Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2019, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2019, Blaðsíða 28
28 13. desember 2019 M aður er nefndur Martin Tankleff, sem kallaður var Marty af þeim sem til hans þekkja. Marty kom í heiminn á Long Island í New York 29. ágúst á því herrans ári 1971. Af bernsku Martys segir fátt en eitt hafði þó áhrif á allt hans líf og það var dauði foreldra hans, Seymours og Arlene, árið 1988. Þann 7. september, það ár, þegar Marty var 17 ára, kom hann, að eigin sögn, að móður sinni látinni og föður sínum vart með lífsmarki. Höfðu þau bæði verið stungin ítrekað með eggvopni. Marty hringdi umsvifalaust á Neyðarlínuna og gerði hvað hann gat til að halda lífi í föður sínum. Marty grillaður Þegar lögreglan kom á heimili Tankleff-fjölskyldunnar upplýsti Marty hana um þann sem líklega bæri ábyrgð á verknaðinum. Taldi Marty lítinn vafa á að þar væri um að ræða viðskiptafélaga Seymo- urs, Jerry Steuerman, en þeir áttu og ráku beyglubakarí. Sagði Marty að meðeigandinn skuldaði föður hans hálfa millj- ón dala og hefði nýlega hótað Seymour og Arlene öllu illu. Að auki hefði hann farið, síðastur gesta, af heimili Tankleff-fjöl- skyldunnar kvöldið áður. Næstu viku gerðist ýmislegt. Faðir Martys lá meðvitundarlaus á sjúkrahúsi og viðskiptafélagi hans setti á svið eigin dauða, dul- bjó sig og fór til Kaliforníu undir uppdiktuðu nafni. Þrátt fyrir það beindist grunur lögreglunnar í Suffolk-sýslu aldrei að Steuerman en Marty var færður á lögreglu- stöð og grillaður þar. Rumskaði ekki Það sem vakti grunsemdir lög- reglunnar, að hennar sögn, var sú fullyrðing Martys að hann hefði steinsofið þegar ráðist var á foreldra hans, þrátt fyrir að verksummerki sýndu að árásin hefði verið hrottaleg. Einnig taldi lögreglan að þær tilfinningar sem hann sýndi á vettvangi hefðu ekki verið í samræmi við það sem hann stóð frammi fyrir. Yfirheyrslur stóðu klukku- stundum saman og Marty játaði, en sagði allar götur þaðan í frá að hann væri saklaus og játningin hefði verið fengin með þrýstingi og þvingunum. Játningin fékk að standa fyrir dómi þrátt fyrir full- yrðingar Martys, en hann neitaði alla tíð að undirrita játninguna. Uppdiktað símtal Að sögn hafði Marty verið alinn upp í trausti í garð lögreglunnar og ekki síður að trúa föður sínum. Við yfirheyrslu setti lögreglan á svið símtal og fullyrti að faðir Martys hefði verið á hinum enda línunn- ar, hann hefði komist til meðvit- undar og sagt að Marty hefði ráð- ist á hann. Við þessi tíðindi runnu tvær grímur á Marty og hann velti því fyrir sér hvort hann hefði hrein- lega „dottið út“ og ráðist á foreldra sína með þessum hrikalegu af- leiðingum. Rannsóknarlögreglumenn drógu alls ekki úr þessum vanga- veltum, ýttu frekar undir þær en hitt og, sem fyrr segir, játaði Mar- ty á sig morðin. Þegar þarna var komið við sögu hafði faðir hans skilið við. Talaði fyrir daufum eyrum Lyktir urðu þær að árið 1990, þegar Marty var 19 ára, var hann dæmd- ur til til fangelsisvistar. Hann fékk tvisvar sinnum 25 ára dóm. Marty hafði talað fyrir daufum eyrum. Enginn hafði áhuga á að vita hvernig rannsóknarlögreglumað- ur að nafni McCready hafði þrýst á hann, skrifað játninguna og reynt árangurslaust að fá Marty til að skrifa undir hana. Enginn vildi velta fyrir sér af hverju Jerry Steuerman hafði svið- sett eigin dauða, dulbúið sig og lagt á flótta með nýtt nafn. Nú eða þeirri staðreynd að Steuerman hafði síðastur manna séð foreldra Martys á lífi og skuldaði í þokkabót föður Martys fúlgur fjár. Umdeildur vinskapur Árið 2004 fóru lögfræðingar Martys fram á ný réttarhöld og byggðu kröfu sína á nýjum sönnunum. Marty sagði að um- ræddar nýjar sannanir sýndu að glæpamenn á vegum Steuerman hefðu myrt foreldra hans. Einnig voru lagðar fram sann- anir, sem saksóknari gat ekki hrak- ið, þess efnis að rannsóknarlög- reglumaðurinn sem leiddi rannsókn á málinu á sínum tíma væri vinur og fyrrverandi við- skiptafélagi Steuerman. Það gekk þvert á vitnisburð umrædds rann- sóknarlögreglumanns við fyrstu réttarhöldin. Einnig kom fram að rannsóknarlögreglumaðurinn hafði gerst sekur um meinsæri í öðru morðmáli. Sleppt gegn tryggingu Ekki riðu lögfræðingar Martys feit- um hesti frá sinni umleitan, Marty var áfram á bak við lás og slá og árin liðu. Það gerðist síðan árið 2007 að áfrýjunardómstóll New York ákvað að endurskoða málið og í desem- ber það ár var sektardómi Martys snúið, ný réttarhöld heimiluð og, þann 27. desember, Marty sleppt gegn tryggingu. Þann 29. desember birtist frétt í New York Times þar sem fram kom að New York-fylki hefði hafið opinbera rannsókn á vinnubrögð- um löggæslunnar í Suffolk-sýslu og framgöngu hennar í rannsókn á morðunum á Tankleff-hjónunum. Frelsi og síðbúnar bætur Saksóknari Suffolk-sýslu tilkynnti 2. janúar, 2008, að ekki yrði réttað yfir Martin Tankleff. Í janúar, árið 2014, dró aftur til tíðinda þegar New York-fylki greiddi Marty 3,3 milljónir dala í bætur fyrir þau 17 ár sem hann sat í prísund. Jerry Steuerman sat eiðsvar- inn fyrir svörum vegna máls- ins árið 2013 og beitti fyrir sig fimmta stjórnarskrárákvæðinu oftar en 140 sinnum, til að forðast sjálfs ásökun um refsivert athæfi. Þannig er nú það. n SAKAMÁL SAKLAUS Í SAUTJÁN ÁRA PRÍSUND n Foreldrar Martins voru myrtir n Hann taldi sig vita hver var sekur n Talaði fyrir daufum eyrum Fórnarlömbin Tankleff-hjón- unum var ráðinn bani með hrotta- legum hætti. Fjölskyldan Martin missti foreldra sína og 17 ár að auki. Sekur Frá upphafi beindust sjónir lögreglu að Martin Tankleff.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.