Fréttablaðið - 07.11.2015, Page 93
SKRUDDA
Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík
s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is
www.skrudda.is
Sérlega vel skrifuð og áhugaverð frásögn, sem býr yfir sálfræðilegri
dýpt og veitir nýja innsýn í þann flókna persónuleika sem duldist
að baki goðsögninni. Bókin er sannkallaður happafengur fyrir
alla skákunnendur, en hefur jafnframt mun víðari sammannlega
skírskotun.
Gyrðir Elíasson
Mér fannst þetta góð bók og las hana í einum rykk. Það er eiginlega
mesta hrós sem ég get gefið nokkru riti.
Benedikt Jóhannesson, Heimur 31. okt.
Sannkallaður yndislestur . . . Höfundur er í raun laus við þá áþján að
líta á Fischer sem eitthvert átrúnaðargoð.
Stefán Bergsson, DV 6. nóv.
Ég er búinn að lesa bókina, og hún er stórmerkileg. Hún sýnir
Fischer í alveg nýju ljósi: Mannlegan, nærgætinn og vinalegan.
Órafjarri ímyndinni um sturlaða snillinginn eða heiftúðuga
ofstækismanninn. Öðrum þræði er þetta líka saga um vináttu tveggja
manna sem örlögin leiddu saman, eftir öllum kúnstarinnar reglum.
-- Garðar er mjög flinkur höfundur og lesendur þurfa ekki að kunna
mannganginn til að hrífast með.
Hrafn Jökulsson, Facebook 29. okt.
Í bókinni kynnumst við Bobby Fischer sem einlægum og
örlátum vini, skapmiklum og skemmtilegum, íhugulum og
hlédrægum. Við kynnumst bókaorminum, náttúruunnandanum,
uppreisnarmanninum og mömmustráknum.
Frederic Friedel, aðalritstjóri og stofnandi Chessbase. Chessbase 3. nóv.
Sannkallaðir gullmolar
Í þessari bók fjallar Dr. Bjarni F. Einarsson fornleifafræðingur
um landnám Íslands, forsendur þess og aðdraganda.
Í brennidepli er landnámsbýlið Hólmur í Nesjum sem
rannsakað var árin 1997–2011, en þar voru rannsakaðar
minjar um bæ og blót.
Sögusviðið nær langt út fyrir landsteinana, allt frá
Nýfundnalandi í vestri að Bulgar í Austri, frá Afríku í suðri
til Svalbarða í norðri.
Í bókinni birtast á fjórða hundrað ljósmyndir, teikningar,
uppdrættir og kort sem tengjast rannsóknunum.