Fréttablaðið - 12.04.2017, Síða 4
Umboðsaðili Jeep á Íslandi - Þverholti 6 - 270 Mosfellsbær - s. 534 4433
www.isband.is - isband@isband.is - Opið virka daga 10-18 - Laugardaga 12-16
FÁGUN STAÐALBÚNAÐUR
*U
pp
ge
fn
ar
tö
lu
r f
ra
m
le
ið
an
da
í
bl
ön
du
ðu
m
a
ks
tri
Öflugur, kraftmikill og ríkulega útbúinn
jeppi með frábæra aksturseiginleika.
Komdu og reynsluaktu.
Sjálfskiptur 9 þrepa
2,2 l dísel 185 hestöfl eða 200 hestöfl
Eyðsla 5,7 L/100 km*
Verð frá 6.990.000 kr.
jeep.is
DÓMSMÁL Ekkert er vitað um hvað
varð um 240 milljónir króna sem
sviknar voru út úr endurgreiðslu-
kerfi skattsins á tímabilinu septem-
ber 2009 til júní 2010. Átta manns
voru sakfelld í Héraðsdómi Reykja-
ness vegna málsins í gær en sannað
þótti að þau hefðu notið allt að 38
milljóna króna ávinnings af brotinu.
Þyngstan dóm hlaut Halldór
Jörgen Gunnarsson, fjögurra ára
fangelsi, fyrir brot í opinberu starfi
og peningaþvætti. Halldór nýtti
aðstöðu sína í starfi hjá Ríkisskatt-
stjóra til að taka á móti tilhæfu-
lausum skráningum tveggja félaga
á virðisaukaskattskrá. Félögin fengu
síðan endurgreiddan virðisauka-
skatt, alls tæpar 278 milljónir króna,
vegna byggingaframkvæmda. Eign-
irnar sem um ræðir voru ekki í eigu
félaganna og framkvæmdirnar upp-
spuni frá rótum.
Þá var hann sakfelldur fyrir að
hafa tekið við reiðufé, um 9 millj-
ónum króna, sem var hluti af hinu
illa fengna fé. Fyrir dómi sagði Hall-
dór að hann hefði fundið peningana
í plastpoka við framdekk bíls síns.
Dómurinn taldi að skýringar hans
á skráningu félaganna tveggja og
uppruna reiðufjárins „væru ótrú-
verðugar og að engu hafandi“.
Steingrímur Þór Ólafsson hlaut
næstþyngstan dóm, 30 mánaða
fangelsi, fyrir peningaþvætti. Stein-
grímur skipulagði hvernig staðið
skyldi að úttekt peninganna af
reikningum félaganna tveggja. Fékk
hann fólk til verksins sem síðan
afhenti honum reiðuféð.
Steingrímur lýsti yfir sakleysi
sínu vegna málsins. Hann hefði
verið fenginn til þess, af ónafn-
greindum aðila, að ná peningum
föstum erlendis úr kerfinu. Hann
hefði ekki haft neinn grun um að féð
hefði verið tilkomið vegna brota-
starfsemi. Um þetta sagði í niður-
stöðu fjölskipaðs dómsins að fyrir
þá þjónustu hefði hann fengið átta
milljónir króna í þóknun „sem telst
há þóknun fyrir úttekt á löglega
fengnu fé“.
Aðrir hinna sakfelldu hlutu styttri
dóma fyrir peningaþvætti. Höfðu
þau ýmist tekið við ólögmætum
ávinningi brotsins eða tekið féð út
af reikningum félaganna tveggja.
Dómarnir voru frá þriggja mánaða
fangelsi upp í átján mánaða fangelsi.
Flest báru þau við að þau hefðu
ekki haft hugmynd um að féð væri
illa fengið. Í sumum tilfellum þótti
dómnum það ósannað en sakfelldi
fyrir gáleysisbrot þar sem þau hefðu
nú getað gert sér það í hugarlund
að peningarnir hefðu ekki orðið til
með lögmætum hætti.
Í framburði Guðrúnar Höllu
Sigurðardóttur, en hún hlaut átján
mánaða fangelsisdóm, kom meðal
annars fram að Steingrímur hefði
bent henni á að taka féð út í mis-
munandi bankaútibúum. Alls tók
hún út 133 milljónir króna, í 83
úttektum í mismunandi bankaúti-
búum, fyrir Steingrím á tímabilinu.
„Að mati dómsins sýna þessi ráð
að fyrir ákærðu vakti að vekja ekki
of mikla athygli þegar hún var að
taka út peninga í bankaútibúum,“
segir í niðurstöðu dómsins. Var
það mat dómaranna þriggja að það
væri í meira lagi ótrúverðugt að hún
hefði ekki vitað um vafasaman upp-
runa peninganna.
Sannað þótti að ákærðu hefðu
notið allt að 38 milljóna króna
ávinnings vegna brotanna. Hins
vegar er óljóst hvað varð um hinar
240 milljónirnar. Steingrímur
kveðst hafa afhent þær ónafn-
greindum aðila en vildi ekki gefa
upp hver það var.
Hin sakfelldu voru ekki dæmd
til endurgreiðslu hins ólögmæta
ávinnings. Þau þurfa hins vegar að
greiða allan sakarkostnað og laun
verjenda sinna, alls 32,5 milljónir
króna. johannoli@frettabladid.is
240 milljóna króna þýfi gufað upp
Sérstakur saksóknari stal starfsmönnum
Allar refsingarnar eru bundnar
skilorði til þriggja ára. Það þýðir
að fólkið mun ekki þurfa að sitja
dómana af sér haldi það sig
réttum megin við lögin næstu
þrjú ár. Ástæða þess er stórfelldur
dráttur á rekstri málsins.
Málið er umfangsmesta fjár-
svikamál sem borist hefur á borð
lögreglu. Í skýrslum lögreglu-
manna fyrir dómi kom fram að
þessa töf megi meðal annars rekja
til manneklu og ýmissa utan-
aðkomandi aðstæðna. Meðal
annars var réttarbeiðni send til
Spánar sem tók eitt ár að afgreiða.
Þá hefði fjársvikadeild tapað
mannafla þegar embætti Sérstaks
saksóknara var komið á fót. Önnur
verkefni töfðu málið einnig.
Brotin áttu sér stað á árunum
2009 og 2010. Rannsókn lauk 2014
en ákæra var ekki gefin út fyrr en
2016. Í dómsorði kemur fram að
ákærðu verði ekki á nokkurn hátt
kennt um þennan drátt á málinu.
Umfangsmikil og áralöng rannsókn á fjársvikamáli
1. september 2009
Halldór Jörgen samþykkir
sérstaka skráningu Ólafsson-
heildverslunar á virðisauka-
skattskrá vegna byggingar
atvinnuhúsnæðis. Skráningin
var tilhæfulaus.
18. september –
30. nóvember 2009
Halldór Jörgen tók á móti
virðisaukaskattskýrslum
sem skilað var inn af
óþekktum aðila. 104 millj-
ónir fengust endurgreiddar
á reikning félagsins vegna
sýndarframkvæmda.
4. maí 2010
Halldór Jörgen tók á móti
sex tilhæfulausum virðis-
aukaskattskýrslum fyrir
félagið H94 ehf. 81 milljónar
innskattur var ranglega til-
greindur á skýrslunum.
5. maí 2010
Halldór Jörgen samþykkti
sérstaka skráningu H94 ehf.
án þess að nokkur gögn
fylgdu umsókninni eða
skilyrði sérstakrar skráningar
væru uppfyllt. Virðisauka-
skattsnúmer félagsins var
skráð með stofndaginn
12. febrúar 2009.
6. okt. 2009 - júlí 2010
Steingrímur Þór Ólafs-
son tekur á móti tæplega
278 milljónum króna sem
var það fé sem fékkst
endurgreitt frá skattinum.
Steingrímur lét hluta hinna
sakfelldu hafa prókúru á
reikningum félaganna.
16. júní 2010
Halldór Jörgen afskráir
virðisaukaskattsnúmer H94
ehf. Engin gögn liggja fyrir
um beiðni eigenda félagsins
þess efnis.
Sumar 2010
Grunur vaknar um brotin.
Rannsókn lögreglu hófst á
haustmánuðum.
10. september 2010
Starfsmenn skattrannsókna-
stjóra leita í húsnæði Ríkis-
skattstjóra að gögnum að
baki sérstökum skráningum
H94 ehf. og Ólafsson-heild-
verslun ehf. Gögnin fundust
ekki.
14. september 2010
Lögregla handtók grunaða
og gerði húsleitir vegna
málsins. Handtökuskipun
var gefin út á hendur Stein-
grími Þór en hann var
handtekinn í Venesúela í
nóvember 2010.
30. júní 2014
Rannsóknargögn send frá
lögreglu til ákæruvaldsins.
14. mars 2016
Ákæra gefin út.
11. apríl 2017
Dómur kveðinn upp.
Frá aðalmeðferðinni í upphafi árs. Dómarar mátu framburð vitna ótrúverðugan að mörgu leyti. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Átta voru sakfelld í gær
í stærsta fjársvikamáli
Íslandsögunnar. Ávinn-
ingur brotanna í hönd-
um huldumanns sem
ekki finnst. Refsingarnar
eru frá þriggja mánaða
og upp í fjögurra ára
fangelsi. Fullnusta þeirra
allra er bundin skilorði
vegna þess hve langan
tíma tók að reka málið.
7 ár liðu frá byrjun rannsóknar til
uppkvaðningar dómsins
1 2 . A P R Í L 2 0 1 7 M I Ð V I K U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð