Fréttablaðið - 07.11.2015, Page 8

Fréttablaðið - 07.11.2015, Page 8
B 180, árgerð 2013, ekinn 38 þús. km, sjálfskiptur, dísil, 109 hö. Bakkmyndavél, árekstrarvari, krómpakki, hiti í framsætum, 16" álfelgur, inniljósapakki, sætisþægindapakki o.fl. Verð 4.490.000 kr. Afb./mán. 41.900 kr.* Flug fyrir 2 með öllum notuðum Mercedes-Benz Mercedes-Benz B–Class nýtur mikilla vinsælda, enda framúrskarandi kostur. Þeir sem kaupa notaðan Mercedes-Benz í eigu Öskju í nóvember, að verðmæti 1,5 milljónir eða meira, fá flug fyrir tvo með WOW Air í kaupbæti og vetrardekk að auki. Allir notaðir Mercedes-Benz hjá okkur hafa fengið þjónustuskoðun fyrir veturinn. *Mánaðargreiðsla m.v. 50% bílalán í 72 mánuði. Vextir 9% og árleg hlutfallstala kostnaðar er 10,73–10,79% � � �� � �� � � �� �� �� �� �� � �� � � � Kletthálsi 2 • 110 Reykjavík • Sími 590 2160 • www.notadir.is. Opið virka daga kl. 10–18 og laugardaga kl. 12–16. Flug fyrir 2 til Kaupmannahafnar, Berlínar, London eða Dublin. náttúra Mælingar vísindamanna Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands í lok október sýna að Eystri- Skaftárketill er allt að tvisvar sinn- um stærri að flatarmáli en hann var sumarið 2010. Gríðarleg stækkun ketilsins skýrir hversu miklu stærra Skaftárhlaupið í október reyndist miðað við öll fyrri hlaup úr katl- inum. Aukið vatnsmagn á milli hlaupanna 2010 og 2015 er mælt í mörgum milljónum tonna. Magnús Tumi Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur og prófessor við Háskóla Íslands, segir bráða- birgðaniðurstöður mælinganna á stærð ketilsins sýna ótvírætt að hann hefur stækkað mjög mikið frá 2010, en 24. október tókst að mæla ketilinn með flughæðarmæli vélar Isavia, TF-FMS, þar sem lögun hans var kortlögð með því að fljúga níu ferðir yfir ketilinn. Við samanburð á niðurstöðum eldri mælinga kemur í ljós hvernig ketillinn hefur víkkað, og hefur sú víkkun nánast öll orðið eftir Skaftárhlaupið 2010. Eins og kunnugt er hefur verið beðið síðan 2013 eftir hlaupinu sem ruddist loks fram í síðasta mánuði, enda sýnir hlaupaannáll að hlaup úr eystri katl- inum hafa ætíð komið með 2-3 ára millibili frá árinu 1955, en þá kom fyrsta verulega Skaftárhlaupið. Fyrir þann tíma fóru þau út í Langasjó og hvort tveggja flóðtoppur og aur- burður var miklu minni. Áður en tókst að mæla ketilinn 24. október lágu fyrir skýr merki um stækkun ketilsins til vesturs, austurs, og suðurs. Þá hafði yfirborð jökulsins risið á hefðbundinn hátt fyrst eftir hlaupið 2010 en frá og með 2011 var það hægara en áður hafði sést og hætti með öllu 2013 – en þá hófst bið vísinda- og heima- manna eftir hefðbundnu Skaftár- hlaupi. Nú liggur fyrir að jarðhitinn undir jöklinum hefur færst til, en ekki aukist, og útreikningar Jarðvísinda- stofnunar Háskólans eru sláandi. Eins og fyrri gögn sýna var flatarmál ketilsins talið um fjórir ferkílómetr- ar en er núna 7-10 ferkílómetrar – en það er ákveðið matsatriði hvar skuli setja útmörk ketilsins. Mesta sig mældist 120 metrar í norðvestur- hluta hans. Rúmmál ketilsins með sprungum meðfram jöðrum hans mælist u.þ.b. 340 milljónir rúm- metra. Því er áætlað hlaupvatn 366 milljónir rúmmetra vatns með 44 milljóna rúmmetra skekkjumörk- um í báðar áttir. Til skýringar jafn- gildir það því að 366 milljónir tonna af vatni hafi runnið til sjávar dagana sem hlaupið stóð yfir. Magnús Tumi sagði í erindi sínu og í umræðum ráðstefnugesta á ráðstefnu FutureVolc-verkefnisins á fimmtudag að haldi þessi þróun áfram sé það mjög mikið áhyggju- efni. „Það er áhugavert en jafnframt alvarlegt ef þessi þróun heldur áfram. Ef hlaupin stækka jafnvel enn meira frá því sem nú var þýðir það að eyðilegging af völdum þeirra verður mun meiri en verið hefur hingað til í Skaftárhlaupum.“ Í viðtali við Fréttablaðið segir Magnús Tumi ekkert liggja fyrir um þróun næstu ára. Kannski færist jarðhitinn aftur á þann stað undir jöklinum sem þekktur var, en það sé heldur ekki hægt að útiloka þann möguleika að ketillinn stækki enn – biðin verði enn lengri en fimm ár eftir næsta flóði sem yrði þá mögu- lega enn stærra en menn urðu vitni að í október. svavar@frettabladid.is Munurinn mælist í milljónum tonna Magn flóðvatnsins sem ruddist til sjávar í síðasta Skaftárhlaupi er metið á milli 300 og 400 milljónir tonna. Flatarmál ketilsins mælist nú 7-10 ferkílómetrar en var fjórir ferkílómetrar þegar síðast hljóp árið 2010. Alvarleg þróun ef hlaupin stækka jafnvel enn meira, segir sérfræðingur. Um það bil 26 milljónir rúmmetra er aukning bráðnunar á leið hlaups undir jökli metin Mesta sig mældist 120 m í norðvesturhluta ketilsins Um það bil 340 milljónir rúmmetra Rúmmál ketilsins með sprungum með jöðrum hans nú er flatarmál ketilsins 7-10 km2 en var fjórir ferkíló- metrar árið 2010 Um það bil 366 milljónir tonna af vatni hafa runnið til sjávar dagana sem hlaupið stóð yfir Ef hlaupin stækka jafnvel enn meira frá því sem nú var þýðir það að eyðilegging af völdum þeirra verður mun meiri en verið hefur hingað til í Skaftár- hlaupum. Magnús Tumi Guð- mundsson jarðeðlis- fræðingur 7 . n ó v e M b e r 2 0 1 5 L a U G a r D a G U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a b L a ð i ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.