Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.10.2015, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 15.10.2015, Qupperneq 4
Viltu stofna fyrirtæki? Hnitmiðað námskeið um félagaform, skattlagningu fyrirtækja, frádráttarbæran rekstrarkostnað, útgáfu reikninga, ábyrgð stjórnenda fyrirtækja, fjármál o.fl. Námskeiðið skiptist í þrjá hluta og geta þátttakendur val: 1. Morgunnámskeið, kennt þriðjud. 20. sept., 27. sept og 4. okt. kl. 9-12 2. Síðdegisnámskeið, kennt 21. sept., 26. sept. og 3. okt. kl. 16:30-19:30 Námskeiðsstaður er Holtasmári 1, Kópavogi (Hjartverndarhúsið). Fyrirlesari er Anna Linda Bjarnadóttir, héraðsdómslögmaður, LL.M Sjá námskeiðslýsingu á www.lexista.is Nánari upplýsingar og skráning í síma 552 609 i iptist í þrjá hluta og verður k nnt þriðjudagana 20. og 27. okt., og 3. nóv. kl. 16:10 – 19. Námskeiðsstaður er Katrínartún 2 (Höfðatorg), 16. hæð, Reykjavík. Sjá námskeiðslýsingu á www.lexista.is Fyrirlesari: Anna Linda Bjarnadóttir, héraðsdómslögmaður, LL.M N nari upplýsingar og skráning í síma 894-6090 eða á alb@lexista.i Námskeiðsgjald er 40.000 kr. og greiðist við skráningu. VR og fleiri félög styrkja félagsmenn sína til þátttöku á námskeiðinu um 50%. Samfélag „Ég ætla ekki að fara á vasa- peninga, það er mannréttindabrot,“ segir Guðrún Einarsdóttir ellilífeyris- þegi. Guðrún hefur barist fyrir afnámi vasapeningakerfisins og hærri ellilíf- eyri síðustu ár. Hún var sett á vasapen- inga í vor eftir að hafa þurft að leita sér hjúkrunar vegna langvinnra veikinda. Hún mótmælti því harðlega og fór á fund aðstoðarmanns ráðherra. Eygló Harðardóttir, húsnæðis- og félags- málaráðherra, lýsti því yfir  í júní að hún vildi afnema vasapeningakerfi. Í dag dvelur Guðrún á Hrafnistu og um næstu mánaðamót á hún að fara á vasapeninga til frambúðar. Hún er ósátt við að þingmenn og ráðherrar geri vel við sig á meðan ellilífeyrisþegar lifa undir fátæktarmörkum. Hún nefnir sérstaklega að þrjátíu milljónir hafi farið í dagpeninga þingmanna á þessu kjörtímabili. „Á meðan þeir þiggja tugi milljóna í dagpeninga í reisum sínum þá fá aldr- aðir lítið sem ekkert. Ég gef lítið fyrir þá hækkun sem boðuð er á ellilífeyri á meðan réttur fjölda aldraðra er brotinn með því að skikka þá á vasapeninga. Þá eiga aldraðir jafnt sem aðrir rétt á því  að vera á lágmarkslaunum, það dugar ekkert minna en þrjú hundruð þúsund krónur. Af minni upphæð er ekki hægt að lifa.“ Í nokkur ár hefur staðið til að endurskoða frá grunni fyrirkomu- lag greiðslna einstaklinga sem búa á hjúkrunarheimilum og afnema þar með svonefnt vasapeningakerfi.  Um áramótin 2016/2017 fer af stað tilraunaverkefni velferðarráðuneytis á nokkrum hjúkrunarheimilum þar sem vasapeningar verða afnumdir. -kbg Ætlar ekki að fara á vasapeninga Skólamál Skólastefnan „Skóli án aðgreiningar“ er metnaðarfull stefna. Til þess að sú skólastefna gangi upp þarf hins vegar að tryggja stuðning og þjónustu við öll börn. Svona hefst áskorun til ríkis og sveitarfélaga frá kennurum, skóla- stjórum og tuttugu foreldrafélögum í Reykjavík ásamt ýmsum sam- tökum sem koma að hagsmuna- gæslu barna. Áskorunin var send út í febrúar og aftur í apríl til allra alþingismanna, borgarfulltrúa og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Einu viðbrögðin sem fengust komu frá þeim síðastnefndu sem buðu viðræður í haust. Í bréfinu kemur fram að þjónusta og stuðningur við börn með hegð- unarvanda, geð- ræn vandamál, málhömlun og þroskahamlanir séu engan veginn Börn án greiningar trufla allt skólastarf Foreldrar, skólastjórnendur, kennarar og aðrir hagsmunaaðilar sameinast í áskorun til stjórnvalda um að bæta þjónustu við börn í grunnskólum. Áskorunin var send fyrir átta mánuðum en undirtektirnar eru nánast engar. Hvað er skóli án aðgrein- ingar? Grunnskóli í heimabyggð eða nærumhverfi nemenda þar sem komið er til móts við náms- og félagslegar þarfir nemenda í almennu skólastarfi. Hvenær byrjaði stefnan á Íslandi? Árið 1999 var gefin út aðal- námskrá þar sem byggt var á stefnunni. Hefur árangur stefnunnar verið metinn? Í maí síðastliðnum skilaði starfshópur mati á framkvæmd stefnunnar en meginniðurstaða hópsins er að stefnan hafi hvorki verið skilgreind né innleidd með nægilega skipulögðum hætti eða kostnaðarmetin sem skyldi og því erfiðleikum bundið að leggja mat á árangurinn. Lagt er til að frekari úttekt verði gerð á fram- kvæmd stefnunnar. Sigríður ásamt Sölva syni sínum sem er einhverfur og gengur í Hólabrekkuskóla. Hún segir úrræðaleysið skerða þjónustu við öll börn. Börn með greiningu fá ekki stuðning og þar af leiðandi truflar það almennt skólastarf fyrir hinum börnunum. FréttaBlaðið/SteFán Það er staðreynd að börn fá almennt ekki jafn góða kennslu vegna barna sem eiga í greinilegum vanda en fá ekki greiningu og ekki þann stuðning sem þau þurfa. Þau trufla skólastarfið of mikið. Sigríður Björk Einarsdóttir, í stjórn SAMFOK 260 374 467477 ✿ Sérkennurum fækkar 500 400 300 200 100 0 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 26% grunnskólanemenda fengu sérkennslu og stuðning til náms árið 2012. Það eru 11 þúsund nemendur. 63% af þeim voru með form- lega greiningu. Í þeim hópi eru tvöfalt fleiri drengir en stúlkur. 55% aukning varð á sex ára nem- endum sem þurftu sérkennslu eða stuðning árin 2005-2012. Á sama tíma nær tvöfaldaðist fjöldi nemenda með erlent móðurmál. viðunandi. Biðlistinn á greiningar- stofnunum sé meira en ár, hjá tal- meinafræðingum 12-18 mánuðir og að börn í ákveðnum hverfum Reykjavíkurborgar þurfi að bíða í tvö ár eða lengur eftir fyrsta viðtali á þjónustumiðstöð. Á meðan beðið er eftir þjónust- unni vex vandinn innan veggja skólanna sem bitnar á börnunum og fjölskyldum þeirra ásamt því að úrræðaleysið getur haft veru- lega neikvæð áhrif á skólagöngu annarra barna í sömu bekkjardeild eða skóla. „Þetta er vandamál allra foreldra því úrræðaleysið í skólunum bitnar á öllum börnum,“ segir Sigríður Björk Einarsdóttir, í stjórn Samfok sem stóð fyrir áskoruninni. „Foreldrar barna sem eiga ekki í vanda þora ekki að nefna þá hlið því þeir vilja ekki vera sakaðir um fordóma. En það er staðreynd að börn fá almennt ekki jafn góða kennslu vegna barna sem eiga í greinilegum vanda en fá ekki grein- ingu og ekki þann stuðning sem þau þurfa. Þau trufla skólastarfið of mikið. Það er ekki við börnin sjálf að sakast, heldur kerfið sem er ekki að sinna þeim.“ Sigríður á sjálf einhverfan son og segist svo sannarlega vera hlynnt skóla án aðgreiningar. En hún segir að stefnunni þurfi að fylgja fjármagn og stuðn- ingur. Eins og staðan er í dag sé stefnan eingöngu hugmynda- fræði. „Í árgangi sonar míns eru tæp- lega fimmtíu nemendur í tveimur bekkjum. Þar af eru nokkur börn með greiningar og nokkur sem eiga í greinilegum vanda en eru ógreind. Það er einn stuðningsfulltrúi sem flakkar á milli bekkjanna en þarf líka reglulega að sinna öðrum árgangi. Þetta þýðir að allar sér- þarfirnar hvíla meira og minna á einum kennara með sinn 25 nem- enda bekk.“ Sigríður segir kerfið gríðarlega ferkantað og því eigi það erfitt með að taka á móti börnum sem ekki eru með ferkantaða greiningu eða skerðingu. „Það er í raun mun auðveldara að taka á móti barni í hjólastól, jafnvel þótt þurfi að gera miklar breytingar á húsnæðinu, því þarfirnar eru þekktar og ákvæði um aðgengi eru skýr í reglugerðum.“ Sigríður bendir einnig á að mik- ill sparnaður felist í að takast á við vanda barnanna um leið og hann uppgötvast. „Þessi börn geta annars kostað kerfið himinháar upphæðir seinna meir, þegar vandinn er orð- inn dýpri og flóknari.“ erlabjorg@frettabladid.is *Heimild: Hagstofa Íslands. Guðrún segir ekki hægt að lifa af vasapeningum sem íbúum á hjúkrunarheimilum eru úthlutaðir. FréttaBlaðið/GVa 1 5 . o k t ó b e r 2 0 1 5 f I m m t U D a g U r4 f r é t t I r ∙ f r é t t a b l a ð I ð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.