“ segir Íris.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.