Fréttablaðið - 07.11.2015, Qupperneq 56
| AtvinnA | 7. nóvember 2015 LAUGARDAGUR8
SMIÐIR ÓSKAST
Gluggar og Garðhús hf. óskar eftir að ráða vana
smiði í fullt starf við smíðar og uppsetningar.
Vinsamlega sendið inn umsókn á
gluggar@solskalar.is
Fossakot · Fossaleyni · 112 Reykjavík
Viltu ganga
í lið með okkur?
Leikskólinn Fossakot í Grafarvogi
óskar eftir skemmtilegu og drífandi starfsfólki
sem býr yfir hæfni í mannlegum samskiptum,
áreiðanleika og frumkvæði.
Við leitum að:
Umsóknir skulu berast fyrir 13. nóvember,
áhugasamir sendi ferilskrá
á umsoknir@lfa.is
Leiðbeinendum
Leikskólakennurum
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Hjúkrunarmenntun
• Starfsleyfi landlæknis
• Góð færni í samskiptum
• Sjálfstæði og stundvísi
Allar nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást á www.hrafnista.is
Hjúkrunarfræðingar
Hrafnistu Reykjavík
Laus er til umsóknar staða hjúkrunarfræðings á Hrafnistu Reykjavík. Staðan er laus eftir samkomulagi. Starfshlutfall samkomulag. Einnig er laus 30% staða
hjúkrunarfræðings á næturvaktir.
HRAFNISTA REYKJAVÍK
Upplýsingar veitir og umsóknir skulu berast til Sigrúnar Stefánsdóttur forstöðumanns Hrafnistu í Reykjavík fyrir 24. nóvember n.k. á netfangið sigrun.stefansdottir@hrafnista.is, sími 664 9400.
Norræna húsið leitar
að tæknikonu/manni
í ��% stöðu
Ert þú einstaklingurinn
sem við leitum að?
– Þú hugsar í lausnum og hefur
frábæra þjónustulund
– Þú getur haldið ótal boltum
á lofti í einu
– Þú vinnur skipulega og hefur
góða yfirsýn
– Þú átt auðvelt með að tileinka
þér nýja tækni
– Þú ert líkamlega sterk/ur og ræður
við að flytja til húsgögn
Helstu viðfangsefni:
– Undirbúa viðburði í og við húsið
– Sjá um tæknimál á fjölbreyttum
viðburðum
– Stilla upp búnaði og ganga frá
eftir viðburði
– Sjá til þess að húsið líti snyrtilega
út og allt sé í standi
– Hjálpa til við uppsetningu sýninga
– Þjónusta gesti og viðskiptavini
hússins
Hæfniskröfur:
Leitað er að einstaklingi sem hefur
reynslu af því að vinna með viðburði og
tæknimál þeim tengdum, þ.á.m. ljós,
hljóð, glærukynningar, kvikmynda
sýningar o.þ.h. Viðkomandi þarf að
skilja og geta tjáð sig á íslensku og
ensku. Færni í skandinavísku tungu máli
er kostur. Við leitum að sjálfstæðum,
skipulögðum og ábyrgum einstaklingi
sem á auðvelt með að vinna undir álagi.
Athugið að vinnutími er aðallega
seinnipartinn, um kvöld og helgar.
Umsjón með ráðningu hefur Þórunn
Ragnarsdóttir, fjármálastjóri, og veitir
hún upplýsingar um starfið í síma
551 7030 eða í gegnum netfangið
thorunn@nordichouse.is.
Umsóknarfrestur er til og með
23. nóvember 2015. Umsóknir skulu
fylltar út á www.norden.org.
Með umsókninni þarf að fylgja
starfsferilskrá og stutt kynningarbréf
þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar og hæfni viðkomandi í
starfið. Umsókn skal vera á dönsku,
sænsku, norsku eða ensku.
Ráðið er í starfið til fjögurra ára
með möguleika á framlengingu
ráðningarsamnings í fjögur ár
í viðbót skv. reglum Norrænu
ráðherranefndarinnar. Upplýsingar
um Norræna húsið má finna
á www.norraenahusid.is.
Norræna húsið í Reykjavík er norræn
menningarstofnun með áherslu á
bókmenntir, tungumál, arkitektúr,
hönnun, börn og ungmenni og sjálfbæra
þróun. Markmið hússins eru að koma
norrænni menningu á framfæri og
styrkja tengsl við hin Norðurlöndin.
Norræna húsið er leiðandi afl í íslensku
menningarlífi og húsið er eitt af
meistaraverkum Alvars Aalto.
Rafvirki eða vélvirki
Héðinn Schindler lyftur ehf.
óskar eftir rafvirkja eða vélvirkja
Starfssvið:
Eftirlit, viðgerðir og uppsetningu á lyftum og rennistigum.
Einnig önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar og hæfniskröfur:
Sveinspróf í rafvirkjun eða vélvirkjun er skilyrði.
Tölvukunnátta, nákvæm og skipulögð vinnubrögð.
Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfsstætt, hafa góða
þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
Umsókn með upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendist á schindler@schindler.is.
Fósturforeldrar - fósturbörn
Hefur þú áhuga á að gerast fósturforeldri?
Barnaverndarstofa leitar að fólki sem er reiðubúið að
sækja um leyfi til að taka börn í fóstur og að taka þátt í
sérstakri þjálfun því til undirbúnings.
Um getur verið að ræða tímabundið og/eða varanlegt
fóstur.
Æskilegt er að fósturheimili séu í eða í námunda við
þéttbýli. Ýmis reynsla og menntun, einkum á sviði
umönnunar barna, getur komið að góðu gagni.
Nánari upplýsingar eru veittar á Barnaverndarstofu
sími: 530 2600 eða netfang: bryndis@bvs.is.
Einnig er hægt að afla sér upplýsinga um umsóknarferli
og hlutverk fósturforeldra á http://www.bvs.is