Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2019, Qupperneq 28
28 13. desember 2019
M
aður er nefndur Martin
Tankleff, sem kallaður
var Marty af þeim sem til
hans þekkja. Marty kom
í heiminn á Long Island í New
York 29. ágúst á því herrans ári
1971.
Af bernsku Martys segir fátt en
eitt hafði þó áhrif á allt hans líf
og það var dauði foreldra hans,
Seymours og Arlene, árið 1988.
Þann 7. september, það ár, þegar
Marty var 17 ára, kom hann,
að eigin sögn, að móður sinni
látinni og föður sínum vart með
lífsmarki. Höfðu þau bæði verið
stungin ítrekað með eggvopni.
Marty hringdi umsvifalaust á
Neyðarlínuna og gerði hvað hann
gat til að halda lífi í föður sínum.
Marty grillaður
Þegar lögreglan kom á heimili
Tankleff-fjölskyldunnar upplýsti
Marty hana um þann sem líklega
bæri ábyrgð á verknaðinum. Taldi
Marty lítinn vafa á að þar væri um
að ræða viðskiptafélaga Seymo-
urs, Jerry Steuerman, en þeir áttu
og ráku beyglubakarí.
Sagði Marty að meðeigandinn
skuldaði föður hans hálfa millj-
ón dala og hefði nýlega hótað
Seymour og Arlene öllu illu. Að
auki hefði hann farið, síðastur
gesta, af heimili Tankleff-fjöl-
skyldunnar kvöldið áður.
Næstu viku gerðist ýmislegt.
Faðir Martys lá meðvitundarlaus
á sjúkrahúsi og viðskiptafélagi
hans setti á svið eigin dauða, dul-
bjó sig og fór til Kaliforníu undir
uppdiktuðu nafni. Þrátt fyrir það
beindist grunur lögreglunnar í
Suffolk-sýslu aldrei að Steuerman
en Marty var færður á lögreglu-
stöð og grillaður þar.
Rumskaði ekki
Það sem vakti grunsemdir lög-
reglunnar, að hennar sögn, var
sú fullyrðing Martys að hann
hefði steinsofið þegar ráðist var
á foreldra hans, þrátt fyrir að
verksummerki sýndu að árásin
hefði verið hrottaleg. Einnig taldi
lögreglan að þær tilfinningar sem
hann sýndi á vettvangi hefðu
ekki verið í samræmi við það sem
hann stóð frammi fyrir.
Yfirheyrslur stóðu klukku-
stundum saman og Marty játaði,
en sagði allar götur þaðan í frá að
hann væri saklaus og játningin
hefði verið fengin með þrýstingi
og þvingunum. Játningin fékk að
standa fyrir dómi þrátt fyrir full-
yrðingar Martys, en hann neitaði
alla tíð að undirrita játninguna.
Uppdiktað símtal
Að sögn hafði Marty verið alinn
upp í trausti í garð lögreglunnar og
ekki síður að trúa föður sínum. Við
yfirheyrslu setti lögreglan á svið
símtal og fullyrti að faðir Martys
hefði verið á hinum enda línunn-
ar, hann hefði komist til meðvit-
undar og sagt að Marty hefði ráð-
ist á hann.
Við þessi tíðindi runnu tvær
grímur á Marty og hann velti því
fyrir sér hvort hann hefði hrein-
lega „dottið út“ og ráðist á foreldra
sína með þessum hrikalegu af-
leiðingum.
Rannsóknarlögreglumenn
drógu alls ekki úr þessum vanga-
veltum, ýttu frekar undir þær en
hitt og, sem fyrr segir, játaði Mar-
ty á sig morðin. Þegar þarna var
komið við sögu hafði faðir hans
skilið við.
Talaði fyrir daufum eyrum
Lyktir urðu þær að árið 1990, þegar
Marty var 19 ára, var hann dæmd-
ur til til fangelsisvistar. Hann fékk
tvisvar sinnum 25 ára dóm. Marty
hafði talað fyrir daufum eyrum.
Enginn hafði áhuga á að vita
hvernig rannsóknarlögreglumað-
ur að nafni McCready hafði þrýst á
hann, skrifað játninguna og reynt
árangurslaust að fá Marty til að
skrifa undir hana.
Enginn vildi velta fyrir sér af
hverju Jerry Steuerman hafði svið-
sett eigin dauða, dulbúið sig og
lagt á flótta með nýtt nafn. Nú eða
þeirri staðreynd að Steuerman
hafði síðastur manna séð foreldra
Martys á lífi og skuldaði í þokkabót
föður Martys fúlgur fjár.
Umdeildur vinskapur
Árið 2004 fóru lögfræðingar
Martys fram á ný réttarhöld
og byggðu kröfu sína á nýjum
sönnunum. Marty sagði að um-
ræddar nýjar sannanir sýndu að
glæpamenn á vegum Steuerman
hefðu myrt foreldra hans.
Einnig voru lagðar fram sann-
anir, sem saksóknari gat ekki hrak-
ið, þess efnis að rannsóknarlög-
reglumaðurinn sem leiddi
rannsókn á málinu á sínum tíma
væri vinur og fyrrverandi við-
skiptafélagi Steuerman. Það gekk
þvert á vitnisburð umrædds rann-
sóknarlögreglumanns við fyrstu
réttarhöldin. Einnig kom fram að
rannsóknarlögreglumaðurinn
hafði gerst sekur um meinsæri í
öðru morðmáli.
Sleppt gegn tryggingu
Ekki riðu lögfræðingar Martys feit-
um hesti frá sinni umleitan, Marty
var áfram á bak við lás og slá og árin
liðu. Það gerðist síðan árið 2007 að
áfrýjunardómstóll New York ákvað
að endurskoða málið og í desem-
ber það ár var sektardómi Martys
snúið, ný réttarhöld heimiluð og,
þann 27. desember, Marty sleppt
gegn tryggingu.
Þann 29. desember birtist frétt
í New York Times þar sem fram
kom að New York-fylki hefði hafið
opinbera rannsókn á vinnubrögð-
um löggæslunnar í Suffolk-sýslu
og framgöngu hennar í rannsókn á
morðunum á Tankleff-hjónunum.
Frelsi og síðbúnar bætur
Saksóknari Suffolk-sýslu tilkynnti
2. janúar, 2008, að ekki yrði réttað
yfir Martin Tankleff. Í janúar, árið
2014, dró aftur til tíðinda þegar
New York-fylki greiddi Marty 3,3
milljónir dala í bætur fyrir þau 17
ár sem hann sat í prísund.
Jerry Steuerman sat eiðsvar-
inn fyrir svörum vegna máls-
ins árið 2013 og beitti fyrir sig
fimmta stjórnarskrárákvæðinu
oftar en 140 sinnum, til að forðast
sjálfs ásökun um refsivert athæfi.
Þannig er nú það. n
SAKAMÁL
SAKLAUS Í SAUTJÁN ÁRA PRÍSUND
n Foreldrar Martins voru myrtir n Hann taldi sig vita hver var sekur n Talaði fyrir daufum eyrum
Fórnarlömbin
Tankleff-hjón-
unum var ráðinn
bani með hrotta-
legum hætti.
Fjölskyldan Martin missti
foreldra sína og 17 ár að auki.
Sekur Frá upphafi beindust sjónir lögreglu
að Martin Tankleff.