Fréttablaðið - 12.04.2017, Qupperneq 10
Klettháls 13 · hnb.is · 590 5040
VW Golf R
300hö 4WD
6.750.000 2016
18” álfelgur, LED framljós, R Sportsæti, Sóllúga,
Hraðanæmt rafstýri, Start/stop búnaður, Aðgerðarstýri,
Fjarlægðarskynjarar, Bakkmyndavél, 6.5“ snertiskjár,
Bluetooth, Lyklalaust aðgengi, Skynvædd fjöðrun.
5.000Ekinn
30
Raf / Bensín
Ekinn þús. km.
Myndir á vef
Dísil
Fjórhjóladrif
Metan & bensín
Sjálfskiptur
Beinskiptur
Rafmagnsbíll
Fleiri tilboðsbílar
og myndir á netinu: hnb.is
Margar stærðir,
fleiri litir.
VW Passat Alltrack
2.0 TDI
5.980.000 2016
19
Skoda Octavia Scout
2.0 TDI
4.990.000 2015
28
Chevrolet Captiva
7manna 2.2 TDI
Honda Civic Sport
1,6 TDI
3.790.000
2.890.000
2014
2014
66
38
Mitsubishi Pajero
Instyle 3.2 DID
Toyota Auris Active
1.6 CVT
7.780.000
3.290.000
1.470.000
1.470.000
2015
2016
34
2,5
NORÐUR-KÓREA Ríkisfréttastofa Norð-
ur-Kóreu (KCNA) greindi í gær frá því
að Bandaríkjamenn mættu eiga von
á gagnaðgerðum eftir að Carl Vinson-
flotadeild bandaríska sjóhersins var
siglt upp að Kóreuskaga. Eru skipin
þar staðsett til að bregðast við eld-
flaugatilraunum Norður-Kóreu.
„Við grátbiðjum aldrei um frið en
við munum beita hörðustu gagnað-
gerðum gegn þessum ögrandi aðgerð-
um Bandaríkjamanna. Við munum
verja okkur með miklu vopnaafli,“
segir í frétt KCNA sem birt var á ensku.
Vísað var í starfsmann utanríkisráðu-
neytis ríkisins.
„Við munum sjá til þess að Banda-
ríkjamenn beri ábyrgð á hörmulegum
afleiðingum sem munu verða vegna
svívirðilegra gjörða þeirra,“ segir enn
fremur.
Í kóreskri útgáfu fréttarinnar kemur
fram að ríkið muni ekki missa af tæki-
færinu til þess að fella heimsveldið
með „réttlátum eldi kjarnorkunnar“.
Donald Trump, forseti Banda-
ríkjanna, tjáði sig um Norður-Kóreu
á Twitter í gær. Sagðist hann hafa
látið Xi Jinping, forseta Kína, vita að
væntanlegur fríverslunarsamningur
ríkjanna yrði betri ef Kínverjar „hjálp-
uðu til við að leysa Norður-Kóreu-
vandann“. Trump fundaði með Xi í
síðustu viku.
„Norður-Kórea er að leita eftir
vandræðum. Ef Kínverjar ákveða að
hjálpa væri það frábært. Ef ekki þá
munum við leysa málin án þeirra!“
segir í tísti Trumps frá því í gær.
Þá greindu erlendir miðlar frá því
í gær að kínverski herinn hefði sent
150.000 hermenn að landamærunum
við Norður-Kóreu. – þea
Vilja fella Bandaríkin með kjarnorkueldi
RÚSSLAND G7 ríkin höfnuðu í gær
tillögu Breta um nýjar viðskipta-
þvinganir gegn Rússum vegna
stuðnings þeirra við ríkisstjórn
Bashars al-Assad í Sýrlandi. Var
krafan sett fram í kjölfar efnavopna-
árásar á bæinn Khan Sheikhoun
sem talið er að sýrlenski herinn hafi
staðið að. Alls féllu 89 í árásinni.
Utanríkisráðherrar G7 ríkjanna,
Bandaríkjanna, Bretlands, Japans,
Ítalíu, Þýskalands, Frakklands og
Kanada, auk Evrópusambandsins,
funduðu á Ítalíu í gær.
Angelino Alfano, utanríkisráð-
herra Ítalíu, sagði ríkin frekar vilja
leysa úr deilunni með diplómatísk-
um hætt. „Við teljum Rússa hafa það
vogarafl sem þarf til að fá Assad til
að standa við vopnahléssamninga
sem hafa verið gerðir,“ sagði Alfano.
Í kjölfar efnavopnaárásarinnar
réðust Bandaríkjamenn á Shayrat-
herflugvöllinn í Sýrlandi. Talið er
að efnavopnaárásarliðið hafi flogið
þaðan og til Khan Sheikhoun. Var
59 Tomahawk-eldflaugum skotið á
flugvöllinn.
James Mattis, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, tjáði sig um
gagnárásina í gær. Sagði hann að
árásin hefði ónýtt töluvert af elds-
neytis- og skotfærabirgðum Sýr-
landshers, skaðað loftvarnarkerfi
þeirra og eyðilagt fimmtung her-
flugvéla.
Á blaðamannafundi í gær sagði
Tillerson að sú árás hefði verið
nauðsynleg til að tryggja öryggi
Bandaríkjanna.
„Við viljum ekki að efnavopnabúr
sýrlenska hersins falli í hendur ISIS
eða annarra hryðjuverkasamtaka
sem gætu viljað ráðast á Banda-
ríkin eða bandamenn okkar,“ sagði
Tillerson.
„Bandaríkin sjá ekki fyrir sér að
ríkisstjórn Assads geti setið lengur
þar sem hún hefur tapað réttmæti
sínu með þessum árásum,“ sagði
hann enn fremur.
Um helgina tók Nikki Haley,
sendiherra Bandaríkjanna hjá Sam-
einuðu þjóðunum, í sama streng og
sagði Bandaríkin vilja koma Assad
frá. Sama dag sagði Tillerson það
ekki forgangsatriði. Aðalatriðið væri
að sigrast á ISIS.
Ríkisstjórn Donalds Trump
Bandaríkjaforseta virðist því hafa
skipt um skoðun. Sjálfur sagði
Trump áður en hann tók við emb-
ætti að Bandaríkin ættu ekki að
standa að því að koma fleiri leið-
togum Mið-Austurlanda frá völdum.
Eftir fundinn á Ítalíu hélt Tiller-
son til Moskvu til fundar við Sergei
Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands.
Greinandi BBC segir ólíklegt að
Tiller son takist að fá Rússa til að snúa
baki við Assad þar sem Sýrlendingar
eru helstu bandamenn Rússa í Mið-
Austurlöndum. Einnig hafi Rússar
varið miklum tíma og fé í stuðning
sinn við Assad. thorgnyr@frettabladid.is
Stórveldi hyggjast ekki
beita Rússa þvingunum
G7 ríkin vilja ekki nýjar viðskiptaþvinganir gegn Rússum. Bandaríkin
vilja koma forseta Sýrlands frá völdum. Gagnárás Bandaríkjanna á
Shayrat-herflugvöllinn eyðilagði fimmtung sýrlenskra herflugvéla.
Utanríkisráðherrar Japans, Þýskalands og Bretlands sjást hér á bak við Rex Tillerson, utanríkisráðherra Bandaríkjanna.
NORDICPHOTOS/AFP
Við viljum ekki að
efnavopnabúr
sýrlenska hersins falli í
hendur ISIS eða annarra
hryðjuverkasamtaka.
Rex Tillerson, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna
Flugmóðurskipið Carl Vinson. NORDICPHOTOS/AFP
1 2 . A P R Í L 2 0 1 7 M I Ð V I K U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð