Fréttablaðið - 12.04.2017, Blaðsíða 60
Elskuleg eiginkona mín,
mamma okkar og amma,
Helga Kristín Lúðvíksdóttir
frá Raufarhöfn,
lést 26. mars,
jarðarför hefur farið fram í kyrrþey, að ósk hinnar látnu.
Guðmundur Friðriksson
Jóhannes Guðmundsson Sigrún Kjartansdóttir
Hallsteinn Guðmundsson Elínborg Þorgrímsdóttir
Sigrún Guðmundardóttir
Marta Kristín Guðmundardóttir
Ása Guðmundardóttir Viktor Ingimarsson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
Ástkær móðir okkar,
Anna Salóme Ingólfsdóttir
Hlíðarhjalla 62, Kópavogi,
áður Hofgerði 2, Vogum,
lést að kvöldi sunnudagsins 9. apríl.
Útförin verður auglýst síðar.
Guðbjörg M. Sveinsdóttir Oddgeir E. Karlsson
Þorsteinn B. Sveinsson Kristín Pétursdóttir
Ingólfur F. Sveinsson
Elskulegur faðir, tengdafaðir,
a og langa,
Jóhann Valdimarsson
Hrafnistu, Hafnar rði,
áður Hamarsgerði 2,
lést mmtudaginn 6. apríl.
Útför fer fram frá Bústaðakirkju
miðvikudaginn 19. apríl kl. 11.00.
Valdimar Jóhannsson Ingibjörg Unnur Ragnarsdóttir
Björg Kristjánsdóttir
Bryndís Arnnnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Lokun vegna jarðarfarar
Skrifstofur okkar verða lokaðar
miðvikudaginn 12. apríl vegna jarðarfarar
Halldórs H. Backman hrl.
Lagastoð lögfræðiþjónusta ehf.
Lágmúla 7 – 108 Rvk.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
a og langa,
Sigurjón Friðriksson
fyrrverandi bóndi í Ytri-Hlíð,
Vopna rði,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Sunda-
búð Vopnarði föstudaginn 7. apríl sl.
Útför fer fram frá Vopnaarðarkirkju miðvikudaginn
19. apríl kl. 14.00. Jarðsett verður í Hofskirkjugarði.
Friðrik Sigurjónsson
Emil Sigurjónsson Aðalheiður S. Steingrímsdóttir
Hörður Sigurjónsson Petra Jörgensdóttir
Þórný Sigurjónsdóttir
Erla Sigurjónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Guðrún Gunnarsdóttir
Lyngholti 5, Ke avík,
lést á Hrafnistu Nesvöllum,
laugardaginn 8. apríl. Útför hennar fer
fram frá Keavíkurkirkju, þriðjudaginn
25. apríl kl. 13.00.
Hilmar Harðarson
Ingunn María Hilmarsdóttir Ágúst Gunnarsson
Þórey Ása Hilmarsdóttir Jóhannes K. Jóhannesson
Gunnhildur Hilmarsdóttir Ahmed Kallel
Guðmundur P. Hilmarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur hlýhug
og stuðning við andlát og útför
elskulegs eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
Helga M. Bergs
fyrrv. bæjarstjóra á Akureyri
og lektors HA ,
Áleimum 28, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildarinnar
í Kópavogi fyrir frábæra umönnun.
Dóróthea Bergs
Helgi Þór Bergs Sigurlín Huld Ívarsdóttir
Vilhjálmur Bergs Jóna Valborg Árnadóttir
Þórdís Lilja Bergs Georg Heiðar Ómarsson
afabörn og langafabarn.
Eiginkona, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ingibjörg M. Björgvinsdóttir
(BOGGA)
Merkigerði 6, Akranesi,
andaðist 2. apríl á HVE Akranesi. Útförin
hefur farið fram frá Stykkishólmskirkju
þann 8. apríl. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug. Sendum sérstakar þakkir til starfsfólks
HVE á Akranesi.
Ólafur Ellertsson
Björgvin Ólafsson
Alex Páll Ólafsson Elín Dóra Sveinbjörnsdóttir
Þorsteinn Ólafsson Sigríður Guðmundsdóttir
Ellert Ólafsson Hafdís B. Kristjánsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, a og langa,
Þórmundur Guðlaugsson
Vatnsholti 9d,
Ke avík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja,
sunnudaginn 2. apríl. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Guðnna Valgeirsdóttir
Hallur Þórmundsson Ragnheiður Lúðvíksdóttir
Ólafur Þórmundsson Hulda María Sigurðardóttir
Rúnar Þórmundsson Sigríður Gunnarsdóttir
Linda Ósk Þórmundsdóttir Ómar Gísli Sævarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra
sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför okkar ástkæru
mágkonu og föðursystur,
Bjargar Valgeirsdóttur
Dalbraut 16,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Grundar.
Stefanía Stefánsdóttir
Valgeir Hallvarðsson Aðalbjörg Kristinsdóttir
Eva Hallvarðsdóttir Ásgeir Valdimarsson
Herdís Hallvarðsdóttir Gísli Helgason
Rannveig Hallvarðsdóttir Jóhannes Karl Jia
Tryggvi Hallvarðsson Þuríður Vilhjálmsdóttir
Hildur Björnsdóttir Ásgeir Bragason
Dagný Björnsdóttir Skúli Gunnarsson
Valgerður Helga Björnsdóttir Jón Haerg Björnsson
Merkisatburðir
Músík í Mývatnssveit verður haldin nú í dymbilviku í hvorki meira né minna en 20. sinn. Laufey Sigurðar-
dóttir hefur öll þessi ár verið mann-
eskjan á bak við þennan árlega viðburð
þó að hún vilji nú ekki gera mikið úr því.
Datt þér í hug í byrjun að þetta myndi
ganga í 20 ár?
„Nei! Mér datt það ekki í hug. Þetta
byrjaði vegna þess að það voru afþrey-
ingarmöguleikar til útivistar í sveitinni
en það vantaði eitthvað til mótvægis
við það. Það er gömul menningarhefð
í Mývatnssveit og alveg prýðileg hús til
að stunda eitthvað svona af þessu tagi.
Þeir eiga dásamlegt félagsheimili, Skjól-
brekku, og það er, eins og allir vita, að
sum hús hafa einhvers konar sál eða
líf og þetta hús er þannig, það er eitt af
þessu sem er ekki hægt að útskýra og
maður bara finnur. En Skjólbrekka hefur
bæði líf og sál og það er tilvalið að nota
það til tónleikahalds,“ segir Laufey en
hún mun munda fiðluna fyrir norðan
og ásamt henni eru flytjendur þau Krist-
inn Sigmundsson bassi, Bryndís Halla
Gylfadóttir á selló og Domenico Codis-
poti sem spilar á píanóið.
Tónleikarnir fara fram í félagsheimil-
inu Skjólbrekku á skírdag, þann 13. apríl
á slaginu átta. Þeir seinni verða svo í
Reykjahlíðarkirkju á föstudaginn langa
klukkan níu.
„Þetta eru alveg ólíkir tónleikar – þetta
eru kammertónleikar í Skjólbrekku. Það
er í tísku að tala um að það sé boðið upp á
léttar veitingar en við skulum segja að það
sé boðið upp á þungar veitingar í hléinu.
En svo í kirkjunni er þetta klukkutíma
efnisskrá án hlés og tónlistin og stemm-
ingin tekur mið af deginum. Síðan eru
tveir ungir Mývetningar sem syngja með
okkur – það eru þau Stefán Jakobsson úr
Dimmu og Margrét Hildur Egilsdóttir sem
er ung stúlka úr Mývatnssveit.“
Spurð að því hvað þessir ungu Mývetn-
ingar ætli að syngja þarna vill Laufey
ekkert tjá sig um það mál. Þannig að það
verður bara að koma á óvart. Að lokum
vill hún skila þakklæti til allra sem styðja
þessa starfsemi hennar, fyrst og fremst til
allra tónlistarmannanna og auðvitað líka
til þeirra sem styrkja verkefnið og koma á
tónleikana, en hún vonar að þeir verði sem
allra flestir. stefanthor@frettabladid.is
Músík í Mývatnssveit
Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari hefur staðið fyrir tónlistarhátíðinni Músík í Mývatnssveit
um hverja páska og nú er svo komið að hátíðin er haldin í tuttugasta sinn. Hún segir ríka
menningarhefð vera til staðar við Mývatn og að þar sé prýðis aðstaða fyrir tónleikahald.
Laufey Sigurðardóttir ásamt hinum geðgóðu Bryndísi Höllu Gylfadóttur sellóleikara og
Domenico Codispoti píanóleikara. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
1912 Farþegaskipið Titanic, sem aldrei átti að sökkva, lagði
upp í sína fyrstu og einu ferð. Skipið sökk þrem dögum
seinna eir árekstur við borgarísjaka.
1919 Átján manns fórust í snjóóðum við Sigluörð og
síldarverksmiðja gjöreyðilagðist.
1952 Vélbáturinn Veiga sökk við Vestmannaeyjar. Tveir
menn fórust en sex björguðust í gúmmíbjörgunarbát. Þetta
var í fyrsta sinn sem slíkur bátur var notaður hér við land.
1953 Menntaskólinn á Laugarvatni varð sjálfstæður
menntaskóli. Hann var fyrsti menntaskólinn í dreiýli á
Íslandi.
2010 Rannsóknarnefnd Alþingis birti skýrslu um aðdrag-
anda og orsakir hrunsins í níu bindum.
1 2 . A P R Í L 2 0 1 7 M I Ð V I K U D A G U R24 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT