Fréttablaðið - 05.01.2013, Síða 76

Fréttablaðið - 05.01.2013, Síða 76
5. janúar 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 48MENNING BÆKUR ★★ ★★★ Töfrahöllin Böðvar Guðmundsson UPPHEIMAR Jósep Malmholm situr á flugvellinum í Frank- furt þegar sagan hefst. Hann lætur hugann reika og rifjar upp æsku sína og lífshlaup meðan hann bíður þess sem verða vill. Sögutíminn er líklega 2008, rétt eftir hrunið stóra, en Jósep er þá um fimmtugt. Hann segir sögu sína frá fæðingu, af samskiptum við for- eldra sína og ýmsa velgjörðarmenn og af konunum í lífi sínu. Einn af stærstu áhrifavöldum í lífi aðalpersónunnar er Kormákur Cooltran, athafnamaður sem ásamt öðru rekur Varghól, veiðihús fyrir erlenda stóreignamenn. Jósep er ungur ráðinn þangað sem hesta- sveinn og hórusmali (eins og hann orðar það sjálfur) en starfsemi Varghóls miðar að því að halda við- skiptavinunum ánægðum og koma bílar, hestar, lax, hórur og kókaín þar mjög við sögu. Allt til þess að Kormáki takist ætlunarverk sitt, sem afhjúpað er undir lok bókar- innar. Lengst af er Jósep sannkölluð andhetja. Hann er litlaus og óspenn- andi karakter sem sífellt þráir viður kenningu annarra. Hann tekur aldrei afgerandi frumkvæði í sínu lífi, heldur sveiflast bara með, er undirlægja þeirra sem sterkari eru en hann. Hugsjónir hans og skoð- anir (ef hann hefur einhverjar) eru ekki frá honum komnar heldur apaðar upp eftir afa hans, Símoni frænda á Stóra-Háfi eða Kormáki Cooltran. Hann virðist gersamlega vængbrotinn án kvenna og gerir ótal tilraunir til að höndla ham- ingjuna í kvenmannslíki, en það gengur brösuglega. Jósep er enn fremur á köflum ansi ógeðfelld persóna, fullur af fordómum og mannfyrirlitningu. Lýsing hans á sjálfum sér þegar hann í örvæntingu sinni hugs- ar um að leita sér kvon- fangs á netinu er nokkuð nákvæm: „Rúmlega fertugan mann vantar góða konu sem vill eiga með honum börn. Reglusamur og í góðri vinnu. Engin börn frá fyrri hjónaböndum eða samböndum. – Og hvað meira? Þolir ekki lykt af fólki, þolir helst ekki að konan hafi komið nálægt öðrum manni, ósjálfstæður, áhuga- laus og áhrifagjarn. Las einu sinni ljóð og spilaði á píanó. Löngu hætt- ur hvoru tveggja. Hvaða lifandi manneskja mundi hafa áhuga á slíkum manni?“ (298- 299) Því miður hittir Jósep hér nagl- ann á höfuðið. Persóna hans er lítt áhugaverð og vekur aldrei samúð lesandans. Styrkur hans liggur einkum í samskiptum hans við þau Símon og Siggu á Stóra-Háfi, en þau eru langgeðfelldustu persónur sög- unnar. Dyggðum prýtt sveitafólk sem reynist Jósep vel alla hans ævi og þau laða það besta fram í honum. Afinn Jósep er annar elskulegur karakter og skemmtilegur, þótt hann byggi á öllum sósíalistaklisj- um sem til eru, blindur af aðdáun á Sovétríkjunum og leiðtogum þeirra. Töfrahöllin fjallar um stór- mennskudrauma og mikilmennsku- brjálæði á borð við þá sem leiddu af sér hrunið, en líka um leit mann- eskjunnar að viðurkenningu og samastað í tilverunni. Það er ef til vill ekki mjög gæfu- legt að skrifa þetta í umsögn um bækur, en hér á það vel við: Þessi bók er allt of löng. Efnið er rýrt en það er teygt yfir rúmar 400 síður, sem gerir Töfrahöllina að einhverju besta svefnmeðali jólavertíðarinn- ar. Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir NIÐURSTAÐA: Löööng saga um stór- mennskudrauma og leit manneskjun- nar að samastað. Saga af hestasveini og hórusmala Yngsta kynslóð íslenskra tónskálda verður í aðalhlutverki á tónleikum Caput í Kaldalóni í Hörpu í dag. Þar með rekur hópurinn smiðshöggið á þriggja tónleika röð í Kaldalóni, sem haldnir voru í tilefni loka 25. starfsárs hans en á fyrri tónleik- unum voru leikin verk eftir Þorkel Sigurbjörnsson og Atla Ingólfsson. Á tónleikunum í dag verða leik- in verk eftir sjö ung tónskáld: Árna Frey Gunnarsson, Finn Karls- son, Hafdísi Bjarnadóttur, Halldór Smárason, Hauk Þór Harðarson, Petter Ekman og Þórunni Grétu Sig- urðardóttur. Öll eiga þau það sameiginlegt að hafa lært hjá Atla Ingólfssyni við Tónsmíðadeild Listaháskóla Íslands. Í tilkynningu frá Caput segir að þótt þau hafi lært af sama kennara sé ekkert þeirra steypt í sama mót og megi því búast við fjölbreyttri tón- list. Caput hópurinn sérhæfir sig í flutningi nútímatónlistar. Hann var stofnaður 3. janúar 1988 og sigl- ir því inn í 26. starfsár sitt nú um mundir. Tónleikarnir hefjast klukk- an 17. Stjórnandi er Guðni Franzson. Ungskáld í öndvegi hjá Caput Caput rekur smiðshöggið á tónleikaröð í tilefni loka 25 ára starfsafmælis. HAFDÍS BJARNADÓTTIR Verk hennar Krónan er á efnisskrá tónleika Caput hópsins ásamt verkum eftir sex önnur tónskáld af yngri kynslóðinni. OPIÐ Í DAG FRÁ 11-16 SMELLTUÁ KÖRFUNANETBÆKLINGUR Á WWW.TOLVUTEK.IS MEÐ GAGNVIRKUM KÖRFUHNAPP Tölvutek • Reykjavík • Borgartúni 31 • 563 6900 • Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 • www.tolvutek.is .
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.