Fréttablaðið - 12.04.2017, Qupperneq 8
ÞEKKIR ÞÚ EINHVERN SEM SKARAR FRAM ÚR Í MATVÆLAGEIRANUM?
N O R R Æ N U M A T A R V E R Ð L A U N I N
„Embla“ eru ný norræn matarverðlaun sem er ætlað að hampa norrænni
matarmenningu. Þessa dagana er verið að safna tilnefningum frá Íslandi.
Það eru bændasamtök á Norðurlöndunum í samvinnu við Norrænu
ráðherranefndina sem veita verðlaunin.
Á vefsíðunni emblafoodaward.com er tekið við
tilnefningum í sjö flokka sem eru:
- Matvælaiðnaðarmaður Norðurlanda 2017
- Hráefnisframleiðandi Norðurlanda 2017
- Norðurlandaverðlaun fyrir mat fyrir marga 2017
- Matarblaðamaður Norðurlanda 2017
- Mataráfangastaður Norðurlanda 2017
- Matvælafrumkvöðull Norðurlanda 2017
- Norðurlandaverðlaun fyrir mat fyrir börn og ungmenni 2017
Skráningarfrestur
til hádegis þann
17. apríl 2017.
Skráningareyðublöð fyrir flokkana
sjö (á íslensku) er að finna á
www.emblafoodaward.com,
en þar má einnig fræðast betur um
verðlaunin og tilurð þeirra.
HEILBRIGÐISMÁL Ríkisstjórnin hefur
enn ekki efnt loforð sitt frá því um
miðjan febrúar að sjá til þess að ný
krabbameinslyf verði tekin í notk-
un hér á landi á þessu ári. Fjárfram-
lög í upphafi árs buðu ekki upp á
nein ný lyf á þessu ári að mati for-
manns lyfjagreiðslunefndar. For-
maður Krafts segir marga ekki geta
beðið mikið lengur eftir að loforðið
sé efnt.
Fréttablaðið greindi frá því þann
14. febrúar síðastliðinn að ekkert
fjármagn væri til á árinu sem hægt
væri að nota til að taka upp ný lyf.
Guðrún I. Gylfadóttir, formaður
lyfjagreiðslunefndar, sagði þá ekk-
ert svigrúm fyrir hendi. Ríkisstjórn-
in gaf það svo út þann 17. febrúar
að veita yrði meira fjármagn til
upptöku nýrra lyfja.
„Við hjá Krafti fögnuðum því
þegar ríkisstjórnin lofaði að leggja
fé í málaflokkinn. Hins vegar hefur
ekkert gerst síðan og ný krabba-
meinslyf þurfa að bíða enn um
sinn,“ segir Ragnheiður Davíðs-
dóttir, formaður Krafts, stuðnings-
félags ungs fólks með krabbamein
og aðstandendur þeirra.
Guðrún Gylfadóttir, segir það
rétt að loforðið frá því í febrúar
hafi ekki verið efnt en unnið sé að
því innan ráðuneytisins að finna
fjármagn til þess að taka inn ný
krabbameinslyf. „Að mínu mati
er þetta í góðum farvegi og unnið
er að því í velferðarráðuneytinu. Á
meðan erum við að taka inn ný lyf,“
segir Guðrún.
Ragnheiður segir alvarlegt að
þurfa að bíða lengi eftir því að efna
þetta loforð. „Það er ekki nóg að
hlutirnir séu í vinnslu. Ríkisstjórn-
in er búin að samþykkja fjárútlát til
málaflokksins og því þarf að hafa
snör handtök,“ segir Ragnheiður.
„Fólk sem býr við þessa sjúkdóma
Loforð um aukið fé ekki efnt
Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í febrúar að setja meira fé til innleiðingar nýrra lyfja. Það fé hefur ekki
skilað sér. Ráðherra neitar að tjá sig um málið. „Krabbameinssjúklingar geta ekki beðið,“ segir formaður.
Ráðherrar ríkisstjórnarinnar áttu að tryggja fé til lyfjakaupa. Það hefur ekki enn gengið eftir. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
getur sumt hvert ekkert beðið eftir
því að þessi mál verði afgreidd
í stjórnsýslunni. Krabbameins-
sjúklingar hafa nóg með að huga
að eigin heilsu í stað þess að bíða.“
Heilbrigðisráðherra, Óttarr
Proppé, hefur hunsað ítrekaðar
beiðnir Fréttablaðsins síðustu daga
og umleitanir fréttastofu um viðtal.
sveinn@frettabladid.is
Fólk sem býr við
þessa sjúkdóma
getur ekkert beðið eftir því
að þessi mál
verði afgreidd í
stjórnsýslunni
Ragnheiður
Davíðsdóttir
FERÐAÞJÓNUSTA Icelandair Group
mun ráða til sín rúmlega 1.400
starfsmenn yfir sumarmánuðina.
Mikil fjölgun ferðamanna sem
hingað koma veldur því að sumar-
starfsmönnum hefur fjölgað jafnt og
þétt síðustu ár. Svali Björgvinsson,
framkvæmdastjóri starfsmanna-
sviðs Icelandair, segir það ánægju-
efni að margir hverjir séu að koma
ár eftir ár og haldi tryggð við fyrir-
tækið.
„Það er gleðilegt að á þessum upp-
gangstímum getum við veitt fólki
góð launuð störf hjá okkur. Vel á
sjötta þúsund einstaklinga starfa
hjá okkur nú í dag sem er frábært,“
segir Svali.
Um 650 starfsmenn fara til starfa
hjá Icelandair og um 350 til IGS sem
þjónustar farþega á jörðu niðri.
Rúmlega 300 starfsmenn verða
einnig ráðnir inn til hótela Ice-
landair svo dæmi sé tekið.
„Það sem er einnig áhugavert er
að af öllum þessum starfsmönnum
er kynjaskiptingin tiltölulega jöfn
sem er markmið hjá okkur á öllum
okkar sviðum,“ segir Svali. – sa
1.400 sumar-
störf hjá
Icelandair
Til samanburðar við 1.400 sumar-
störf Icelandair búa um 1.250 manns
á Siglufirði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
DANMÖRK Aðkoma lögreglumanna
að íbúð í Brønshøj í Kaupmannahöfn
í gær er sögð hryllileg. Lögregla var
kölluð að íbúðinni til að grípa inn í
heimiliserjur en fann þar lík konu og
þriggja barna hennar.
Ekstrabladet greindi frá því að fjöl-
skyldufaðirinn hafi verið handtekinn í
gær í tengslum við morðin og staðfesti
lögregla fréttina. Einnig bendir margt
til þess að maðurinn hafi beitt nokkr-
um mismunandi vopnum við meint
morð. Nágrannar segjast í samtali við
Ekstrabladet hafa heyrt öskur frá íbúð-
inni. Í samtali við Ekstrabladet sagði
Ove B. Larsson, stjórnandi aðgerða á
vettvangi fyrir hönd lögreglu, að rann-
sókn málsins væri hafin. Mikið væri
um blóð í íbúðinni og merki væru um
átök. „Okkar tilgáta er sú að þetta hafi
verið fjölskyldumorð,“ sagði Larsson í
samtali við DR. – þea
Harmleikur
í Brønshøj
VINNUMARKAÐUR Stefán Vagn
Stefánsson, formaður byggðaráðs í
Skagafirði, gagnrýnir þá ákvörðun
Barnaverndarstofu að loka Háholti í
Skagafirði með þeim afleiðingum að
17 starfsmenn missa vinnuna.
Háholt hóf rekstur rétt fyrir aldamót
og var farið í miklar endurbætur á hús-
inu árið 2014. Þær endurbætur voru
greiddar af sveitarfélaginu Skagafirði.
„Í raun vitum við ekkert meira en
það sem hefur komið fram í fjölmiðl-
um. Ráðuneytið eða barnaverndar-
yfirvöld hafa ekki komið að máli við
okkur,“ segir Stefán Vagn. „Við höfum
ýmsar spurningar sem við viljum fá
svör við og munum við eiga samtal við
velferðarráðherra vegna málsins.“– sa
Fá engin svör um
lokun Háholts
Stefán Vagn Stef-
ánsson, formaður
byggðaráðs
Skagafjarðar
1 2 . A P R Í L 2 0 1 7 M I Ð V I K U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð