Fréttablaðið - 14.03.2014, Side 22
FÓLK|HELGIN
Prestarnir og hjónin Jóna Hrönn Bolladóttir og Bjarni Karlsson seldu hús sitt og bíla
síðastliðið sumar og fluttu vestur
til Pasadena í Kaliforníu. Það vekur
athygli þegar fólk eins og þau Jóna
Hrönn og Bjarni, bæði sóknar-
prestar, hún í Garðabæ og hann í
Laugarneskirkju, rífur sig upp með
rótum og heldur á vit ævintýranna.
„Við prestar erum svo lánsamir,
eins og fleiri starfstéttir, að einu
sinni á starfsævinni eigum við kost
á níu mánaða námsleyfi,“ segir Jóna
Hrönn. „Fyrir nokkrum árum vorum
við hjón á ferð í Kaliforníu og þá
hétum við því að þegar að okkur
kæmi í þessum efnum skyldum við
verja tímanum í Suður-Kaliforníu.“
„Hvers vegna að eyða níu námsleyf-
ismánuðum í vondu veðri ef annað
er í boði?“ spyr Bjarni.
KEYRT YFIR BANDARÍKIN
Þau hjónin lögðu í hann í lok ágúst
í fyrra og byrjuðu á því að keyra
þvert yfir Bandaríkin. „Við fórum
ekki einföldustu leiðina því við flug-
um til Boston, stóðum þar í þriggja
daga basli við að finna traustan bíl
á góðu verði og koma á hann núm-
eraplötu. Mörgum Ameríkananum
þykir það fáránlegt að fara akandi
yfir Bandaríkin en Íslendingurinn
veit að það er draumur sérhvers
manns,“ segir Jóna Hrönn og hlær.
„Við lögðum leið okkar í stórum
boga sunnanvert yfir Bandaríkin og
það var einkar upplýsandi að aka
úr hverju fylkinu í annað, sjá brag
mannlífsins breytast ásamt lands-
lagi og gróðurfari, nema hvað Star-
bucks og McDonalds hefur sama
svipinn alla leið. Við náðum ákvörð-
unarstað mánuði síðar og komum
okkur fyrir í námsmannaíbúð hér
við Fuller-háskólann í Pasadena.“
NEMAR Á NÝ
Jóna Hrönn er gestanemandi við
guðfræðideild Fuller-háskóla þar
sem hún sækir einkum tíma í sál-
gæslu- og fjölskyldumeðferð ásamt
list- og helgisiðafræðum. Bjarni er
gestur við deildina og vinnur að
doktorsritgerð í siðfræði. „Í ritgerð-
inni skoða ég hvaða þættir í menn-
ingu okkar valdi og viðhaldi fátækt
og vinn hana undir handleiðslu
míns íslenska prófessors við guð-
fræðideild HÍ, dr. Sólveigar Önnu
Bóasdóttur,“ segir Bjarni.
SAMFÉLAG HLUTLEYSIS
Það kostar átak að fara út úr fast-
mótuðu mynstri og hefja nýtt líf
eins og þau Jóna Hrönn og Bjarni
gerðu enda tala þau um sjálf sig
sem miðaldra hippa. Þeim finnst
bandarískur veruleiki vera heillandi
vegna þeirrar staðreyndar að það
er ekki hægt að alhæfa um hann.
„Hér má finna flest það versta og
besta í veröldinni og gesturinn
skynjar að samtímis því sem fólk
temur sér kurteisi við ókunnuga
og almennan velvilja þá er hann
gjörsamlega á eigin vegum og það
horfir enginn á ferðamanninn til
þess að vega hann eða meta á nokk-
urn hátt,“ segir Jóna Hrönn. Bjarni
bætir við að í Bandaríkjunum ríki
samfélag langþróaðs hlutleysis þar
sem kjörorðið er umburðarlyndi og
boðorðið er „þú skalt ekki dæma“.
„Þetta gerir það að verkum að al-
menn samskipti ganga vel fyrir sig
en ókunnugt fólk tengist ef til vill
meira að forminu til en innihaldinu.
Jafnvel þótt einhver segi þér frá að-
stæðum sínum í strætóskýlinu þá
segir hann þér ekki alla sögu sína
og fer varlega í að deila skoðunum.
Persónuleg gildi eru meira einka-
mál hér en heima.“
MARGIR STRANDAÐIR Í
TILVERUNNI
Jóna Hrönn segir að sér hafi brugð-
ið við, komandi frá norrænu landi,
að upplifa ástandið sem ríkir á
mörgum strætóbekknum þar vestra
þar sem fólk hefur komið sér fyrir
og er alls ekki að fara neitt af því
að það er svo augljóslega strandað
í tilverunni. „Mér virðist áberandi
margt af þessu fólki vera með
ómeðhöndlaða geðsjúkdóma eða
líkamlegar fatlanir og það er enginn
að gera þeim gott nema einhver
líknarsamtök sem hafa ekki getu til
annars en að lina sárasta sviðann.
Það virðast býsna margir falla niður
á milli samfélagsmöskvanna í hinu
bandaríska samfélagi.“
FLÓKIN ÁKVÖRÐUN OG
BREYTINGAR
Miðaldurshipparnir tveir ætla að
snúa heim á leið í lok maí og aka þá
sem leið liggur yfir miðríkin. „Þar
mun vera fagurt landslag og gott
mannlíf ekki síður en í suðurhlutan-
um. Svo þarf að selja bílinn í Boston
og koma sér heim til ástvinanna og
alls sem skiptir mestu máli. Ég verð
komin til starfa í Garðaprestakalli
um mitt sumar, er búin að bóka
brúðkaup langt fram á haust svo
það verða nóg verkefni.“
Hún segir Bjarna vera hippann
í sambandinu, en hann ætlar að
halda áfram að umvenda lífi sínu.
„Ég kem að vísu heim í sumar til
þess að þjóna kirkjunni fram á
haustið, en ég hef tekið þá flóknu
ákvörðun að kveðja embætti
sóknarprests í Laugarneskirkju eftir
sextán ára þjónustu og einhenda
mér í að ljúka doktorsnámi,“ segir
hann.
MÁLEFNI FÁTÆKRA HUGLEIKIN
„Laugarneskirkja hefur bara einn
prest í þjónustu og ekki hægt að
deila byrðum svo ég verð að velja á
milli rannsóknarvinnunnar og þjón-
ustunnar við söfnuðinn. Málefni
fátækra á Íslandi hafa legið lengi á
mér, núna þykist ég hafa í höndum
efni sem geti stutt við samfélags-
þroska okkar hvað þetta varðar og
ég ætla bara að vanda mig.“
Til hliðar við ritgerðarsmíðina
ætlar Bjarni að opna ráðgjafarstofu
í samvinnu við son þeirra hjóna,
Andra, en hann starfar sem sálfræð-
ingur. „Það verður þó ekki annað en
hlutastarf hjá okkur feðgum. Hver
veit nema ég skreppi líka í makríl til
Vestmannaeyja ef þeir vilja fá mig
í Vinnslustöðinni,“ segir Bjarni og
brosir.
■ liljabjork@365.is
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn
Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
FALLEGT
UMHVERFI
Hjónin á fjallsbrún
ofan við Pasadena
með útsýni yfir
Los Angeles.
MIÐALDRA HIPPAR
Á VIT ÆVINTÝRANNA
PRESTAR Á FERÐ Hjónin Jóna Hrönn Bolladóttir og Bjarni Karlsson umbyltu
lífi sínu og fluttu tímabundið til Bandaríkjanna þar sem þau stunda nú nám.
Bjarni kveður embætti sóknarprests Laugarneskirkju næstkomandi haust.
MARGIR FÁTÆKIR „Það virðast býsna
margir falla niður á milli samfélagsmöskv-
anna í hinu bandaríska samfélagi,“ segir
Jóna Hrönn.
MEÐ KÓNGINUM Hjónin rákust að
sjálfsögðu á Elvis sjálfan í Nashville á leið
sinni um suðurríkin.
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Flott föt fyrir flottar konur
Nýjar vörur í hverri viku
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is
Opið virka daga kl. 10-18
laugard. 11-16
Rín Lux Tungusófi
Havana leður hornsófi 2H2
Basel leðursett 3+1+1
HELGARTILBOÐ
Þú sparar 194.906 kr.
380.900 kr.
Þú sparar 203.973 kr.
390.900 kr.
Þú sparar 151.500 kr.
99.900 kr.
Þú sparar 40.000 kr.
19.900 kr. Þú sparar 28.000 kr.
19.900 kr.
Sjónvarpsskápur Salsa Sjónvarpsskápur Cubic TV2
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is