Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2019, Blaðsíða 18
18 FÓKUS - VIÐTAL 13. desember 2019
M
aður velur að skapa sitt
eigið líf. Maður þarf að
spyrja sig hvort maður
vilji vera aumingi eða
gera eitthvað með líf sitt. Lífið
fer upp og niður og stundum er
það erfitt. Það eru ekki alltaf all-
ir góðir við mann og maður sjálf-
ur er ekki alltaf góður við alla,“
segir Jaroslava Davíðsson, ekkja
Ásgeirs Þórs Davíðssonar, Geira
á Goldfinger eins og hann var
oftast kallaður. Geiri varð bráð-
kvaddur á heimili sínu í apríl árið
2012. Við það tók Jaroslava við
Goldfinger, sem var strippstaður
áður en bann við nektardansi tók
gildi á Íslandi í byrjun þessa ára-
tugar. Nú er komið að leiðarlok-
um. Jaroslava kveður Goldfinger
á tuttugu ára afmæli staðarins
næstkomandi laugardagskvöld.
Ákveðinn léttir en einnig skrýtið
segir hún, en hún ákvað fyrir ári
að selja reksturinn og allt sem
honum fylgir.
Vill ekki glápara
„Mér finnst ruglað að það séu enn
viðskiptavinir að koma til okkar,
öllum þessum árum seinna,“ seg-
ir Jaroslava er blaðamaður hitt-
ir hana á Goldfinger á miðjum
degi. Litríkt jólatré stendur hnar-
reist við súlurnar tvær á sviðinu
og leðursófar allt um kring.
Áfengis fnykurinn sem fylgir hefð-
bundnum skemmtistöðum rétt
fyrir opnun er víðs fjarri og gólf-
ið svo hreint að sleikja mætti af
því kampavínið sem stillt er upp
í hillum víðs vegar um staðinn.
Jaroslava er þreytt, enda í stífum
undirbúningi fyrir tuttugu ára af-
mælið, sem er jafnframt kveðju-
teitin hennar.
„Ég verð með ellefu dansara
að dansa á tveimur súlum, samt
ekki nektardans,“ segir hún og
hlær. „Þetta verður mikið „show“
og þótt allir séu velkomnir vil ég
helst bara hafa fólk í kringum mig
sem ég treysti og hefur stutt mig í
gegnum tíðina. Ég vil ekki fá eitt-
hvert fólk sem er bara komið til að
glápa, þannig að öryggisgæslan
verður mikil,“ bætir hún við á
þessum tímamótum. Jaroslava
ætlar að hafa teitina nánast fram
á sunnudagsmorgun og svo tekur
við óvissan, sem er spennandi en
jafnframt skrýtin.
„Ég sef á sunnudaginn. Ég finn
að aldurinn er farinn að segja til
sín og það tekur mig lengri tíma
að jafna mig,“ segir hún og bros-
ir. „Það tekur tíma að fatta að ég
er að hætta, en ég hef haft ár til
að undirbúa mig. Nú tekur yngri
kynslóðin við og breytir staðn-
um, sem ég held að sé gott. Ég
á eftir að koma stundum til að
syngja í karókí og dansa,“ segir
hún og bætir við að hún taki ávallt
dægur lagið Vor í Vaglaskógi þegar
hún grípur í karókímíkrófóninn.
Jaroslava er ekki búin að ákveða
hvað hún tekur sér fyrir hendur
næst. Hún er menntaður snyrti-
fræðingur og hefur unnið við það
í og með síðustu árin. Eitt er víst
að rekstur dansstaða á borð við
Goldfinger er ekki í kortunum.
„Ég held að það verði gott fyr-
ir mig að hvíla mig. Ég sé ekki eft-
ir neinu og hefði ekki gert neitt
öðruvísi.“
Vill sofa á nóttunni
Jaroslava flutti til Íslands fyrir
rúmum tveimur áratugum og réð
Geiri hana í vinnu á Hafnarkránni
í Hafnarstræti. Þau opnuðu síðan
súlustaðinn Maxim’s saman í
desember árið 1998 og ári síð-
ar festu þau rætur í Kópavogi og
opnuðu Goldfinger. Jaroslava
skýtur því inn að Geiri hafi rekið
hana á Maxim’s því hún lét illa að
stjórn, en þótt upphafið hafi ver-
ið brösugt blómstraði ást þeirra
Jaroslövu og Geira. Geiri sá um
daglegan rekstur Goldfinger og
Jaroslava var heimavinnandi, en
sá um flest allt annað er varðaði
staðinn. Konan á bak við tjöldin.
„Já, ég var alltaf konan á bak
við Geira. Ég sagði oft að ég
hefði sterkan vegg fyrir framan
mig,“ segir hún. Meðal þess sem
var í verkahring Jaroslövu voru
samskipti við dansara og starfs-
mannahald. Hún lagði mikið upp
úr því að vel væri að verki staðið í
þeim efnum.
„Ég hef alltaf farið eftir lög-
um og allar stelpurnar sem hafa
dansað hér hafa verið með ís-
lenska kennitölu og borgað sína
skatta. Ég vil hafa allt uppi á borð-
um því ég vil sofa á nóttunni. Ég
nenni ekki neinum „monkey
business“. Það er betra að hafa
hreina og góða samvisku.“
Þótt þau hjónin hafi byggt upp
sitt fyrirtæki á nektardansi segir
Jaroslava að hún kunni betur við
dansarana í fötum en án.
„Þetta er miklu betra svona,
þegar stelpurnar mega ekki
fara úr öllu. Þetta er fallegra.
Meira sexí. Ég myndi segja að
þetta skapaði líka meira öryggi
á staðnum. Það er erfitt að út-
skýra þetta fyrir útlendingum,
en Íslendingarnir skilja alveg að
það megi ekki snerta. Lög eru
lög. Niðri í bæ eru oft slagsmál
um helgar en ekki hér hjá mér.
Ég hef þurft að kalla á lögregluna
nokkrum sinnum síðustu sjö árin
og í öll skiptin hefur það verið út
af útlendingum.“
En hefur þessi bransi gert
hana ríka?
„Er ég orðin rík?“ segir hún
með fáti, tekur sér drykklanga
stund til umhugsunar og svarar
síðan: „Ég er ekki rík, en ég á það
sem ég þarf, sem betur fer.“
„Kreisí“ líf
Geiri og Jaroslava voru gefin
saman þann 27. september árið
1999. Þau eiga eina dóttur saman,
Alexöndru sem kom í heiminn
í september árið 1999, fjórum
dögum áður en foreldrar hennar
gengu í það heilaga. Það er eina
barn Jaroslövu en Geiri átti sex
börn úr öðrum samböndum.
Jaroslava er stolt af dóttur sinni.
„Hún er orðin fullorðin kona,
mjög sjálfstæð og sterk. Hún
flutti að heiman fyrir um ári og
er að spá í að fara í Háskóla Ís-
lands í nám. Við hittumst ekki
oft, en höldum góðu sambandi.
Ég myndi segja að við værum
nánari núna en áður, en hún er
samt þannig gerð að hún hringir
ekki í mig ef hana vantar eitthvað.
Hún bara reddar sér sjálf og vill
hafa það þannig. Ég flutti sjálf að
heiman um tvítugt og ég held að
það sé gott. Maður lærir svo mik-
ið á því og þetta er góð reynsla.
Við erum þau einu sem getum
tekið ábyrgð á okkar lífi og það
gerir aldrei neinn eitthvað fyrir
mann. Það er gott að læra það
snemma. En ég stend alltaf með
henni og styð hana, í gegnum
þykkt og þunnt,“ segir Jaroslava.
En hvernig myndi hún lýsa sér
sem móður?
„Ég átti „kreisí“ líf, sá um Gold-
finger og var gift Geira. Það var
alltaf „aksjón“. Ég átti tvö börn
– dóttur mína og Goldfinger. Ég
var heima með Alexöndru þar til
hún varð tíu ára, fór síðan í skóla
að læra snyrtifræði og Geiri dó
þegar hún var tólf ára. Þá fór ég
á kaf í vinnu og Alexandra ól sig
upp sjálf. Hún er töffari. Sem bet-
ur fer veit hún hvað hún vill. Hún
er enginn aumingi. Hún veit að
hún þarf að mennta sig, vinna og
sjá um sig sjálf, því það er enginn
annar að fara að gera það fyrir
hana.“
„Geiri er dáinn“
Jaroslava og Geiri ákváðu að skilja
Kósý jólastemning
PANTA BORÐ Í SÍMA. 562 7335
Draumaprinsinn dó
Jaroslava rifjar upp tímann með Geira á Goldfinger - Segist aldrei
hafa brotið lög - Söðlar um og hefur ekki tíma fyrir karlmenn
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
lilja@dv.is
Kveður Goldfinger Jaroslava hefur
selt Goldfinger og hverfur á braut.