Fréttablaðið - 14.03.2014, Page 34

Fréttablaðið - 14.03.2014, Page 34
Lífi ð FRÉTTABLAÐIÐ Mottumars og Samfélgsmiðlanir. Aimee Song Songofstyle.com Aimee Song er innanhússhönnuð- ur og vinsæll tískubloggari og er búsett í Los Angeles. Song flakkar um heiminn klædd nýjustu tísku og veitir lesendum innsýn í lífsstíl sinn undir sólinni í Kaliforníu. Flottar myndir af stúlku með skemmtilegan stíl sem veitir innblástur. BLOGGARINN TÍSKUSINNAÐUR INNANHÚSSHÖNNUÐUR Diy refashion Pinterest.com/diyrefashion/diy-nails/ Ef þú hefur gaman af því að lakka neglurnar er þessi Pinterest-síða eitt- hvað fyrir þig. Hugmyndir að alls kyns naglaskreytingum og munstur sem eru hvert öðru flottara. Ýtarlegar leiðbein- ingar fylgja með flestum munstrunum svo það ætti að vera á færi flestra að herma eftir. Interior for you Instagram.com/interiorforyou Flott síða fyrir áhugfólk um innan- hússhönnun. Nýjar myndir af falleg- um heimilum og munum á hverjum degi þar sem hinn svart-hvíti skand- inavíski stíll er ríkjandi. Fashionista Facebook.com/FashionistaOfficial Síða á vegum heimasíðunnar Fash- ionista.com sem einblínir allra helst á fréttaflutning úr tískuheiminum. Ef þú vilt fá tískufréttir beint í æð skaltu láta þér líka við þessa síðu á samskiptamiðl- inum vinsæla.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.