Fréttablaðið - 12.04.2017, Blaðsíða 32
Sólveig
Gísladóttir
solveig@365.is
Steinunn er vel kunnug skáld-skap Hallgríms Péturssonar og sögu hans og Guðríðar,
en þekktasta ritverk Steinunnar
er heimildaskáldsagan Reisubók
Guðríðar Símonardóttur. „Hún
er að koma út í Frakklandi núna í
nýrri þýðingu. Hún er því alltaf að
þvælast svolítið um veröldina, hún
Guðríður,“ segir Steinunn glettin.
Passíusálmana þekkir Steinunn
einnig afar vel enda hefur hún
margsinnis tekið þátt í lestri þeirra
og nokkrum sinnum tekið að sér
að stjórna þeim. „Ég er eiginlega
alltaf í Passíusálmunum um þetta
leyti árs. Fyrir fjölmörgum árum
fékk ég afkomendur Hallgríms og
Guðríðar til að lesa sálmana og á
afmælisárinu, þegar 400 ár voru
liðin frá fæðingu Hallgríms, stjórn-
aði ég upplestri fjögurra kvenna
á sálmunum í Hallgrímskirkju í
Saurbæ. Við áttum það allar nema
ein sameiginlegt að hafa leikið
Guðríði á einhverjum tímapunkti,“
lýsir Steinunn. Hún bendir á að
konur hafi leikið mikilvægt hlut-
verk í útbreiðslu sálmanna. „Hall-
grímur sendi afrit af sálmunum til
fjögurra kvenna sem hann treysti
vel og gerði þær að sínum umboðs-
mönnum.“
Skipta sálmunum á milli sín
Sigurður og Steinunn störfuðu á
árum áður sem leikarar og léku
meðal annars hjónin Hallgrím og
Guðríði í uppsetningu Þjóðleik-
hússins á Tyrkja-Guddu eftir
dr. Jakob Jónsson, leikárið 1983-
84. „Við Sigurður höfum lítið sést
síðan enda hefur hann að stórum
hluta búið í Finnlandi og verið
mikilvirkur þýðandi bókmennta
úr finnsku og hlotið margvíslega
viðurkenningu og lof fyrir verk
sín,“ lýsir Steinunn.
En hvernig vaknaði hugmyndin
um að fá Sigurð til að lesa með
henni Passíusálmana?
„Hún vaknaði á föstudaginn
langa í fyrra. Þá átti Sigurður sjö-
tugsafmæli og um það var getið í
blöðunum. Þá áttaði ég mig á því
að hann væri alkominn heim og
Gömlu hjónin hittast á ný
Steinunn Jóhannesdóttir og Sigurður Karlsson léku hjónin Guðríði Símonardóttur og Hall-
grím Pétursson í leikritinu Tyrkja-Guddu í Þjóðleikhúsinu á níunda áratugnum. Nú hittast
þau á ný og flytja Passíusálmana í Hallgrímskirkju í Saurbæ á föstudaginn langa.
Steinunn og Sigurður í hlutverkum sínum sem Guðríður Símonardóttir og
Hallgrímur Pétursson í uppsetningu Þjóðleikhússins á Tyrkja-Guddu leikárið
1983-84.
Steinunn og Sigurður standa hér við listaverk eftir Einar Jónsson myndhöggv-
ara sem sýnir Guðríði lesa úr Passíusálmunum fyrir Hallgrím. Hún situr með
opna bók eða handrit á rúmstokknum en hann rís upp við dogg og hlustar. Að
baki þeim er engill. MYND/VILHELM
ákvað að spyrja hvort hann vildi
lesa sálmana með mér,“ svarar
Steinunn og Sigurður tók vel í
það. „Og nú hittumst við „gömlu
hjónin“ úr Tyrkja-Guddu á ný
í Hallgrímskirkju í Saurbæ og
ætlum að lifa okkur inn í þennan
hjúskap á föstudaginn langa. Við
skiptum sálmunum bróðurlega og
systurlega á milli okkur og lesum 25
sálma hvort.“
Sögulegur staður
Fáir staðir eru tengdari sögu Passíu-
sálmanna en Saurbær á Hval-
fjarðarströnd. Vorið 1651 settust
hjónin Hallgrímur og Guðríður að
í Saurbæ þar sem Hallgrímur tók
við prestsskap. Þar áttu þau eftir að
lifa sín bestu ár saman og þar vann
Hallgrímur sín stærstu afrek á sviði
skáldskaparins en hann lauk við að
yrkja Passíusálmana árið 1659.
Komin er hefð fyrir því að lesa
Passíusálmana í Hallgrímskirkju
í Saurbæ á föstudaginn langa og
Steinunn segir afar hátíðlega og
fallega stemningu ríkja í kirkjunni
þennan dag. „Hallgrímskirkja í
Saurbæ er dásamlega falleg kirkja
með notalegan hljómburð og
Saurbær stendur einstaklega fal-
lega. Þetta er yndislegur staður að
heimsækja enda fjölmargir sem
leggja leið sína í kirkjuna þennan
dag til að hlusta um stund og íhuga
þennan ótrúlega magnaða skáld-
skap.“
Flutningur Passíusálmanna í
Hallgrímskirkju í Saurbæ á föstu-
daginn langa hefst klukkan 13.30
og stendur til á að giska 18.30. Tón-
list milli þátta verður í höndum
Erlu Rutar Káradóttur.
SKELLTU ÞÉR
Í SUND UM
PÁSKANA
www.itr.is ı sími 411 5000
Lykill
að góðri
heilsu
ITR.ISAFG E Ð LU ÍM S NDST ÐA PÁ KA MÁ FI N Á
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 2 . A P R Í L 2 0 1 7 M I ÐV I KU DAG U R