Fréttablaðið - 14.03.2014, Side 4

Fréttablaðið - 14.03.2014, Side 4
14. mars 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 4 KÖNNUN Sjálfstæðisflokkurinn myndi tapa tæpum þriðjungi þess stuðnings sem hann naut í borgarstjórnarkosningunum árið 2010 yrði kosið nú, samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðana- könnunar Fréttablaðsins og Stöðv- ar 2. Samkvæmt könnuninni, sem gerð var síðastliðinn miðvikudag, fengi Sjálfstæðisflokkurinn 23,1 prósent atkvæða og fjóra borgar- fulltrúa. Í kosningunum 2010 fékk flokkurinn 33,6 prósenta fylgi og fimm borgarfulltrúa. Björt framtíð nær samkvæmt könnuninni ekki að halda því mikla fylgi sem Besti flokkurinn, undir forystu Jóns Gnarr, sópaði að sér í síðustu kosningum. Björt framtíð, arftaki Besta flokksins, fengi 28,3 prósenta fylgi og fimm borgarfull- trúa samkvæmt könnuninni. Besti flokkurinn fékk 34,7 prósent og sex fulltrúa í síðustu kosningum. Samfylkingin vinnur á frá kosningunum og fengi 23 prósent atkvæða og fjóra borgarfulltrúa yrði gengið til kosninga nú, sam- kvæmt könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Flokkurinn fékk 19,1 pró- sent atkvæða í síðustu kosningum og þrjá borgarfulltrúa. Ljóst er að ekki verður myndað- ur meirihluti nema með samstarfi tveggja af þessum þremur flokk- um, sem samanlagt fengju þrettán borgarfulltrúa af fimmtán, sam- kvæmt könnuninni. Meirihluti Bjartrar framtíðar og Samfylkingarinnar gæti sam- kvæmt þessu starfað áfram með sama meirihluta, níu borgarfulltrúa af fimmtán. Einn borgarfulltrúi myndi þó færast frá Bjartri fram- tíð til Samfylkingarinnar. Einnig er mögulegt að annar hvor flokkanna myndi nýjan meirihluta með Sjálf- stæðisflokki eftir kosningarnar. Píratar ná inn manni Píratar bjóða nú fram til borgar- stjórnar í fyrsta skipti. Flokk- urinn fengi 9,6 prósent atkvæða yrði gengið til kosninga nú, sem myndi skila þeim einum manni í borgarstjórn. Vinstri græn mælast með svo til sama fylgi og Píratar, 9,5 pró- sent, og fengju eins og Píratar einn mann í borgarstjórn. Stuðn- ingur við Vinstri græna hefur aukist frá kosningunum árið 2010, þegar þeir fengu 7,2 prósent atkvæða og einn mann kjörinn. Aðrir flokkar ná ekki fimm prósenta lágmarkinu til að ná mönnum í borgarstjórn. Um 3,7 prósent ætla samkvæmt könn- uninni að kjósa Framsóknar- flokkinn, sem fékk 2,7 prósent atkvæða í síðustu kosningum. Þá ætlar 1,1 prósent að kjósa Dögun, sem ekki bauð fram síðast. Um 1,7 prósent segjast ætla að kjósa einhvern annan flokk. brjann@frettabladid.is Fylgi Sjálfstæðisflokks hrapar Stuðningur við Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík er nærri þriðjungi minni nú en í sveitarstjórnarkosningunum fyrir fjórum árum, samkvæmt könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Samfylkingin sækir í sig veðrið í borginni. Hringt var í 1.241 manns þar til náðist í 805 manns samkvæmt lagskiptu úrtaki miðvikudaginn 12. mars. Svarhlutfallið var 65 prósent. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni, og hlutfallslega eftir aldri. Spurt var: Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til borgar- stjórnarkosninga í dag? Ef ekki fékkst svar var spurt: Hvaða flokk er líklegast að þú myndir kjósa? Ef ekki fékkst svar var spurt: Er líklegra að þú myndir kjósa Sjálfstæðisflokkinn, eða einhvern annan flokk? Það er gert í samræmi við aðferðafræði sem þróuð var hjá Félagsvísinda- stofnun Háskóla Íslands. Alls tóku 60 prósent þeirra sem náðist í afstöðu til spurningarinnar. ➜ Aðferðafræðin 34 ,7 % 33 ,6 % 2, 7% 2, 7 Kosningar 29.5.2010 Könnun 12.3.2014 28 ,3 % 34 ,7 % 33 ,6 % 3, 7% 23 ,1 % 1, 1% 9, 5% 9, 6% 35% 30% 25% 20% 15% 10% 5% 0 * *Bauð fram undir merkjum Besta flokksins í kosning- unum árið 2010. Heimild: Könnun Fréttablaðs- ins og Stöðvar 2 þann 12. mars 2014. STUÐNINGUR VIÐ STJÓRNMÁLAFLOKKA 19 ,1 % 23 ,0 % 3, 3% v ik m ör k 1, 4% v ik m ör k 3, 1% v ik m ör k 3, 1% v ik m ör k 0, 8% v ik m ör k 2, 2% v ik m ör k 2, 2% v ik m ör k7, 2% EFNAHAGSMÁL Greiningardeild- ir viðskiptabankanna þriggja spá óbreyttum stýrivöxtum Seðlabank- ans á næsta vaxtaákvörðunardegi, 19. mars. Breytt vaxtastig yrði að mati greiningardeildar Arion „sögulegur viðsnúningur“ í afstöðu peningastefnunefndar milli funda. Greining Íslandsbanka telur tóninn í yfirlýsingu nefndarinnar kunna að breytast úr vaxtahækk- unartóni „í að nefndin opni á hugs- anlega vaxtalækkun á næstu mán- uðum“. - óká Bankar spá um stýrivexti: Telja að vextir verði óbreyttir DÓMSMÁL Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir karlmanni sem var dæmd- ur í átta mánaða skilorðsbund- ið fangelsi fyrir líkamsárás í miðbæ Reykjavíkur árið 2012. Hann var sakfelldur fyrir að hafa skallað annan mann í höfuðið, slegið hann tvö högg og skorið með blaði úr dúka- hníf. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að hinn ákærði hafði tvisvar hlotið ákærufrest- un, árásin hafði átt sér stað í átökum og að hinn ákærði hafði sjálfur hlotið mikla áverka í átökunum. - bþ Hæstiréttur staðfesti dóm: Skar með blaði úr dúkahnífi HÆSTIRÉTTUR Hinn seki skar annan mann með blaði úr dúkahnífi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA HEILBRIGÐISMÁL Konur með leg- slímu flakk og aðstandendur gengu frá Hallgrímskirkju að Kvennadeild Landspítalans í alþjóðlegri kröfu- göngu í gær. Gangan var í um fjörutíu löndum. Markmiðið er að auka þekkingu á sjúkdómnum, sýna konum með hann skilning og samstöðu auk þess að minna á þörf fyrir göngudeild. Um tvö þúsund konur eru greindar á Íslandi með sjúkdóminn. Gulum borða var nælt í barm heilbrigðis- ráðherra sem ávarpaði hópinn. - jm Alþjóðleg samstöðuganga fyrir konur með legslímuflakk og aðstandendur: Gengu til að vekja vitund fólks GÖNGUFÓLK Gulum blöðrum var haldið á loft sem tákn fyrir vitundarvakn- ingu um leg- slímuflakk. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN VIÐSKIPTI Hagnaður Advania fyrir afskriftir árið 2013 nam 1.315 milljónum króna saman- borið við 341 milljón árið áður. Heildartekjur samstæðunnar jukust um 2,5 prósent á milli ára og voru 26.478 milljónir króna samanborið við 25.829 milljónir árið á undan. Heildar- afkoman var neikvæð um 360 milljónir króna. Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania, segist í tilkynningu vera sáttur við afkomuna og að hún staðfesti jákvæða þróun í rekstri samstæðunnar. - hg Afkoma Advania árið 2013: Hagnaður nam 1,3 milljörðum AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ Soff ía Sveinsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá HITI BREYTIST LÍTIÐ Í dag verður stund milli stríða, yfirleitt hægur vindur og úrkomulítið, þó él á stöku stað við norðurströndina. Á morgun er útlit fyrir vaxandi SV-átt og töluverða rigningu um tíma suðvestantil. -2° 6 m/s 2° 3 m/s 4° 2 m/s 6° 8 m/s Vaxandi SV-átt, 10-18 m/s síðdegis. Lægir með deg- inum. Gildistími korta er um hádegi 7° 19° 5° 18° 18° 9° 18° 8° 8° 20° 17° 18° 18° 16° 18° 14° 11° 19° 4° 3 m/s 4° 3 m/s 2° 3 m/s -1° 9 m/s 1° 6 m/s 1° 8 m/s -1° 2 m/s 5° 3° 0° -2° 2° 4° 1° 1° 3° -3° Alicante Aþena Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur SUNNUDAGUR Á MORGUN Gæði fara aldrei úr tísku Mest seldu ofnar á Norðurlöndum 10 ára ábyrgð 41% kvenna á aldrinum 25 til 64 ára hefur lokið háskólanámi. Um 29 prósent karla á sama aldurs- bili hafa lokið námi frá háskóla. Heimild: Jafnréttisstofa BORGARMÁLIN RÆDD Oddvitar framboðanna í Reykjavík svöruðu spurningum fréttamanna á Stöð tvö á dögunum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.