Fréttablaðið - 12.04.2017, Blaðsíða 38
Teiknið formið á
tveggja lítra gos-
flösku, skerið
ofan af henni
með beittum
hníf og klippið
svo eftir línunni.
Ragnheiður
Tryggvadóttir
heida@365.is
Körfurnar eru sætar undir lítil páskaegg handa gestum eða sem nammiskálar.
Þegar málningin er orðin þurr má teikna andlit eða líma á plastið augu, nef, gogg eða tennur eftir því sem við á.
Í körfur undir lítil súkkulaðiegg er best að nota neðrihlutann á tveggja lítra flöskum undan gosi.
Byrjið á að fjarlægja miðann af
flöskunni.
Teiknið með tússpenna útlínuna
eða munstrið sem ykkur langar að
hafa, til dæmis páskakanínu eða
páskaunga.
Hægt er að klippa eftir línunni
með góðum skærum en fyrst þarf
að skera ofan af flöskunni með
beittum hníf til að koma skærunum
að. Fáið einhvern fullorðinn til að
hjálpa ykkur við það.
Þegar búið er að klippa formið
út er gott að pússa yfir plastið
með fínum sandpappír þar til
það verður matt. Einnig er gott að
strjúka með sandpappírnum yfir
brúnirnar þar sem þær geta verið
hvassar.
Þá er komið að því að mála. Það
er hægt að nota föndursprey en þá
þarf að passa vel að úða ekki lit yfir
allt í kring.
Mjög góð og viðráðanleg aðferð
er að „dúmpa“ málninguna á með
svampi. Þannig fæst þekjandi og
góð áferð á plastið.
Þegar málningin er orðin þurr má
annaðhvort teikna andlit á kanín-
una eða ungann með tússpenna,
eða klippa augu, nef og munn, gogg
eða tennur út úr pappír og líma á.
Þá er páskakarfan tilbúin og hægt
að hrúga í hana litlum páskaeggjum
eða nammi.
Páskakörfur úr
plastflöskum
Umbúðir utan af gosdrykkjum er hægt að nota í
skemmtilegt páskaföndur fyrir krakka. Á einfaldan máta
er hægt að búa til sætar körfur undir páskaegg og nammi.
Ógleymanlegar
stundir í hjarta
Suðurlands
s. 531 8010 • info@stractahotels.is • stractahotels.is
OG BÍLALEIGA
HELLU
Fa
rv
i.i
s
//
0
41
7
KRINGLUNNI | 588 2300
KJÓLL
5.995
333 krá dag*
365.is Sími 1817
*9.990.- á mánuði.
4 KYNNINGARBLAÐ 1 2 . A P R Í L 2 0 1 7 M I ÐV I KU DAG U R