Fréttablaðið - 07.11.2015, Side 70
| AtvinnA | 7. nóvember 2015 LAUGARDAGUR22
4 STÖRF Í TÖLVULISTANUM
Tölvulistinn er í stöðugum vexti um allt land.
Leitum að hæfileikaríkum og þjónustulunduðum
sölufulltrúum og verslunarstjórum til að bætast í hópinn.
Hvetjum áhugasama af báðum kynjum til þess að
fylla út rafræna umsókn á heimasíðu okkar tl.is
SÖLUFULLTRÚI Á SUÐURLANDSBRAUT OG Á AKUREYRI
Óskum eftir að ráða tæknilega sterkan sölufulltrúa sem er
þjónustulundaður og leysir verkefni sín af samviskusemi og jákvæðni.
SÖLLUFULLTRÚI Í FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTU
Leitum að sölufulltrúa í þjónustu og öflun nýrra viðskiptavina á
fyrirtækjasvið okkar. Æskilegt að umsækjendur hafi góða sölureynslu
og þekkingu á tölvuþörfum fyrirtækja.
VERSLUNARSTJÓRI Á SELFOSSI
Höfum áhuga á að ráða traustan og áreiðanlegan verslunarstjóra fyrir
Tölvulistann og Heimilistæki á Selfossi. Stjórnunarhæfileikar og rík
þjónustulund eru æskilegir kostir.
Rekstrarstjóri óskast til starfa til að sjá um daglegan rekstur hjá Finna Hotel á Hólmavík.
Um er að ræða 21 herbergja hótel í 2 einingum á Hólmavík. Við leitum af einstaklingi með
daglegan rekstur hótelsins í huga, sem og viðhald og umsjón fasteignarinnar auk annarra
tilfallandi verka.
Manneskja með frumkvæði og metnað, hæfni í mannlegum samskiptum, dugnað og lipurð
kemur einungis til greina. Enskukunnátta er skilyrði og reynsla af hótelstarfi er kostur. Um
framtíðarstarf er að ræða.
Þarf að geta hafið störf sem allra fyrst, umósknarfrestur til og með 23. Nóvember.
Umsóknir sendist á jobs@finnahotel.is
SMIÐIR ÓSKAST
Gluggar og Garðhús hf. óskar eftir að ráða vana
smiði í fullt starf við smíðar og uppsetningar.
Vinsamlega sendið inn umsókn á
gluggar@solskalar.is
Fossakot · Fossaleyni · 112 Reykjavík
Viltu ganga
í lið með okkur?
Leikskólinn Fossakot í Grafarvogi
óskar eftir skemmtilegu og drífandi starfsfólki
sem býr yfir hæfni í mannlegum samskiptum,
áreiðanleika og frumkvæði.
Við leitum að:
Umsóknir skulu berast fyrir 13. nóvember,
áhugasamir sendi ferilskrá
á umsoknir@lfa.is
Leiðbeinendum
Leikskólakennurum
Rafvirki eða vélvirki
Héðinn Schindler lyftur ehf.
óskar eftir rafvirkja eða vélvirkja
Starfssvið:
Eftirlit, viðgerðir og uppsetningu á lyftum og rennistigum.
Einnig önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar og hæfniskröfur:
Sveinspróf í rafvirkjun eða vélvirkjun er skilyrði.
Tölvukunnátta, nákvæm og skipulögð vinnubrögð.
Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfsstætt, hafa góða
þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
Umsókn með upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendist á schindler@schindler.is.
Fósturforeldrar - fósturbörn
Hefur þú áhuga á að gerast fósturforeldri?
Barnaverndarstofa leitar að fólki sem er reiðubúið að
sækja um leyfi til að taka börn í fóstur og að taka þátt í
sérstakri þjálfun því til undirbúnings.
Um getur verið að ræða tímabundið og/eða varanlegt
fóstur.
Æskilegt er að fósturheimili séu í eða í námunda við
þéttbýli. Ýmis reynsla og menntun, einkum á sviði
umönnunar barna, getur komið að góðu gagni.
Nánari upplýsingar eru veittar á Barnaverndarstofu
sími: 530 2600 eða netfang: bryndis@bvs.is.
Einnig er hægt að afla sér upplýsinga um umsóknarferli
og hlutverk fósturforeldra á http://www.bvs.is