Fréttablaðið - 05.01.2013, Page 87
LAUGARDAGUR 5. janúar 2013 | MENNING | 59
Leikkonan Krysten Ritter hefur
verið orðuð við hlutverk Anast-
asiu Steele, söguhetju bókanna
Fifty Shades of Grey, í kvikmynd
sem byggð verður á bókinni.
Ritter er þekktust fyrir hlutverk
sitt sem Jane Margolis í sjón-
varpsþáttunum Breaking Bad.
Aðrar leikkonur sem orðað-
ar hafa verið við hlutverkið eru
Mila Kunis, Emma Watson, Anne
Hathaway og Ashley Greene.
Ritter þakkaði fyrir áhugann á
Twitter-síðu sinni með orðunum:
„Takk, ég væri til í þetta.“ Leik-
ararnir Ryan Gosling, Alexander
Skarsgaard og Ian Somerhalder
þykja fýsilegir í hlutverk við-
skiptajöfursins Christian Grey.
Vill vera Steele
VILL VERA ANASTASIA Leikkonan
Krysten Ritter gæti hugsað sér að taka
að sér hlutverk Anastasiu Steele.
NORDICPHOTOS/GETTY
Söngkonan Jennifer Lopez segir
kærasta sinn, dansarann Casper
Smart, vera sinn besta vin.
„Hann er dásamlegur og er
minn besti vinur. Ég get sagt
honum allt, frá vanlíðan minni
og gleði minni. Hann veitir mér
mikinn stuðning, endalausa ást
og stuðning,“ sagði Lopez um ást-
mann sinn í viðtali við Harper´s
Bazaar.
Lopez segist einnig hafa orðið
hissa þegar hún fagnaði fertugs-
afmæli sínu. „Þegar ég varð fer-
tug hugsaði ég: Ha? En ég er sátt-
ari við sjálfa mig núna.“
Kærastinn er
besti vinurinn
ÁSTFANGIN Jennifer Lopez segir
kærasta sinn vera sinn besta vin.
NORDICPHOTOS/GETTY
Tískuljósmyndarinn Tommy
Ton fór yfir tískuárið 2012 á
vefsíðunni Style.com. Honum
þótti ýmislegt bera af á árinu
og nefndi meðal annars
hálfíslenska tískumerkið Ost-
wald Helgason til nýliða ársins.
Rússnesku tískuíkonin Miros-
lava Duma og Anya Ziourova
voru oft myndaðar í hönnun
Ostwald Helgason. Ingvar
Helgason og Susanne Ostwald
standa að baki merkinu, sem
hefur verið á mikilli siglingu
undanfarið ár.
Ostwald Helgason þótti best
Tískuljósmyndarinn Tommy Ton taldi hálfíslenska tískumerkið til nýliða ársins.
RÚSSNESKT
TÍSKUTÁKN
Tískublaða-
maðurinn
Miroslava
Duma verður
áberandi þegar
tískuvikurnar
renna í hlað.
Hún er mikill
aðdáandi tísku-
merkisins.
RÚSS-
NESKUR
AÐDÁANDI
Anya
Ziourova er
tískuritstjóri
rússneska
Tatler. Hún
er einnig
aðdáandi
Ostwald
Helgason.
OSTWALD HELGASON Hönnunar tví eykið Ingvar Helgason
og Susanne Ostwald býr og starfar í London. Þau hafa
slegið í gegn með hönnun sinni. NORDICPHOTOS/GETTY
Miðasölusími 568 8000 | borgarleikhus.is
Þessi geysivinsæla sýning
snýr loksins aftur.
Leiksýningin Skoppa og Skrítla í leikhúsinu var
frumsýnd árið 2006 og hefur verið sýnd um 200
sinnum í þremur heimsálfum.
Ótrúleg upplifun fyrir börn og ef til vill sú
fyrsta, á leikhúsinu og töfrum þess. Stund sem
vonandi flest börn og foreldrar geta notið saman.
sýningar hefjast 12. janúar.
Ath! Takmarkaður sýningafjöldi.
Tryggið ykkur miða strax.