Fréttablaðið - 05.01.2013, Page 80

Fréttablaðið - 05.01.2013, Page 80
5. janúar 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 52 ➜ Ferskan aspas er hægt að kaupa stóran og lítinn. Sá litli er hentugur til að nota í matar- boð. Ótrúlega góður réttur og fljótlegur sem kemur öllum á óvart sem ekki hafa notað ferskan aspas áður. Halla Bára Gestsdóttir Gunnar Sverrisson homeanddelicious.com 1. Ferskur aspas með smjöri, eggi og parmesan Ferskan aspas er hægt að kaupa stóran og lítinn. Sá litli er hentugur til að nota í matarboð. Ótrúlega góður réttur og fljótlegur sem kemur öllum á óvart sem ekki hafa notað ferskan aspas áður. ferskur aspas, lítill, um 8–10 stönglar á mann, stór 4-6 á mann egg, 1 á mann smjörklípa eða góð ólífuolía rifinn parmesanostur salt og pipar ef vill Snyrtið aspasinn, það þarf að skera trosnaða enda af honum að neðan. Sjóðið í nokkrar mínútur í saltvatni en suðutími fer algjörlega eftir stærð stönglanna. Sjóða þarf aspasinn þar til hann er mjúkur þegar stungið er í hann með oddhvössum hníf. Sjóðið egg, frekar lítið svo rauðan springi yfir aspasinn. Athugið að hér má fara einfaldari leið og spæla egg í staðinn. Þerrið aspasstönglana og setjið heita á disk. Smjör og olíu yfir. Þá egg og nóg af parmesanosti. Salt og pipar ef þið viljið. 2. Spagettí með humarsósu 600 g kirsuberjatómatar 1 rautt chili, fræhreinsað og skorið smátt ½ laukur eða 2 skalottlaukar, saxaðir 1 hvítlauksrif, saxað 50 g smjör salt og pipar 1½ dl hvítvín 400 g spagettí 750 g humar, skelflettur og hreinsaður, skorinn í munnbita 1 dl rjómi hnefi fersk basilíka, söxuð Látið tómata, chilipipar, lauk, hvítlauk og smjör malla á pönnu á vægum hita í 10 mínútur eða þar til laukurinn er mjúkur. Kremjið tómatana á pönnunni. Saltið og piprið. Hellið víninu yfir og látið malla í 5 mínútur eða þar til vínið hefur gufað upp. Sjóðið spagettíið á þessu stigi elda- mennskunnar. Hellið rjómanum út í sósuna og hrærið saman. Setjið humarinn út í heita sósuna og látið malla í 2–3 mínútur eða þar til hann er heitur og eldaður í gegn. Blandið sósunni saman við spagettí- ið. Stráið basilíku yfir áður en borið er fram. Sumir vilja strá parmesanosti yfir en ekki eru allir á því að nota hann með fiski, svo ykkar er valið. 3. Grillaður ananas með Nutella-súkkulaðisósu Frábær leið til að nýta sér kosti fersks ananass. 1 ferskur ananas, skorinn í sneiðar ½ bolli hnetur að eigin vali, pistasíur og heslihnetur eru góðar, saxaðar ¼ tsk. vanilludropar 1/3 bolli mascarpone-ostur við stofuhita 1/3 bolli Nutella-súkkulaði í krukku 3 msk. rjómi Afhýðið ananasinn og skerið í sneiðar. Kjarnhreinsið. Gott er að brúna á þessu stigi, á pönnu eða í ofni, þær hnetur sem þið veljið að nota í réttinn. Hrærið vanilludropana saman við mascarpone-ostinn og mýkið ostinn vel. Gott er að láta hann standa við stofuhita í nokkurn tíma svo betra sé að eiga við hann. Hitið Nutella og rjóma saman í potti við vægan hita. Grillið ananassneiðarnar á útigrilli eða grillpönnu þar til hann er heitur í gegn, um 3 mínútur á hlið. Snúið sneiðunum bara einu sinni svo fal- legar grillrákir myndist. Setjið tvær sneiðar á disk. Dreypið Nutella- sósu yfir, setjið mascarpone-klípu í miðjuna og stráið hnetum yfir. Berið fram heitt. FERSKUR ASPAS, HUMAR OG ANANAS Hugmynd að réttum sem passa vel saman í létta og góða máltíð eða óformlegt matarboð, jafnvel á þrettándanum. Ferskur aspas í forrétt, pasta með humri í aðalrétt og ferskir ávextir í eft irrétt. 1 2 3 Nicotinell með 15% afslætti í janúar Við hlustum og ráðleggjum þér 15% afslátt ur af ö llum Nicotin ell vöru m í janúa r Allar tegundir, allir styrkleikar og allar pakkningastærðir. Höfuðborgar- svæðið Austurver Domus Medica Eiðistorg Fjörður Glæsibær Hamraborg JL-húsið Kringlan Landsbyggðin Glerártorg Akureyri Hrísalundur Akureyri Dalvík Hella Hveragerði Hvolsvöllur Keflavík Selfoss Vestmannaeyjar Þorlákshöfn

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.