Fréttablaðið - 05.01.2013, Síða 78

Fréttablaðið - 05.01.2013, Síða 78
5. janúar 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 50 BÓKIN SEM BREYTTI LÍFI MÍNU Eiríkur Guðmundsson rithöfundur og gagnrýnandi „Ég er ekki viss um að bækur geti breytt lífi manns nema þegar maður er mjög ungur, ómótaður og í vissum skilningi ekki neitt. Seinna sannfærir maður sig um að þær hafi skipt sköpum við mótun þeirrar myndar sem maður vill draga upp af sjálfum sér. Það má hins vegar tala um endur- fæðingar. Þær hafa verið nokkrar í mínu tilfelli, og tengst jafn ólíkum verkum og fyrstu skáldsögum Einars Más þegar ég var barnungur, ljóðum eftir Fernando Pessoa og Rilke, og skáldsögum Faulkners, Do- stójevskís, Kawabatas, og Leyndardómum Hamsuns. Nýjasta endurfæðingin stendur yfir andspænis síðustu verkum japanska rithöfundarins Yukio Mishima, kvartett sem lokið var þann 25. nóvember árið 1970, daginn sem höfundurinn svipti sig lífi eins og að var stefnt. Yfir þessu dauðans verki endurfæðist ég á hverjum degi nú í myrkri aðventunnar. Ég held mig þó til einföldun- ar við Töfrafjallið, ógleymanlega skáldsögu eftir þýska rithöfundinn Thomas Mann frá árinu 1924. Hvað er fallegra en „elsk- endur“ sem skiptast á röntgenmyndum? Og er hægt að kynna persónu betur til sögunnar en svona: „Þetta er Madame Chauchat […] Hún er svo kærulaus.“ Ástin vaknar nær samstundis. Töfrafjallið er ein þeirra bóka sem manni finnst að rúmi allt. Ég reyni ekki einu sinni að lýsa henni. Hún rak mig fyrir löngu út á snævi þaktar svalir með þríarma kertastjaka og nokkur Álafossteppi og hafði varanleg áhrif. Síðan þá hef ég aldrei fest rætur á flatlendinu.“ Töfrafj allið eft ir Thomas Mann HVAÐ? HVENÆR? HVAR? LAUGARDAGUR 05. JANÚAR 2013 Fundir 11.00 Edda Björgvinsdóttir talar á laugardagsfundi Heilaheilla í Síðumúla 6. Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir og aðgangur ókeypis. 13.30 Fundur Félags kennara á eftir- launum verður haldinn á Grand-Hóteli. Margrét Sveinbjörnsdóttir flytur erindi um Þingvallasveit á 20. öld klukkan 15. Erindið er undir yfirskriftinni Afdala- sveit í alfaraleið. Uppákomur 16.00 Myndbandsverkið The Shades of Blue eftir Mariko Takahashi verður sýnt í Bókabúðinni– verkefnarými í Skafta- felli– miðstöð myndlistar á Austurlandi. 17.00 Svissnesku listamennirnir Livia Salome Gnos og Stephan Perrinjaquet hafa dvalið í gestavinnstofu Skaftfells frá því í desember og ljúka nú dvöl sinni með því að opna vinnustofuna fyrir gestum. Tónlist 16.00 Hrafnhildur Árnadóttir sópran og Matthildur Anna Gísladóttir píanisti flytja þekktar aríur úr óperubók- menntum í Þjóðmenningarhúsinu. Aðgangseyrir er kr. 2.000 en kr. 1.500 fyrir nemendur og ellilífeyrisþega. SUNNUDAGUR 06. JANÚAR 2013 Félagsvist 14.00 Félagsvist verður spiluð í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14. Allir velkomnir. 19.00 Bridge tvímenningur er spilaður í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14. Allir velkomnir. Uppákomur 18.00 Þrettándabrenna verður haldin á Ægisíðunni við KR-heimilið. Dansleikir 20.00 Dansleikur Félags eldri borgara í Reykjavík verður haldinn að Stangarhyl 4. Danshljómsveitin Klassík leikur létta danstónlist. Aðgangseyrir er kr. 1.500 fyrir félaga í FEB í Reykjavík og 1.800 fyrir aðra gesti. Tónlist 14.30 Dúó Stemma spilar á stokka og steina á lokadegi sýningarinnar Teikn- ing– þvert á tíma og tækni í Þjóðminja- safni Íslands. Aðgangur er ókeypis. Seinni skemmtun verður klukkan 15.30. 17.00 Andrea Jónsdóttir leikur lög af hljómplötum á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg 8. Ókeypis aðgangur. 17.00 Þrettánda/nýárstónleikar verða haldnir í Þjóðmenningarhúsinu. Spiluð verður tónlist eftir Inga Bjarna Skúla- son og ef til vill fleiri. Aðgangseyrir er kr. 1.000. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.isFÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100 | STOD2.IS | VERSLANIR VODAFONE | VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000 HM SPORTPAKKINN inniheldur áskrift að HM í handbolta auk þess sem ÁFRAM ÍSLAND trefill fylgir með. HM SPORTPAKKINN Þú færð HM SPORTPAKKANN í handboltabás Stöðvar 2 Sport í Kringlunni og í Skaftahlíð 24. VALDIR LANDSLIÐSMENN MÆTA OG ÁRITA PLAKÖT Í HANDBOLTABÁS STÖÐVAR 2 SPORT Í KRINGLUNNI Í DAG Á MILLI KL. 14 OG 16.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.