Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.03.2014, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 14.03.2014, Qupperneq 2
14. mars 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 2 SVÍÞJÓÐ Áhuginn á að ganga í heimavarnarliðið í Svíþjóð hefur tvöfaldast eftir að rússneskir her- menn tóku stjórnina á Krímskaga, að því er greint er frá á fréttavef Dagens Nyheter. Eftir að kalda stríðinu lauk hefur hlutverk heimavarnarliðsins aukist. Búnaður þess er meiri og einnig ábyrgðin. Áhuginn á þátt- töku í heimavarnarliðinu er hlut- fallslega mestur á Gotlandi, eyju í Eystrasalti. Þar eru rúmlega 450 í liðinu og af þeim bera 250 vopn. - ibs Atburðir á Krímskaga: Svíar vilja í heimavarnarlið Ásta, mælir þú með balli? „Já, fullum hálsi!“ Ásta Laufey Aðalsteinsdóttir, félags- og forvarnafulltrúi, hefur talað fyrir því að nemendur séu látnir blása í áfengismæla á skólaböllum til að koma í veg fyrir ölvun. DÓMSMÁL Hæstiréttur Íslands dæmdi í gær Lýð Guðmundsson, fyrrverandi stjórnarformann Exista hf., í átta mánaða fang- elsi, þar af fimm mánuði skilorðs- bundna. Bjarnfreður Ólafsson, lögmað- ur og fyrrverandi stjórnarmaður í Kaupþingi, var þá dæmdur í sex mánaða fangelsi, þar af þrjá mán- uði skilorðsbundna, og sviptur lög- mannsréttindum í eitt ár. Lýður og Bjarnfreður voru dæmdir fyrir brot á lögum um hlutafélög vegna hlutafjáraukning- ar Exista í desember 2008. Lýður var sakfelldur fyrir að greiða Exista minna en nafnverð þegar hlutafé félagsins var aukið um fimmtíu milljarða króna. Bjarnfreður var sakfelldur fyrir að hafa sent villandi tilkynningu til fyrirtækjaskrár. Í tilkynn- ingunni kom fram að aukning á hlutafé Exista hefði að fullu verið greidd til félagsins með fimmtíu milljörðum króna. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður dæmt Lýð til að greiða tvær milljónir króna í sekt en Bjarn- freður var þá sýknaður. - hg Dæmdir fyrir brot á lögum um hlutafélög vegna hlutafjáraukningar Exista: Lýður og Bjarnfreður í fangelsi LÝÐUR GUÐMUNDSSON BJARNFREÐUR ÓLAFSSON MALASÍA Leitin að farþegaþotu frá Malasíu, sem hvarf yfir Suð- ur-Kínahafi, var í gær víkkuð út eftir að orðrómur kviknaði um að hugsanlega hafi henni verið flogið í nokkrar klukkustundir eftir að síðast heyrðist frá henni. Sérfræðingar segja að hafi vélin hrapað í hafið muni brak úr henni líklega finnast á endanum, en það gæti dregist í nokkrar vikur. Sjó- herir frá Kína, Bandaríkjunum og fleiri löndum taka þátt í leitinni ásamt Malasíumönnum. - gb Margir leita á Kínahafi: Leit gæti tekið nokkrar vikur SPURNING DAGSINS SVEITARSTJÓRNARMÁL Hafnarfjarð- arbær þarf að greiða viðbótar- skatt upp á 273 milljónir króna vegna hagnaðar af sölu hlutabréfa í Hitaveitu Suðurnesja fái að standa dómur Héraðsdóms Reykjavíkur frá sjöunda þessa mánaðar. Þá bæt- ist líklega einnig við kostnaður. Hafnarfjarð- arbær stefndi ríkinu í febrúar í fyrra og vildi fá tekjuskatts- stofn bæjarins fyrir gjaldaárið 2010 lækkaðan um tæpa 5,5 millj- arða króna. Til vara krafðist bær- inn þess að miðað yrði við gjaldárið 2009, en þá var tekjuskattshlut- fallið tíu prósent, en ekki fimmtán prósent eins og árið eftir. Hvoru tveggja var hafnað í dómi héraðs- dóms. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, segir bæinn þegar hafa greitt tekjuskatt af sölunni miðað við tíu prósenta álagningu, með fyrirvara um mót- mæli bæjarins. Miðað við fimmtán prósenta skatt hefði hins vegar átt að greiða 820 milljónir króna í skatt af söluhagnaðinum. Afstöðu til mögulegrar áfrýjun- ar segir Guðrún verða tekna að lok- inni kynningu og að fenginni ráð- gjöf lögmanns bæjarins í málinu á næsta fundi bæjarráðs. Lögmaður- inn hafi ekki haft tök á að mæta á fund bæjarráðs í gær. - óká Reykvíkingar! Ekki gleyma að kjósa um betri hverfi kjosa.betrireykjavik.is Virkjum íbúalýðræðið! Opið er fyrir atkvæðagreiðslu 11.-18. mars Lánshæfismat Hafnarfjarðar hefur verið hækkað um tvo flokka og stendur í BBB1 með stöðugum horfum. Fulltrúar Reitunar kynntu nýtt mat á fundi bæjar- ráðs í gær. Að sögn Guðrúnar Ágústu Guðmundsdóttur, bæjarstjóra í Hafnarfirði, kemur nýtt mat í kjölfar endurfjármögnunar á skuldum bæjarins, en Íslandsbanki hefur boðið bænum að endurfjármagna allar skuldir sveitarfélagsins í íslenskum krónum. Um er að ræða endurfjármögnun á erlendum lánum hjá þýska bank- anum FMS (áður Depfa). Í tilkynningu er endurfjármögnunin sögð koma til með að lækka greiðslubyrði og minnka gjaldeyrisáhættu sveitarfélagsins, sem styrki fjárhagsstöðu þess. Skuldir endurfjármagnaðar og mat bætt GUÐRÚN Á. GUÐ- MUNDSDÓTTIR Gætu þurft að borga 273 milljónir í viðbót vegna Hitaveitu Suðurnesja: Dómur hafnar lækkun skatta DANMÖRK Danska lögreglan lagði hald á þrjár milljónir danskra króna í reiðufé, 3,5 kg af gullstöng- um, mörg hundruð kíló af hassi, vopn og ökutæki við skyndileit í fríríkinu Kristjaníu og hjá meint- um tengiliðum fíkniefnasalanna þar víða um Sjáland í gær, alls á 150 stöðum. Um áttatíu voru handteknir í Kristjaníu og víðar, segir Politiken. Lögregla var með mikinn við- búnað þar sem yfirheyrslur yfir fólkinu fóru fram. - ibs 80 handteknir í Danmörku: Lögðu hald á gull í Kristjaníu VELFERÐARMÁL Hrönn Thoraren- sen hjúkrunarfræðingur fékk ekki endurhæfingarlífeyri því hún hafði flutt lögheimili sitt í sjö vikur til Svíþjóðar. Hún greiddi enn skatta á Íslandi á því tíma- bili. Lögum var breytt eftir hrun þannig að nú er nauðsynlegt að hafa búið í þrjú ár samfleytt á Íslandi til að eiga rétt á endur- hæfingar- lífeyri. „Rétt áður en ég flutti til Sví- þjóðar, haustið 2009, var ég orðin óvinnufær vegna veik- inda. Ég var því enn á launum til áramóta,“ útskýrir Hrönn, sem fylgdi barnsföður sínum út. Hrönn segist ekki hafa verið sátt við flutningana og áttað sig á að sambandið væri ekki nógu gott eftir að hún var komin út. Hún tók því ákvörðun um að flytja aftur til Íslands sjö vikum síðar. Eftir að heim var komið kláraði Hrönn rétt sinn hjá sjúkrasjóði stéttarfélagsins, og sótti að því búnu um endurhæfingarlífeyri í samráði við heimilislækni. Svar- ið kom henni á óvart. „Ég fékk höfnun því ég hafði fært lögheimili mitt til Svíþjóð- ar í sjö vikur,“ segir Hrönn. Var henni sagt að hún þyrfti að bíða í þrjú ár. „Það gat enginn hjálp- að hjá Tryggingastofnun og ég gat ekki staðið í stappi á þessum tíma.“ Þremur árum eftir að Hrönn flutti heim frá Svíþjóð var staða hennar þannig að ástæða þótti til að sækja um varanlega örorku. Rúmu ári eftir að hafa lagt inn umsókn fékk hún höfnun því end- urhæfing þótti ekki fullreynd. „Það skipti ekki máli þó að í millitíðinni kæmi í ljós að hvorki endurhæfing né lyf skiluðu til- ætluðum árangri,“ segir Hrönn, sem kærði niðurstöðuna án árangurs. Hrönn bíður enn eftir úrlausn sinna mála hjá Tryggingastofn- un. Hún vonar að ný og rétt grein- ing á veikindum hennar hjálpi til. Réttleysi og langur úrlausnartími hjá Tryggingastofnun hafi mikil áhrif á fjárhag hennar og aðgang að nauðsynlegri þjónustu. „Þetta hefur breytt miklu fjár- hagslega, sérstaklega í tengslum við lyfja- og lækniskostnað. Sjúkraþjálfun hefði bætt líðan mína,“ segir Hrönn. Mjög alvar- legt sé að fólk sem flytji tíma- bundið úr landi missi réttindi sín. „Þennan stutta tíma sem ég bjó úti var ég enn að borga skatta hérlendis,“ bendir hún á og segist hafa mætt óþægilegu viðhorfi hjá Tryggingastofnun. „Það er eins og allir séu að svindla.“ Hrönn segir sterkt bakland hafa bjargað henni, en hún hefur þegið mikla hjálp frá fjölskyldu sinni, sem veitti henni á tímabili húsaskjól og fjárhagslega aðstoð. eva@frettabladid.is Missti réttindin í 3 ár eftir 7 vikur í Svíþjóð Hjúkrunarfræðingur missti réttindi sín til örorku- og endurhæfingarlífeyris í þrjú ár vegna sjö vikna búsetu í Svíþjóð. Fimm árum síðar bíður hún enn eftir úrlausn hjá Tryggingastofnun. Endurhæfingarlífeyrir var tengdur búsetu eftir bankahrun. Það er eins og allir séu að svindla. Hrönn Thorarensen hjúkrunarfræðingur. ENDURHÆFING Réttleysi og langur úrlausnartími hjá Tryggingastofnun hefur mikil áhrif á fjárhag fólks og aðgang að nauðsynlegri þjónustu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA TYRKLAND, AP Víðtæk mótmæli gegn stjórnvöldum hafa verið í borgum Tyrklands síðustu dagana, eða frá því að fimmtán ára drengur lét lífið eftir að hafa legið í dái frá því að hann slasaðist í mótmælum á síðasta ári. Tveir menn létu lífið í átökum við lögreglu á miðvikudag og söfn- uðust þúsundir manna saman í gær þegar annar þeirra, Buruk Can Karamanoglu, var borinn til grafar í gær. Hann lést af völdum byssu- kúlu, sem hann fékk í höfuðið. Pilturinn, Berkin Elvan, hafði verið í dái í níu mánuði þegar hann lést á þriðjudaginn. Hann hafði ekki tekið þátt í mótmælunum, heldur varð fyrir táragashylki frá lögreglunni þar sem hann var á gangi á leiðinni í bakarí til að kaupa brauð. - gb Tveir létu lífið í mótmælum gegn stjórnvöldum í Tyrklandi: Jarðarför snerist upp í mótmæli ÚTFÖR Í ISTANBÚL Þúsundir manna fylgdu Burak Can Karamanoglu til grafar í gær. NORDICPHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.